Fréttablaðið - 20.07.2017, Qupperneq 4
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða?
Iðnaðarmann
Bílstjóra
Bifvélavirkja
Þjónustufólk
Öryggisvörð
Lagerstarfsmann
Matreiðslumann
VIÐSKIPTI Snorri Jakobsson, grein-
andi hjá Capacent, segir ljóst að eftir
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um
að ógilda kaup smásölurisans Haga á
Lyfju séu Hagar ekki eins spennandi
fjárfestingarkostur og áður. Sam-
eining félaganna hefði aukið breidd í
rekstri Haga auk þess sem vænt sam-
legðaráhrif hefðu verið umtalsverð.
Hann segir að Capacent verðmeti
Haga án Lyfju og Olís á genginu 48,6
krónur á hlut en verðmatsgengi
Haga með fyrirtækin tvö innanborðs
hafi verið 52,4 krónur á hlut. Gengi
bréfa félagsins stóð í 39,05 krónum á
hlut eftir lokun markaða í gær.
Þrátt fyrir að Samkeppniseftir-
litið hafi ekki samþykkt kaupin
segir Snorri hins vegar að Hagar sé
enn verulega vanmetið fyrirtæki
á markaði. „Við erum hins vegar
ekkert að draga fjöður yfir það að
Hagar eru ekki eins spennandi fjár-
festingarkostur og áður, en Lyfja félli
vel að rekstri Haga,“ segir hann. – kij
Hagar ekki eins spennandi án Lyfju
Hagar reka meðal annars verslanir Bónus. FréttaBlaðið/Eyþór
Snorri Jakobsson,
greinandi hjá
Capacent
NEYTENDUR Varúðarmerkingum
á efnavörum, svo sem þvotta- og
hreinsiefnum, hefur í mörgum til-
fellum verið ábótavant í verslun
bandarísku keðjunnar Costco í
Garðabæ. Umhverfisstofnun hefur
krafið verslunina um úrbætur. Ef
verslunin verður ekki við kröfum
stofnunarinnar gæti hún átt yfir
höfði sér dagsektir.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins sendu nokkrir keppinautar
Costco, fyrst og fremst innlendir
heildsalar, kvörtun til Umhverfis-
stofnunar þar sem bent var á að var-
úðarmerkingum á ýmsum vörum
sem verslunin selur, til dæmis upp-
þvottaefnum og hreinsivörum, væri
verulega ábótavant.
Lýstu þeir sem kvörtuðu gremju
sinni yfir því að Costco hefði í marg-
ar vikur komist upp með að merkja
ekki allar umbúðir efnavara sinna,
líkt og skylt er lögum samkvæmt.
Gunnlaug Helga Einarsdóttir,
sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun,
staðfesti í samtali við blaðið í gær
að stofnunin hefði brugðist við
ábendingum sem henni bárust
og sent starfsmenn í eftirlitsferð í
Costco. Hefðu þeir í kjölfarið krafið
verslunina um ákveðnar úrbætur,
þar á meðal að hún bætti varúðar-
merkingar sínar á efnavörum. For-
varsmenn verslunarinnar fengu
fjögurra vikna frest til þess að
grípa til úrbóta og er sá frestur ekki
enn liðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
Umhverfisstofnun er víða pottur
brotinn í merkingum efnavara.
Á það ekki aðeins við um Costco,
heldur er úrbóta þörf víðar.
„Við reynum ávallt að bregðast
við ábendingum sem við fáum,
fara á staðinn og ganga úr skugga
um hvort þær standist. Við gerum
í kjölfarið eftirlitsskýrslu þar sem
fram kemur hvort ábendingarnar
eigi við rök að styðjast eða ekki.
Og ef merkingum er ábótavant er
gerð krafa um úrbætur og ákveðinn
frestur gefinn. Fyrirtækin fá þá frest
til þess að koma sínum málum í lag,“
segir Gunnlaug.
S a m k væ m t e f n a l ö g u m e r
Umhverfisstofnun heimilt að veita
þeim sem brýtur gegn ákvæðum
laganna áminningu.
Ef fyrirmælum Umhverfisstofn-
unar er ekki sinnt innan tiltekins
frests getur hún jafnframt lagt dag-
sektir á viðkomandi fyrirtæki þar til
úr er bætt, en sektirnar geta numið
allt að 500 þúsund krónum fyrir
hvern dag. kristinningi@frettabladid.is
Costco gert að merkja efnavöru
eftir kvartanir frá keppinautum
Umhverfisstofnun krefurð bandaríska verslunarrisann Costco um úrbætur vegna óviðunandi merkinga á
efnavörum eftir kvartanir keppinauta. Ef verslunin verður ekki við kröfum á hún dagsektir yfir höfði sér.
