Fréttablaðið - 20.07.2017, Page 8
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Tjakkar á Múrbúðarverði
EP Pallettu-tjakkur
2 tonna lyftigeta
37.890
með PU hjólum kr 38.890
Rafmagnstjakkur 1,5 tonn verð frá
178.900 m.vsk
EP Galvaniseraður tjakkur
2 tonna lyftigeta
77.990
www.velasalan.is
S. 520 0000, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík
Bátar á sjó og vötn
NÝ SENDING
Nýr og glæsilegurTerhi
á frábæru verði
Terhi 475 BR
Vinsamlega leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar.
Utanborðsmótorar
Taktu þátt á
frettabladid.is/sumarleikur
fjarskipti „Síminn hefur ekki sætt
sig við að lúta sömu kröfum og aðrir
þjónustuaðilar og er það miður,“
segir í yfirlýsingu frá Orkuveitu
Reykjavíkur vegna gagnrýni for-
stjóra Símans á vinnubrögð Gagna-
veitunnar, dótturfyrirtækis OR.
Í Fréttablaðinu í gær var sagt frá
bréfasendingum Orra Haukssonar,
forstjóra Símans, til Orkuveitunnar.
Gagnrýnir Orri að Gagnaveitan neiti
samstarfi um lagningu og rekstur
ljósleiðara og að Míla, dóttur-
fyrirtæki Símans, fái ekki að kaupa
aðgang að völdum hluta kerfis
Gagnaveitunnar heldur standi ein-
ungis til boða að kaupa aðgang að
öllu kerfinu í heilu lagi. Segir hann
Gagnaveituna vinna gegn lögum og
misnota opinbert fé til að að hindra
samkeppni.
Orkuveitan segir hins vegar í yfir-
lýsingu sinni að starfsemi Gagna-
veitunnar grundvallist á lögum og
reglum. Félagið sé undir eftirliti
Póst- og fjarskiptastofunnar og Sam-
keppniseftirlitsins.
„Með tilkomu Ljósleiðarans
inn á fjarskiptamarkaðinn hefur
samkeppni aukist og valkostum
neytenda fjölgað verulega. Það er
óumdeild staðreynd. Póst- og fjar-
skiptastofnun hefur skilgreint Mílu
sem markaðsráðandi í fast-
línutengingum og hefur verið
það um langt árabil,“ segir OR sem
kveður það eitt af markmiðum
Gagnaveitunnar að efla samkeppni
á fjarskiptamarkaði. „Hefur árangur
fyrirtækisins sýnt fram á það og að
vera neytendum fagnaðarefni.“
Þá segir Orkuveitan að Gagnaveit-
an sé ekki markaðsráðandi í fastlínu-
tengingum. Það sé Míla hins vegar.
„Vegna þeirrar stöðu og vegna sáttar
sem Síminn/Míla gerðu við Sam-
keppniseftirlitið vegna brota hvíla
kvaðir á fyrirtækjunum umfram
önnur á markaði,“ segir Orkuveitan.
Í Fréttablaðinu í gær sagði forstjóri
Símans frá því að Kópavogsbær hafi
þurft að skikka Gagnaveituna til að
gefa Símanum kost á að vera með í
skurðum sem grafnir voru undir ljós-
leiðara í Kópavogi í júní svo að ekki
þyrfti að grafa upp sömu göturnar í
tvígang.
„Lausn fékkst í Kópavogi eftir að
Míla krafðist hlutdeildar í fram-
kvæmdum GR eftir að þær höfðu
verið fullhannaðar, leyfi íbúa fengin,
þær boðnar út og um þær samið,“
segir Orkuveitan. Þá hafi Gagna-
veitan lagt sig fram um að bjóða
Símanum aðgang að Ljósleiðaranum
á viðskiptalegum forsendum. „Rétt
eins og þeim sex fyrirtækjum sem nú
veiti um hann þjónustu í samkeppni
þeirra á milli.“ – gar
Síminn lúti sömu kröfum og aðrir gera
Með tilkomu
Ljósleiðarans inn
á fjarskiptamarkaðinn
hefur samkeppni aukist
og valkostum neytenda
fjölgað verulega. Það er
óumdeild staðreynd.
