Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.08.2017, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 02.08.2017, Qupperneq 4
Sumartilboði á RayBan Pilot* lýkur sunnudaginn 6. ágúst. Verð kr. 12.800 Módel: Andrea Stefánsdóttir * Ray Ban 3025 LO205 G15 StjórnSýSla Hvorki utanríkisráðu­ neytið né dómsmálaráðuneytið vilja svara spurningum Fréttablaðs­ ins varðandi fjársjóðsleit breska fyrirtækisins Advanced Marine Serv ices Ltd. í flaki SS Minden sem hvílir á hafsbotni 120 mílur suð­ austur af landinu. „Samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna í Stjórn­ arráði Íslands nr. 15/2017 fer utan­ ríkisráðuneytið ekki með málefni er varða eignarréttindi. Það fellur því ekki í hlut utanríkisráðuneytisins að taka afstöðu til þessa,“ segir í svari við þeirri spurningu hvort ráðuneytið telji vera rétt sem Ad­ vanced Marine Services Ltd. heldur fram í starfsleyfisumsókn sinni til Umhverfisstofnunar að enginn sér­ stakur eigi tilkall til flaks Minden og verðmæta í því. Er þetta einn­ ig svar við þeirri spurningu hvort ráðuneytið telji íslenska ríkið eða einhvern annan tiltekinn aðila eiga tilkall til flaksins og innihalds þess. Utanríkisráðuneytið er einn þeirra aðila sem Umhverfisstofn­ un leitaði umsagnar hjá vegna umsóknar AMS um leyfi til að skera gat á Minden þar sem það liggur á meira en 2,2 kílómetra dýpi og sækja þangað skáp eða kistu sem fyrirtækið segist telja innihalda verðmæta málma. Í umsögn sinni vísar ráðuneytið til þess að í 9. grein laga um landhelgi, efnahagslög­ sögu og landgrunn Íslands segi að vísindarannsóknar á þeim svæðum séu háðar samþykki stjórnvalda. Sækja ber um leyfi til utanríkisráðu­ neytisins. „Miðað við þær upplýsingar sem koma fram í umsóknargögnum Advanced Marine Services Limited, og fylgdu erindi Umhverfisstofn­ unar til ráðuneytisins, telur ráðu­ neytið að sú framkvæmd sem þar er lýst falli ein og sér ekki undir ákvæði 9. greinar og því þurfi ekki að sækja um leyfi til ráðuneytisins fyrir henni,“ segir utanríkisráðneytið í svarinu til Umhverfisstofnunar. Varðandi fyrrnefndar spurningar Fréttblaðsins og þá hvort einhverjir meinbugir séu á því að Advanced Marine Services Limited fá starfs­ leyfið segist dómsmálaráðuneytið ekki svara þeim. „Við sjáum ekki að borist hafi ósk frá Umhverfisstofnun um umsögn vegna málsins sem þú spyrð um og ráðuneytið tjáir sig þar af leiðandi ekki um málið,“ er svarið úr dómsmálaráðuneytinu. Starfsleyfisumsókn AMS er enn til athugunar hjá Umhverfisstofnun. gar@frettabladid.is Ráðuneyti segja pass við leit að fjársjóði í skipsflaki úr stríðinu Þar sem ekki er um vísindarannsókn að ræða tekur utanríkisráðuneytið ekki afstöðu til þess hvort leita megi verðmæta í flaki þýska skipsins Minden. Dómsmálaráðuneytið svarar ekki spurningum um málið. Breska fyrirtækið Advanced Marine Services Ltd. leitar að milljarða fjársjóði sem á að vera um borð. Norska skipið Seabed Constructor var leigt til leitar að Minden í apríl en var stöðvað af Landhelgisgæslunni. MyNd/LHG Við sjáum ekki að borist hafi ósk frá Umhverfisstofnun um umsögn vegna málsins sem þú spyrð um og ráðuneytið tjáir sig þar af leiðandi ekki um málið. Svar frá dómsmálaráðuneytinu StjórnSýSla Frá