Pottur er víða brotinn í merkingu efnavöru og á það ekki aðeins við um Costco segir Umhverfisstofnun.
Costco opnaði verslun sína í Garðabæ 23. maí síðastliðinn. FréttaBlaðið/Eyþór.
LögREgLUmáL Héraðssaksóknari
rannsakar nú meint brot yfirmanns
hjá Icelandair sem er grunaður um
brot á lögum um verðbréfaviðskipti,
eins og greint var frá í Fréttablaðinu í
gær. Rannsóknin beinist að viðskipt-
um með bréf í félaginu í aðdraganda
þess að Icelandair Group sendi frá
sér tilkynningu til Kauphallarinnar
í febrúar, þar sem afkomuspá ársins
var lækkuð um liðlega þrjátíu prósent.
Ólafur Þór Hauksson héraðssak-
sóknari staðfesti við fréttastofu í gær
að rannsókn stæði yfir og að nokkrir
hefðu verið færðir í yfirheyrslu. Þá
hefðu eignir verið kyrrsettar eða frystar
en fjárhæðirnar sem um ræðir hlaupa á
tugum milljóna. Að sögn Ólafs gengur
rannsókn vel en ekki liggur fyrir hvort
ákæra verður gefin út. – jkj
Tugir milljóna
króna frystir
Meint brot yfirmanns hjá icelandair
er til rannsóknar. FréttaBlaðið/PJEtur
Við reynum ávallt
að bregðast við
þeim ábendingum sem við
fáum, fara á staðinn og ganga
úr skugga um hvort þær eigi
við rök að styðjast eða ekki.
Gunnlaug Helga Einarsdóttir,
sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun
SLYS „Vegurinn er alveg skelfilegur
þarna. Það brotnar úr honum á
köntunum og svo er hann mjög
þröngur í þokkabót,“ segir Magnús
H. Valdimarsson, eigandi ferðaþjón-
ustufyrirtækisins Time Tours. Rúta
á vegum fyrirtækisins valt á Gjá-
bakkavegi á Suðurlandi í gær með
43 farþega innanborðs.
Magnús lýsir atburðarásinni sem
svo að rútan hafi verið að mæta
öðrum bíl. Vegna þrengdar vegarins
hafi bílstjóri rútunnar þurft að víkja
út í kant og þá hafi kanturinn gefið
sig. „Malbikið brotnar niður þarna.
Svo er búið að rigna alveg rosalega
mikið undanfarið,“ segir Magnús.
Enginn slasaðist alvarlega í slys-
inu. „Það voru víst allir í bílbeltum
og svo var þetta reyndur og góður
bílstjóri þannig að þetta fór vel. Það
var heppilegt að enginn slasaðist,
það er fyrir öllu,“ segir Magnús enn
fremur.
Magnús er afar ósáttur við stjórn-
völd vegna ástands vegarins.
„Maður verður að geta gert þær
lágmarkskröfur að vegabætur
skili sér. Ferðaþjónustan borgar
að minnsta kosti nógu mikið af
gjöldum til ríkisins.“ – þea
Skelfilegur Gjábakkavegur sagður ástæða þess að rúta fór á hliðina
rúta time
tours valt
af veg-
inum sem
staðið
hefur til að
lagfæra.
Það var heppilegt að
enginn slasaðist,
það er fyrir öllu.
Magnús H. Valdimarsson,
eigandi Time Tours
KíNa Ekki er lengur hægt að skrifa
um eða deila myndum af hinum
viðkunnanlega bangsa Bangsímon,
sé maður á inter netinu í Kína.
BBC segir Kínverja hafa deilt
myndum af Bangsímon í sambæri-
legum aðstæðum og
forseti landsins, Xi
Jinping, og líkt for-
setanum við barna-
bókabangsann
vinsæla. Segir
BBC að Kínverjar
líði ekki að hæðst
sé að leiðtoganum á
slíkan hátt. – þea
Kínverjar banna
Bangsímon
2 0 . j ú L í 2 0 1 7 F I m m T U D a g U R4 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a Ð I Ð
2
0
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
8
-C
D
3
8
1
D
5
8
-C
B
F
C
1
D
5
8
-C
A
C
0
1
D
5
8
-C
9
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K