Fréttablaðið - 20.07.2017, Page 6
Allur borðbúnaður
fyrir veitingahús
gsimport.is
892 6975
gæði – þekking – þjónusta
Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
STIMPLAR
STAFRÆNIR STIMPLAR - BÓKHALDSSTIMPLAR - NÚMERASTIMPLAR
FATASTIMPLAR - TEXTASTIMPLAR - HRINGSTIMPLAR
COLOP - TRODAT - DAGSETNINGASTIMPLAR
Stimplar af öllum
stærðum og gerðum
PANTAÐU STIMPIL
Á PMT.IS
2 0 . j ú l í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R6 F R é T T I R ∙ F R é T T A B l A ð I ð
SAMFélAG „Þetta er allt frekar súr
realískt og maður er frekar daufur,“
segir Olivia Rakelardóttir Zieba en
andvaka hennar bjargaði trúlega
mannslífum í stórbruna í Mývatns
sveit í fyrrinótt.
Sjö manns voru í fastasvefni þegar
eldurinn kviknaði í húsinu Austur
hlíð. Fimm starfsmenn Hótels Reyni
hlíðar sváfu í kjallara hússins og par á
efri hæðinni. Bráðabirgðaniðurstöð
ur benda til að eldurinn hafi kviknað
í aðstöðu við pall sem stendur við
húsið þar sem starfsmenn reykja.
Húsið er skráð sem íbúðarhúsnæði.
Þótt trúlega hafi kviknaði í vegna
sígarettu var það önnur sígaretta
sem bjargaði því sem bjargað varð
því Olivia gat ekki sofnað og fékk
símtal sem hún vildi ekki taka í öðru
starfsmannahúsi rétt hjá. Hún vatt
sér því út og rúllaði upp sígarettu.
„Það var svo mikill vindur þann
ig að ég var eitthvað að reyna að
kveikja í en þegar ég sný mér við
þá sé ég að húsið stendur í ljósum
logum,“ segir Olivia sem hringdi
strax í Neyðarlínuna og sagði að fólk
væri í hættu.
„Það var enginn kominn út og
einhvern veginn ekkert að gerast. Ég
hringdi næst í yfirmann minn sem
býr í húsinu og sem betur fer svaraði
hann. Ég öskraði eitthvað á hann –
man reyndar ekkert hvað ég sagði og
skömmu síðar komu allir hlaupandi
út.“
Rauði krossinn opnaði fjölda
hjálparstöð fyrir starfsfólkið. Einnig
var því útvegaður fatnaður og öllum
var boðinn sálrænn stuðningur og
var Olivia nýkomin af slíkum fundi
er Fréttablaðið náði tali af henni.
Slökkviliðið í sveitinni barðist við
eldinn þrátt fyrir vatnsleysi en vatn
hafði verið tekið af Reykjahlíðar
þorpi vegna viðgerðar. Þegar vatnið í
tankinum á slökkviliðsbílnum þraut
brugðu slökkviliðsmenn á það ráð að
sækja vatn í Mývatn og luku slökkvi
starfi þannig. benediktboas@365.is
Slökktu í með Mývatni
Mikil mildi þykir að ekki varð manntjón í stórbruna í Mývatnssveit í gær. Stúlka
gerði viðvart og sjö manns rétt sluppu út áður en eldurinn læsti sig um húsið.
Vatnslaust var í þorpinu vegna viðgerðar og var slökkt í með vatni úr Mývatni.
Bráðabirgðaniðurstöður benda til að kviknað hafi í á pallinum. Mynd/Pétur SveinBjörnSSon
SAMGönGUR Sex ferðum Herjólfs til
og frá Landeyjahöfn 23., 24. og 25.
júlí hefur verið aflýst. Segir í tilkynn
ingu frá Herjólfi að niðurstöður
dýptarmælinga við Landeyjahöfn á
dögunum sýni að ekki sé nægt dýpi
við hafnargarðana til að hægt sé að
sigla á fjöru.
Stórstreymt er næstu daga og þar
af leiðandi er dýpið of lítið til að
Herjólfur sigli til Landeyjahafnar.
Þá segir að samkvæmt Vegagerðinni
sé dýpkunarskip ekki fáanlegt sem
stendur, ekki liggi fyrir hvenær slíkt
verður fáanlegt.
„Öldu og vindaspá er góð fyrir
næstu daga og vonast er til að ekki
þurfi að fella niður fleiri ferðir en
við biðjum farþega þó að fylgjast
vel með tilkynningum, ef aðstæður
breytast þá verður það tilkynnt,“
segir í tilkynningunni. – þea
Ferðum um Landeyjahöfn
aflýst vegna stórstreymis
Ekki er nægt dýpi til að
sigla um Landeyjahöfn á
fjöru dagana 23. til 25 júlí.
Dýpkunarskip er ekki
fáanlegt og ekki liggur fyrir
hvenær það fæst.
Húsið er illa farið af eldi og reyk. Mynd/Pétur SveinBjörnSSon
UMhveRFISMál „Umferð hefur að
undanförnu aukist verulega um
Reykjanesbraut ekki síst með til
komu Costco verslunarinnar og
vegna aukinna umsvifa almennt
í Kauptúni,“ segir í bréfi íbúa við
Sunnuflöt í Garðabæ þar sem þeir
óska eftir því að bæjaryfirvöld beiti
sér fyrir því að gerð verði hljóðmön
við Reykjanesbraut.
„Gríðarlegur umferðarhávaði
berst frá Reykjanesbraut yfir Efri
Flatir svo ekki verður lengur við
unað. Með fyrirsjáanlega vaxandi
umferð mun ástandið versna enn
frekar,“ segja íbúarnir. Þeir hafi lýst
áhyggjum sínum af auknum hávaða
frá umferð þegar Reykjanesbrautin
var tvöfölduð fyrir um það bil áratug.
„Fengust þau svör að þetta myndi
lagast með hljóðmanarstubb yfir
læknum og hljóðmön við Vífils
staðaveg. Þær aðgerðir hafa því
miður litlu breytt,“ segja íbúarnir
sem vilja hljóðmön við Reykjanes
braut á kaflanum frá Vífilsstöðum
að byggðinni í Molduhrauni. „Nánar
tiltekið að þeim hluta brautarinnar
sem snýr að Flatahverfi í Garðabæ,“
eins og segir í bréfinu.
Með hljóðmön segjast íbúarnir
telja að hávaðamengun í hverf
inu minnki til muna með auknum
lífsgæðum fyrir þá sem þar búa.
Útivistargildi Garðahrauns muni
aukast verulega. „Nýlega hafa verið
lagðir glæsilegir göngustígar um
hraunið, en því miður er hávaði
það mikill í hrauninu að náttúru
upplifun er takmörkuð.“
Bæjarráð Garðabæjar fól bæjar
stjóranum að skoða málið. – gar
Íbúar á Flötunum segja umferðargný
hafa magnast með Costco
Gríðarlegur um-
ferðarhávaði berst
frá Reykjanesbraut yfir
Efri-Flatir svo ekki verður
lengur við unað.
Íbúar á Sunnuflöt
2
0
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
8
-E
0
F
8
1
D
5
8
-D
F
B
C
1
D
5
8
-D
E
8
0
1
D
5
8
-D
D
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K