Fréttablaðið - 20.07.2017, Síða 2
Ástandið ekki gott
Olíumengun er enn í Grafarlæk við Grafarvog. Ekki hefur tekist að finna hvaðan mengunin kemur. Ljóst er að hún barst á föstudeginum eða mögu-
lega fyrr út í lækinn Í gær tók útbreiðslan kipp vegna úrkomu. Olían sem sést er staðbundin. Olían sem berst í fjöru er áhyggjuefni. Fréttablaðið/Eyþór
Veður
Austan- og suðaustanátt í dag,
skýjað að mestu sunnan- og vestan-
lands og sums staðar dálítil væta,
en bjart með köflum norðaustan til.
sjá síðu 24
samfélag Jóhanna Sigurðardóttir,
sem var fyrsti opinberlega samkyn-
hneigði þjóðarleiðtogi heims, mun
opna áttundu hinsegin gönguna í
Færeyjum þann 27. júlí næstkom-
andi.
Jóhönnu er meðal annars boðið
að taka þátt í ár til að varpa ljósi
á þær framfarir sem hafa átt sér stað
í réttindabaráttu hinsegin fólks í
Færeyjum á síðustu árum. Það vakti
athygli árið 2010 þegar Jóhanna
Sigurðardóttir fór í opinbera heim-
sókn til Færeyja að Jenis av Rana, for-
maður Miðjuflokksins í Færeyjum
og þingmaður á færeyska Lögþing-
inu, neitaði að mæta til kvöldverðar-
boðs með Jóhönnu Sigurðardóttur
og Jónínu Leósdóttur.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan þá og fyrr á þessu ári voru
hjónabönd samkynhneigðra sam-
þykkt á færeyska lögþinginu.
Áætlað er að þúsundir muni
ganga til stuðnings hinsegin fólki
þennan dag. Jónína Leósdóttir,
kona Jóhönnu, mun einnig taka þátt
í göngunni. Jóhanna og Jónína hafa
undanfarið sótt marga viðburði sem
tengjast réttindabaráttu hinsegin
fólks. Meðal annars setti Jóhanna
LGBT, menningar- og viðskiptahátíð
á Tenerife, ásamt borgarstjóranum
og tóku þær Jónína í lok júní þátt í
mannréttindaráðstefnu í tengslum
við World Pride í
Madrid í vikunni.
Ekki náðist
samband við
Jó h ö n n u vi ð
vinnslu fréttar-
innar. – sg
Jóhanna opnar
gleðigönguna
fyrir Færeyinga
em2017 „Ég var á leiðinni út eftir leik
og þá spyr Ragga (Ragnhildur Skúla-
dóttir í landsliðsnefnd KSÍ) hvort
hún eigi ekki að taka töskuna og ég
halda á Ými. Svo hverfur Ragga bara
en ég þurfti að labba í gegnum þetta
fjölmiðlasvæði,“ segir Harpa.
Þar varð uppi fótur og fit, mynda-
vélar fóru á loft og allir vildu ræða
við nýbökuðu mömmuna. Ýmir tók
athyglinni með stóískri ró. „Ég var
ekki búin að hugsa þetta til enda en
kannski var bara fínt að klára þetta
á einu bretti.“
Spurningarnar snerust fæstar um
leikinn en meira um móðurhlut-
verkið.
„Kannski finnst okkur Íslend-
ingum það orðið eðlilegra að pabb-
inn sé að sjá um börnin á meðan
mamman sér um önnur verkefni,“
segir Harpa.
„Þeir voru aðallega að spá í það
hver væri eiginlega að sjá um barnið
fyrst að ég væri að spila hér. Sem
betur fer á hann pabba. Ég held að
það væri ekki mikið um fréttir ef
mamman væri hinum megin við
borðið eins og Kalli er núna,“ segir
Harpa og vísar til föðurins, Jóhann-
esar Karls Sigursteinssonar, sem
heldur til í sumarhúsi með synina
tvo meðan á EM stendur. Harpa
dvelur þó hjá þeim á nóttunni að
frátalinni nóttinni fyrir leik þegar
landsliðið gistir í borginni þar sem
leikið er hverju sinni.
