Kiwanisfréttir - 01.12.1978, Síða 7
vantar Kiwanis. Því vil ég taka undir með
Guðmundi Böðvarssyni skáldi á Kirkjubóli,
þar sem hann segir i kvæði sínu, Vor borg:
Ó, byggið traust, svo borg vor fái staðið
í blárri fjarlœgð tímans, endalaust,
og risavaxna hallarmúra hlaðið
á hellubjargsins grunni. - Byggið traust.
Og kastið burtu efnum einskisnýtum,
svo öll vor borg sé risin, sterk og hrein,
úr gráum steini, gulum eða hvítum,
og greypið vora list í þennan stein.
Vor borg er hér að sjálfsögðu Kiwanis-
hreyfingin, sem við erum sífellt að byggja upp,
og eins og kvæðið segir eigum við að vanda
sem mest til þessarar uppbyggingar. Að vanda
uppbyggingu klúbbanna er það sama og að
velja góða og dugandi félaga, og þá kemur
uppbyggingarstarfið í samfélaginu, þjónustu-
störfm, af sjálfu sér. Og þá mun Kiwanis-
hreyfingin á íslandi ávinna sér það orð, sem
henni ber: Kiwanis er þjónustuhreyfing, sem
í reynd byggir upp samfélagið.
Góðir Kiwanisfélagar. Ég vil nota þetta
tækifæri til að þakka ykkur það traust, sem
þið hafið sýnt mér með því að velja mig i
embætti umdæmisstjóra næsta starfsár. Ég
vona, að ég reynist traustsins verður, og
heiti á ykkur alla að vera mér til trausts og
halds við uppbyggingu hreyfíngarinnar hér
á landi, sem er svo ákaflega mikilvæg. Ég
vil svo ljúka þessu spjalli mínu með því að
taka mér í munn orð Guðmundar Böðvars-
sonar og gera þau að mínum:
Byggjum traust.
Sem sé:
Byggjum traust Kiwanisstarf innan og meðal
klúbbanna.
Byggjum traust þjónustustarf í byggðar-
laginu, í svæðinu, á landinu.
Og þá kemur það þriðja af sjálfu sér:
Byggjum traust fólksins í landinu á Kiwanis-
hreyfingunni.
Tjáningarfrelsi
er ein meginforsenda þess
aó frelsi geti vióhaldizt
í samfélagi. _ inT^
það lifi
K-FRÉTTIR
7