Kiwanisfréttir - 01.12.1978, Qupperneq 13
þessum áhrifum, víki fyrir þeim öflum, sem
geta orðið þess valdandi, að fjölskyldan nái
sínum fyrri áhrifum. Kiwanishreyfingin þarf
að vera í fararbroddi þessara afla, sem nú
taka höndum saman til að styðja og efla
heimilið og Qölskylduna.
í öðru lagi þurfum við að taka beinan þátt í
lífi æskunnar. Við kennum æskufólki bezt
með því að setja því gott fordæmi. Með því
að láta æskufólk taka þátt í þjónustustörfum
okkar - með því að sýna því, hvað það þýðir
að vera nýtir og ábyrgir þegnar, getum við
Kiwanismenn stuðlað að því, að börnin leitist
við að finna lífi sínu tilgang og jafnframt
kennt þeim að byggja öðrum bjartara líf.
Þannig er það - þetta er markmiðin og
okkar vonir á Kiwanisárinu 1978 - 1979. Við
verðum að vera minnugir þess, að þessa hluti
gerir enginn okkar einsamall. Við þurfum að
vinna að þessum málum hver fyrir sig og allir
saman - vinna að því að gera þetta starfsár
eins árangursríkt og það hugsanlega getur
orðið. Til að tryggja það, að Kiwanis haldi
stöðugt áfram að vaxa - með nýjum félögum,
með nýjum klúbbum og með nýjum þjónustu-
verkefnum - verðum við sí og æ að vinna að
því að byggja örðum bjartara líf.
Við Kiwanismenn ráðum yfir því afli, sem
þarf til að ná öllum okkar markmiðum. Við
ráðum yfir því afli, sem þarf til að gera heim-
inn að betri heimi. Það er ekki eftir neinu að
bíða. Leggjumst allir á eitt og látum vonir
okkar og drauma rætast á starfsárinu 1978 -
1979.
Láttö drautmnn vætast...
NJÓnD UFSINS
IFERÐ MED SUNNU
l'l'M \I>IK \\ \ l.l'K > \ msKII'l \\ l\ \ \ I I I \ M \\1 I I Kl' \K I i I IK \K
HANKASTRA- I I 10. SIMI 29522
K-FRÉTTIR
13