Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.07.2006, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 13.07.2006, Blaðsíða 10
*1 NYTT VEITINGAHUSIGRINDAVIK pHélgif^Íonanniutanjvið PkaffifBriidáVífc-Stáðurinn inefurffarið^ ffifaéstáðloijiar margrsKemmtiiegt'afaöfinni Hlhiálþ'eimyáinæstunnifr-" V. Verða Grindvíkingar fyrstirtil þess að endurvekja sveitaball- arómantíkina sem einkenndi staði á borð við Njálsbúð eða Hreða- vatnsskála? Helgi Einar Harðarson rekur Kaffi Grindavíkskammt utan við Grindavíkurbæ en veitingahúsarekstur varekki á prjónunum þegar Helgi lagði af stað í þau fjölmörgu verkefni sem hann tekst nú á við. Mig vantaði móttöku fyrir hestamenn því ég rek hestaleiguna Arctichestar.is og keypti því gömlu móttöku Bláa Lónsins sem er um 90m2 að stærð og móttakan endaði sem veitinga- staður,“ sagði Helgi í samtali við Víkurfréttir. Þegar gamla móttakan hafði verið flutt I hesthúsahverfið í Grindavík var tekið við að smfða pall utan um húsið og þegar tjald verður komið á pallinn verður hægt að rúma um 300 manns á Kaffi Grindavík. barnum Búðakletti í Borgarnesi þar sem hann kynntist nýjum félaga. Stanley var innanstokks- munur í Borgarnesi sem fylgdi Helga til Grindavíkur. „Stanley sat hérna á pallinum allan tím- ann þegar verið var að smíða pallinn og aldrei svo mikið sem hreyft við hamri. Á opnunar- kvöldinu var svaka sprenging hjá okkur og tvisvar sinnum þurfti ég að sækja hann út í bíl hjá einhverju fólki en hann hvarf áður en nóttin var úti,“ sagði Helgi en lögreglan í Kefla- vík kom höndum yfir Stanley í Áherslan á fiskrétti „Við leggjum áherslu á fiskrétti á Kaffi Grindavík enda stutt í ferskan línufisk en það verður einnig hægt að fá hamborgara og fleira hérna,“ sagði Helgi sn eins og sakir standa rúmar veitingastaðurinn 48 manns í ;æti. Helgi hefur gengist í ýmis itörf sem honum eru framandi veitingarekstrinum sem hafa agst misvel í hann. „Það hentar nér betur að eltast við hesta ;n að bera fram mat svo ég læt itrákana um það,“ sagði Helgi léttum rómi en þeir Jóhann íinarsson og Björn Andrésson itarfa hjá Helga á Kaffi Grinda- u'k og til stendur á næstunni að reir komi inn í reksturinn sem neðeigendur. Stálu Stanley Dpnunarkvöld Kaffi Grinda- úkur var vel sótt, þegar ljóst var ið Helgi myndi fara í veitinga- ekstur keypti hann innbúið frá „Það hentar mér beturað eltast við hesta en að bera fram mat svo ég læt strák- ana um það “ Reykjanesbæ. Fingralangir ein- staklingar höfðu haft fyrir því að bjóða Stanley með sér út á lífið. „Ég var ekki sáttur við við- brögð lögreglunnar, þeir stungu honum í steininn og létu hann sofa úr sér og svo þurfti ég að leysa hann út gegn tryggingu,“ sagði Helgi um leið og hann skellti upp úr. „Nú fær Stanley gaur í rassinn og verður festur niður á Kaffi Grindavík," sagði Helgi og vildi meina að þessi útskorni félagi sinn væri happa- ) VfKURFRÉTTIR i 28. TÖLUBLAÐ ! 27. ÁRGANGUR gripur í rekstrinum. Grínlaust kann Helgi lögreglunni í Kefla- vík bestu þakkir fyrir að hafa bjargað Stanley en brúðan er sú vinsælasta sinnar tegundar í Grindavík. Helstu viðburðir á skjánum Kaffi Grindavík sýndi á breið- tjaldi alla leikina á HM og stefna að því að vera með enska boltann í vetur. Helgi ætlar einnig að fylgja Magna eftir í Rock Star Supernova og vonast til þess að sem flestir komi og eigi góða stund á Kaffi Grinda- vík á meðan Island eignast enn eina stjörnuna. Ryðja sér til rúms Helgi og félagar stefna fastlega að því að gera Kaffi Grindavík að stóru sveitaballsnafni á ís- landi. „Okkur fannst það frekar súrt að staðir á borð við Njáls- búð og Hreðavatnsskála skyldu lognast út af og því erum við að ryðja okkur til rúms á sveita- ballamarkaðnum,“ sagði Helgi og lofaði því að stemmningin á Kaffi Grindavík yrði góð og þá sér í lagi þegar heilsárstjaldið yrði komið fyrir á pallinum. Kaffi Grindavík hefur upp á margt að bjóða, útsýni yfir Grindavíkurhöfn með hest- húsin í næsta nágrenni. Þá býður staðurinn einnig upp á 15 manna bíl til þess að fara í skoðunarferðir um Reykjanes eða hreinlega sækja fólk á sveita- ball. Innan tíðar verður tjaldið komið upp og þá ætla þeir fé- lagar að drífa sig í því að bóka stórband á sveitaball en það verður spennandi að sjá hvaða íslenska ofurgrúppa verður fyrst til þess að leika á sveitaballi í Kaffi Grindavík. Helgi og Jonanni með! j ‘íuÍtk'utröllinuStariÍeyrStanleyi hefur notið m i k i 11 á ýv msæld a1 í ^Grmtlávík' og i varj meðll] !annire!numinnfafb75ttfái opnunarkvöítíihii: VÍKURFRÉTTIR Á NETINU •www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTiR ÐAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.