Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Síða 9
Fréttir úr klúbbstarfinu (|||g
KIWANISKLÚBBURINN
SKJÁLFANDI
Starfsárið hjá okkur hér í
Skjálfanda hefur verið með hefð-
bundum hætti það sem af er.
Stjórnarskiptafundur var hald-
inn 07.10. ’94 sameiginlega með
Faxa á Kópaskeri og Herðubreið í
Mývatnssveit en sú hefð er komin
á að þessir klúbbar sameinist um
stjórnarskiptafund. Að þessu
sinni var fundurinn haldinn hjá
Herðubreið að Hótel Reynihlíð og
tókst með ágætum. Félagatala
okkar er ekki nema 15 í vetur.
Félagaöflun virðist vera mjög erfið
um þessar mundir og er fækkun í
klúbbum víða mikið áhyggjuefni.
Ekki er gott að segja til um hvað
veldur, en þó virðist manni að það
sé einfaldlega ekki „inn“ eins og
það er stundum orðað að vera í
félagsskap eins og Kiwanis eða t.d.
Lion í dag. Vonandi rætist þó úr
þessu fyrr en síðar.
Fundir hafa verið vel sóttir og
farið vel fram. Jólafundur var
haldinn með eiginkonum og
sóknarpresti og á aðfangadag fóru
jólasveinar um bæinn og færðu
börnum gjafir. Fjölskyldudagur er
á dagskrá síðar í vetur eða vor.
Ekki hefur verið farið í heimsóknir
enn sem komið er enda tíðarfar og
færð á vegum ekki hentað vel til
ferðalaga á milli sveita. Vonandi
verður það þó hægt fyrir vorið.
Aðal fjáröflun okkar ár hvert er
flugeldasala um áramót og gekk
hún með besta móti að þessu
sinni. Styrkveitingar eru nú orðn-
ar um 250 þúsund, þar af fóru 100
þúsund í Súðavíkursöfnunina.
Stuðningur við íþróttastarf
fatlaðra er stór liður í starfi okkar.
Einkum er þar um að ræða boccia.
Félagar hafa aðstoðað við æflngar
og annast mótshald í samstarfi við
bocciadeild íþróttafélagsins Völs-
ungs og sambýli fatlaðra hér á
staðnum. Nokkrir félagar eru með
dómararéttindi í boccia og hafa
þeir dæmt á mótum.
Boccialið Völsungs
Árlega er haldið hér svokallað
Þórðarmót í boccia sem er haldið
til minningar um látinn félaga
okkar Þórð Sveinsson og verður
þetta mót haldið 1. apríl í ár. Á
hausti komanda er svo fýrirhugað
að halda hér íslandsmeistaramót
í boccia og verður það mikill
viðburður og vonaNdi að vel takist
til. Klúbburinn hefur jafnan gefið
vinninga á þau mót sem hafa verið
haldin hér.
Við Skjálfandafélagar sendum
svo öllum Kiwanismönnum og
fjölskyldum þeirra Kiwaniskveðjur
og vonum að starfíð blómstri og
félögum fari fjölgandi í hreyfing-
unni því þess þarf hún með.
Gunnar Bergsteinsson
blaðafulltrúi
FRÁ ÁRANGURSNEFND1993-1994
Þau leiðu mistök áttu sér stað við prentun á
punktakerfinu sem síðan var sent til Kiwanisfrétta með
beiðni um birtingu að ártalið 1992-1993 var vegna
mistaka sett þar, en þessar niðurstöður yfir
punktakerfið sem birtar voru, giltu fyrir starfsárið
1991-1992.
Er beðist velvirðingar á þessum mistökum.
Virðingarfyllst,
Guðmundur Pétursson
Form. Árangursnefndar, starfsárið 1993-1994.
KIWANISFRÉTTIR
9