Knattspyrnusamband Evrópu
minntist á nýbökuðu íslensku
mömmuna í umfjöllun fyrir og eftir
Frakkaleikinn. Sá misskilningur var
ðreyndar að hin 26 ára Dagný Brynj-
arsdóttir, miðjumaður landsliðsins,
var sögð þriggja barna móðir.
„Mér finnst bara geggjað að
Dagný sé stimpluð sem þriggja
barna móðir því hún verður svo
móðguð bara ef einhver kallar
hana konu. Ég vil að fólk deili endi-
lega þessari frétt svo hún fari sem
víðast.“
Svo virðist sem Dagnýju hafi
verið ruglað saman við Hörpu,
nýbakaða tveggja barna móður, og
Málfríði Ernu Sigurðardóttur sem
á þrjú börn. „Okkur fannst þetta
mjög fyndið. Þetta var mikið rætt
í matnum fyrir leikinn,“ segir Mál-
fríður hlæjandi. Ekki var minna
hlegið þegar umfjöllun UEFA eftir
leik var skoðuð.
„Þar kom fram hvað þriggja barna
móðirin Dagný væri í geggjuðu
formi,“ segir Málfríður og hlær.
Stelpurnar mæta Sviss á laugar-
daginn en liðið hefur ekki skorað
í síðustu fjórum leikjum. Marka-
drottningin Harpa hefur litlar
áhyggjur af því. „Við erum búin að
fara vel í gegnum sóknarleikinn og
varnarleikinn. Þetta dettur með
okkur, bara spurning um hvar og
hvenær.“ kolbeinntumi@365.is
Blaðamenn hópuðust
í kringum mömmuna
Framherjinn Harpa Þorsteinsdóttir segir það ekki hafa verið planað að mæta
með fimm mánaða son sinn í viðtöl eftir tapið gegn Frökkum. Allt fór á hliðina
er franskt og hollenskt fjölmiðlafólk sá leikmann með svo ungt barn í fanginu.
Ýmir Jóhannesson sló í gegn með Hörpu þorsteinsdóttur, mömmu sinni, á
blaðamannafundi eftir baráttuleikinn gegn Frökkum. Fréttablaðið/VilHElm
Ég var ekki búin að
hugsa þetta til enda
en kannski var bara fínt að
klára þetta á einu bretti.
Harpa Þorsteinsdóttir
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7070 • volvopenta.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM
hjá volvo penta á íslandi
Öflug Volvo Penta þjónusta
Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi
teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum
Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt.
Komdu í dag og ræddu við ráðgjafa.
HAFÐU SAMBAND Í DAG
• Sími: 515 7067 | 869 7537 Guðmundur Gísli
• Netfang: volvopenta@brimborg.is
• Heimasíða: volvopenta.is
Kauptu bestu varahlutina
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta
á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar
okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup.
Volvo Penta Kubbur_10x10_20170615_Draft1.indd 1 20.6.2017 13:47:16
ísrael Afstaða og hegðun Evrópu-
sambandsins gagnvart Ísraelsríki er
„geðveik“ samkvæmt forsætisráðherra
ríkisins, Benjamin Netanjahú. Frá
þessu greindi hann á lokuðum fundi í
Búdapest, höfuðborg Ungverjalands,
en ummælum hans var fyrir slysni
varpað í heyrnartól fjölmiðlamanna
sem biðu fyrir utan fundinn.
„Evrópusambandið er eina ríkja-
sambandið í heiminum sem setur
sér þröng skilyrði í samskiptum við
Ísrael, pólitísk skilyrði,“ sagði for-
sætisráðherrann. Sagði hann afstöðu
ESB raska öryggi sambandsins sem og
skaða efnahag þess. – þea
Ísraelar fordæma
afstöðu ESB til sín
benjamin
Netanjahú
2 0 . j ú l í 2 0 1 7 f I m m T u D a g u r2 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a ð I ð
2
0
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
8
-B
9
7
8
1
D
5
8
-B
8
3
C
1
D
5
8
-B
7
0
0
1
D
5
8
-B
5
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K