Útsýn - 15.10.1945, Page 3
r.i.-rx
HVAÐ
ER AÐ
GERAST?
Hvorki traust
né vantraust
Frá aðalfundi flokksstjómar
Alþýðuflokksins.
NYAFSTAÐINN er aðalfundur
flokksstjórnar Alþýðuflokksins. I
flokksstjórninni eiga sœti 50 ruanns,
þar af 25 úr Reykjavík og Hafnar-
firði og 25 víðsvegar af landinu. Uni
40 manns sóttu fundinn.
Formaður Alþýðuflokksins, Stefán
Jóh. Stefónsson, gaf í fundarbyrjun
skýrslu um störf flokksins o. fl„ en
ráðherrar flokksins, Emil Jónsson og
Finnur Jónsson, um stjórnmálasam-
starfið.
1 fyrstu rœðu sinni ræddi formað-
urinn ýtarlega um þátttöku sína í
stofnun hins nýja heildsölufyrirtækis
„Sölumiðstöð sænskra framleiðenda",
sem mjög hefur verið um rætt í blöð-
um undanfarið, og endaði ræðu sína
með orðum Marteins Lúthers: „Hér
stend eg og get ekki annað“.
Eftir að skýrslum forystumanna
flokksins var lokið, snerust svo að
segja allar umræður fundarins um
þetta eina mál. Átöldu ýmsir fundar-
manna þátttöku formannsins í verzl-
unarfyrirtæki þessu og töldu, að hún
myndi skaða flokkinn stórum. Aðrir
vörðu gerðir formannsins mjög ein-
dregið og kröfðust þess, að fundurinn
lýsti trausti á honum.
Engin tillaga kom þó fram, hvorki
um traust né vantraust, enda mun
hafa verið talið vafasamt um úrslit
slíkrar atkvæðagreiðslu.
í fundarlok var samþykkt eindregið
traust til ríkisstjórnarinnar, lýst fylgi
við tillögur um almannatryggingar,
ÚTSÝN
INNLENDAR
sem Haraldur Guðmundsson hafði
skýrt fyrir fundinum og kosin 7
manna nefnd til að semja kosningar-
stefnuskrá fyrir flokkinn.
Vildi ekki
styðja stjórnina
Fjórmenningarnir liafa sérstöðu
áfram.
Það vakti athygli í sambandi við
setningu Alþingis, að kosningu for-
seta þingsins var frestað í þrjá daga.
Gísli Sveinsson sýslumaður hefur ver-
ið forseti Sameinaðs Alþingis undan-
farin ár. Nú munu honum hafa verið
settir þeir kostir af flokki hans, að
liann lýsti sig fylgjandi ríkisstjórn-
inni, sem Sjálfstæðisflokkurinn styð-
ur. Ella yrði liann ekki endurkosinn
í þessa mestu virðirtgarstöðu þings-
ins.
Á síðasta þingi var Gísli í hópi
þeirra 5 þingmanna Sjálfstæðisflokks-
ins, sem þá vildu ekki styðja stjórn-
ina. Hinir fjórir voru Pétur Ottesen,
Jón Sigurðsson frá Reynistað, Þor-
steinn Þorsteinsson sýslumaður í
Dalasýslu og Ingólfur Jónsson frá
HelJu, en talið er, að hinn siðast-
nefndi hafi nú gengið í lið með
stjórninni.
Gísli mun hafa neitað að snúast til
liðs við stjórnina, enda varð hann af
forsetatigninni.
Þeir fjórmenningar munu halda
áfram að hafa sérstöðu innan Sjálf-
stæðisflokksins á Alþingi.
Manni einum varð að orði, þegar
hann heyrði fréttina um að Banda-
ríkin færu fram á að fá herbæki-
stöðvar á islandi: Mér finst að stjórn-
in okkar ætti að svara þessari mála-
leitan með því að bjóða Bandaríkjun-
um Grímsey.
Vér vitum ekki hvað maðurinn var
að liugsa. En er ekki vinátta hinna
„engilsaxnesku þjóða“, sem Vísir tal-
ar um, okkur meira virði en eyðisker
þetta?
FRÉTTIR
Sœnsku bátunum
seinkar um 3—6 mánuði
Verða ekki komnir fyrir
vetrarvertíð.
I Svíþjóð er verið að byggja
fiskibáta handa íslendingum fyr-
ir 20—25 milljónir króna. Bát-
arnir, 50 að tölu, áttu upphaflega
að vera komnir hingað fyrir síð-
ustu síldarvertíð, en nýlega hafa
borizt fréttir um, að þeim muni
enn seinka um 3—6 mánuði og
að þeir verði yfirleitt ekki komn-
ir fyrir næstu vetrarvertíð.
Bátarnir sjálfir eru tilbúnir. Voru
það þegar eftir síðustu áramót. Það
sem stendur á, eru vélarnar í þá. Af-
hending bátanna fyrir síldarvertíð,
eins og umsamið var, fórst fyrir
vegna málmiðnaðarverkfallsins i Sví-
þjóð á síðastl. vetri.
í ágúst tilkynntu umboðsmenn Is-
lendinga við smíði bátanna, þeir Ein-
ar Einarsson fyrrum skipherra, Bárð-
ur G. Tómasson, skipaverkfræðingur
og Ólafur Sigurðsson vélfræðingur, að
fyrstu bátarnir mundu verða tilbúnir
í október. Voru þá sendir vélamenn
héðan til þess að vera viðstaddir nið-
ursetningu vélanna. Var kaupendum
þá gefinn kostur á þrenns konar um-
búnaði á skrúfum skipanna. En er
til kom, urðu allir að taka þann um-
búnað, sem stytztan tíma tæki að
koma í bátana, gírskiptingu. Þegar sá
umbúnaður var prófaður á landi,
töldu umboðsmenn okkar liann óhæf-
an, en Svíar neituðu að taka mótmæli
þeirra til greina. Verður að fá úr
þeirri deilu skorið með reynslu á vél
í bát um nokkurn tíma. Tefst afhend-
ing bátanna af þeim sökum enn í 3
til 6 mánuði.
Er það mikið tjón, ef svo fer sem
nú lítur úl fyrir, að þessi mikla aukn-
ing fiskiskipaflotans verði ekki komin
fyrir vetrarvertíð.
Fyrirhugað var, að sænsku bátarnir
yrðu hin vönduðustu skip, enda kosta
3