og með 9. ágúst næstkomandi mun Vatnajökuls­ þjóðgarður innheimta gjald fyrir skráðar bifreiðar og bifhjól sem koma í Skaftafell. Gjaldið fyrir venjulegan fólksbíl verður 600 krónur fyrir sólarhringinn. Notað verður sjálfvirkt mynda­ vélakerfi frá fyrirtækinu Compu­ terVision ehf. Mun það nema skráningarnúmer ökutækja og stofna kröfu í þar til gerðu smáfor­ riti í snjallsíma þess sem skráður er fyrir tækinu. Verði sú krafa ekki greidd stofnast krafa í heimabanka. „Það er tekin mynd á leiðinni inn og aftur á leið út. Engar myndir eru geymdar nema rétt á meðan farartæki eru inni á svæðinu,“ segir Þórður H. Ólafsson, framkvæmda­ stjóri Vatnajökulsþjóðgarðs. Þórður segir að samningurinn við ComputerVision hafi farið í gegnum verðkönnun hjá Ríkiskaupum. Sá er til eins árs og tekur fyrirtækið prósentu af þeim gjöldum sem inn koma. Áætlað er að upphæðin sem innheimtist komi til með að hlaupa á tugum milljóna. Gjaldtakan var innleidd með reglugerð sem sett var um miðjan síðasta mánuð. Auk þess að heim­ ila gjaldtöku fyrir notkun bílastæða hækkar gjaldskráin fyrir aðra þjón­ ustu á svæðinu. Þar má nefna tjald­ gistingu, gistingu í skála og sérstæka þjónustu sem felur í sér sérstakt vinnuframlag af hálfu starfsmanna. Hið síðastnefnda hækkar um 60 prósent og verður 16 þúsund fyrir klukkustundina. Þá verður nú heimilt að rukka fyrir útgáfu atvinnuleyfa í þjóðgarð­ inum, alls 25 þúsund krónur. – jóe Innheimta bílastæða- og atvinnuleyfagjöld í Vatnajökulsþjóðgarði DóMSMÁl Ríkissaksóknari hefur áfrýjað niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli gegn Viðari Má Friðfinnssyni, eiganda kampavíns­ klúbbsins sáluga Strawberries. Í maí síðastliðnum var Viðar Már dæmdur í árs fangelsi fyrir meiri­ háttar skattalagabrot og honum gert að greiða 242 milljóna króna sekt í ríkissjóð. Hins vegar var hann sýknaður af ákæru um bókhalds­ brot auk þess sem kröfu um upp­ töku á eignum hans og félaga í hans eigu var hafnað. Eignir hans voru kyrrsettar á meðan á rannsókn og rekstri málsins stóð. Í svari Helga Magnúsar Gunnars­ sonar vararíkissaksóknara við fyrir­ spurn Fréttablaðsins segir að mál­ inu sé áfrýjað í því skyni að ákærði verði dæmdur til frekari refsingar. Þá fer ákæruvaldið fram á að niður­ stöðu héraðsdóms um upptöku eigna Viðars og félaga hans verði snúið í Hæstarétti. – jóe Áfrýja til Hæstaréttar Viðar Már Friðfinnsson ásamt verjanda sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Röng dagskrá á Flúðum Í frétt gærdagsins um dagskrá um verslunarmannahelgina birtist fyrir mistök dagskráin á Flúðum eins og hún var í fyrra. Hún var auðvitað röng. Í ár verður dagskráin glæsileg, tónleikar með Todmobile, skemmtikvöld og uppistand, frábær barnadagskrá og fleira. leiðrétting Þórður Ólafs­ son, fram­ kvæmdastjóri Vatnajökuls­ þjóðgarðs 600 krónur mun kosta fyrir venjulegan fólksbíl. Helm- ingi lægra gjald er fyrir mótorhjól. 2 . Á g ú S t 2 0 1 7 M i ð V i K U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 2 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :3 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 6 B -D 7 C 4 1 D 6 B -D 6 8 8 1 D 6 B -D 5 4 C 1 D 6 B -D 4 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.