Fréttablaðið - 02.08.2017, Page 36
Ástin
Til Johns Lennon og Yoko Ono
Ástin er val.
Hún er meira að segja
skynsamlegasta ákvörðun
sem við höfum tekið
um ævina.
Og við teflum henni
í barnslegri einlægni
gegn grimmd heimsins.
Úr ljóðabók Þórs Stefánssonar
Ástin og lífið … og fleiri ljóð.
Bls. 19
Ég finn nú ákveðna
samkennd með
honum en þetta eru yfir-
leitt stuttir textar hjá
mÉr en það er ekki ýkja
algengt í frakklandi núna.
Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík
Sími: 517 0900 / 777 1901
www.kaelivirkni.is
VIÐHALD OG VIÐGERÐIR
Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM
VIÐ
SJÁUM
UM
gæði... ending… ánægja.
skoðaðu úrvalið á Weber.is
Það er ekki á hverjum degi sem íslenskt skáld sendir frá sér ljóðabók á tveimur tungumálum, íslensku og frönsku, en þetta fyrirkomulag er
þó Þór Stefánssyni ljóðskáldi vel
kunnugt. Ástin og lífið … og fleiri
ljóð / L'amour et la vie … et d'autres
poèmes, er fjórtánda ljóðabók Þórs
en að baki á hann einnig jafn margar
þýðingar úr frönsku. Þór segist þó
alls ekki skrifa jöfnum höndum á
íslensku og frönsku heldur hafi hann
í gegnum tíðina þýtt eigin verk með
frönskum þýðendum. „Það sem
hefur komið út áður þýddi ég alltaf
með Lucie Albertini og reyndar hef
ég alltaf gert þetta að frumkvæði
Frakkanna. Að þessu sinni vinn ég
þýðinguna með Nicole Barrière, en
hún er útgáfustjóri þessa bókaflokks
hjá L'Harmattan-forlaginu í París
sem gefur bókina út. En ég hef því
aldrei gefið mig í það að skrifa beint
á frönsku sjálfur heldur alltaf ort á
íslensku og unnið svo þýðingarnar
í samvinnu við aðra. Ég hef reyndar
líka þýtt eftir önnur íslensk skáld en
fyrir fimmtán árum kom út bók sem
mundi hafa heitið Tuttugu og fimm
íslensk skáld, með verkum samtíma-
höfunda.“
Þór segir að þessi sterku tengsl
hans við Frakkland og franska
menningu megi einfaldlega rekja
til þess að hann hafi farið þangað til
náms á sínum tíma. „Ég menntaði
mig í Frakklandi og hef starfað m.a.
sem frönskukennari og hef að auki
verið að fást við þýðingar úr frönsku
en þá einkum frá frönskumælandi
jaðarsvæðum. Að auki ritstýrði ég
frönsku orðabókinni á sínum tíma
sem er nú víst ekki fáanleg lengur
heldur aðeins aðgengileg á netinu.“
En finnst Þór að það sé kannski
franskur keimur á hans ljóðagerð?
„Ég veit það ekki, efast eiginlega um
það. Reyndar var fyrsta skáldið sem
ég þýddi Guillevec sem ég þýddi
nokkrar bækur eftir. Ég finn nú
ákveðna samkennd með honum
en þetta eru yfirleitt stuttir textar
hjá mér en það er ekki ýkja algengt
í Frakklandi núna. En þetta knappa
form hentar mér og ég kann vel við
það. Guillevec yrkir einnig á þessu
knappa formi og það er því ekki ólík-
legt að ég hafi í raun valið að takast
á við að þýða ljóðin hans vegna þess
að það passaði mér, kunni vel við lag
hans á ljóðlistinni. Hann var reyndar
fallinn frá þegar ég fór að takast á við
þessar þýðingar en ég kynntist ekkj-
unni hans og það var stórmerkileg
kona.“
Varðandi yrkisefnin segir Þór að
líkast til sé titill nýjustu bókarinnar
ágætis vísbending. „Þessi titill, Ástin
og lífið … og fleiri ljóð, er nokkuð
lýsandi fyrir það sem ég hef verið
að takast á við í mínum ljóðum.
Ástin hefur vissulega verið nokkuð
áberandi en það er ekki allt bundið
hana. Þemun hafa verið þessi: Ástin
og lífið og ýmislegt fleira og dauðinn
er auðvitað partur af lífinu.“
Þór segir að það hafi komið
honum skemmtilega á óvart hversu
Ég kann mjög vel við þetta knappa form
nýverið kom út fjórtánda ljóðabók þórs stefánssonar, útgefandi er franska forlagið l'harmattan og ljóðin
í bókinni eru bæði á íslensku og frönsku, en mikið umstang verður í kringum útgáfuna í París í október.
Þór Stefánsson, ljóðskáld og þýðandi, segist yrkisefnin kristallast í titli nýjustu bókar sinnar. Fréttablaðið/andri Marinó
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
mikið verður svo að gerast í haust í
París í tengslum við útgáfu bókarinn-
ar þar. „Ég fer til Frakklands í októ-
ber og þá verður heilmikið að gerast,
það kemur mér eiginlega á óvart
hvað það er mikið umstang. Það er
þarna leikhús sem heitir Décharg-
eurs sem verður með dagskrá um
verk mín á frönsku og svo ætlar Nor-
ræna bókasafnið í París, sem er deild
í aðalsafni borgarinnar, að vera með
dagskrá um verk mín. Þetta verður
allt í sömu vikunni í október svo það
er sitthvað að hlakka til.“
2 . á g ú s t 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A g U R28 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð
menning
0
2
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
6
B
-C
8
F
4
1
D
6
B
-C
7
B
8
1
D
6
B
-C
6
7
C
1
D
6
B
-C
5
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K