Orkuveita Reykjavíkur
katar Arabaríkin fjögur, sem beita
Katara nú viðskiptaþvingunum og
hafa slitið stjórnmálasambandi við
ríkið, hyggjast gera nýjar kröfur til
Katara. Ríkin, Sádi-Arabía, Egypta-
land, Barein og Sameinuðu arabísku
furstadæmin, settu fram þrettán
kröfur til Katara í síðasta mánuði
sem þeir vildu að Katarar uppfylltu,
ættu ríkin að aflétta þvingunum. Því
höfnuðu Katarar.
Fastafulltrúar ríkjanna fjögurra
hjá Sameinuðu þjóðunum héldu
fund með blaðamönnum í höfuð-
stöðvum SÞ í gær þar sem þeir til-
kynntu að nýju kröfurnar yrðu sex
talsins og öllu víðtækari en fyrr-
nefndar þrettán. Á meðal þeirra
verða kröfur um aukna skuld-
bindingu Katara í baráttunni gegn
hryðjuverkasamtökum og að hætta
að grafa undan stöðugleika við
Persaflóa.
Á fundinum kváðust fastafulltrú-
arnir vilja leysa deiluna á vinsam-
legan átt. Sagði fastafulltrúi Sádi-
Arabíu, Abdullah al-Mouallimi, að
utanríkisráðherrar ríkjanna hefðu
samþykkt sín á milli umræddar sex
kröfur á fundi í Kaíró, höfuðborg
Egyptalands, þann fimmta júlí.
„Auðvelt ætti að vera fyrir Katara
að samþykkja kröfurnar,“ sagði al-
Mouallimi.
Sádi-Arabinn sagði jafnframt
að kröfurnar væru ófrávíkjanlegar
og að málamiðlanir kæmu ekki til
greina. Hins vegar væru ríkin fjögur
til í að ræða við Katara um hvernig
yrði best að innleiða kröfurnar.
Athygli vakti að al-Mouallimi
sagði að það gæti reynst óþarft
að loka katarska fjölmiðlinum Al
Jazeera, líkt og upphaflegu kröf-
urnar gerðu ráð fyrir. Sagði hann
hins vegar að miðillinn þyrfti að
hætta að hvetja til ofbeldis og miðla
hatursáróðri. „Ef við getum náð því
markmiði án þess að loka Al Jazeera
er það í lagi.“
Upptökin að deilunni við Persa-
flóa má rekja til þeirrar sannfær-
ingar ríkjanna fjögurra að Katarar
styðji hryðjuverkasamtök. Þá er
Sádi-Aröbum einkar illa við hversu
góð samskipti Katara eru við stjórn-
völd í Íran.
Katarar tjáðu sig ekki um tilkynn-
ingu ríkjanna fjögurra í gær. Hafa
þeir jafnframt alltaf neitað því að
hafa styrkt hryðjuverkasamtök.
Persaflóadeilan hefur nú staðið
yfir í um sex vikur. Hafa Katarar
neyðst til þess að flytja inn mat og
drykk með skipum og flugvélum.
Áður en ríkið var beitt viðskipta-
þvingunum komu um áttatíu pró-
sent allra matvæla Katara frá ríkj-
unum fjórum. thorgnyr@frettabladid.is
Ríkin fjögur setja fram
nýjar kröfur til Katara
Arabaríkin fjögur, er beitt hafa Katara viðskiptaþvingunum í sex vikur, gera sex
nýjar kröfur til ríkisins. Áður voru kröfurnar þrettán. Þeim höfnuðu Katarar.
Meðal annars er deilt um meintan stuðning Katara við hryðjuverkasamtök.
Þessir úlfaldar eru á meðal fórnarlamba deilunnar. Þeir þurftu að ganga langa
leið til baka eftir að hafa verið meinuð innganga í Sádi-Arabíu. NordicphotoS/AFp
Auðvelt ætti að vera
fyrir Katara að
samþykkja kröfurnar.
Abdullah al-Moual-
limi, fastafulltrúi
Sádi-Arabíu hjá SÞ
2 0 . j ú l í 2 0 1 7 f i M M t U D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
0
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
8
-D
C
0
8
1
D
5
8
-D
A
C
C
1
D
5
8
-D
9
9
0
1
D
5
8
-D
8
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K