Útsýn - 15.10.1945, Side 16
HIN ÖRA OG DAGVAXANDI SALA
ISIÆNDINGASAGNANNA
er með eindæmum og sýnir að íslenzka þjóðin vill fyrst og fremst eiga hina ágætu alþýðuútgáfu Sigurð-
ar Kristjánssonar af Islendingasögunum — hina gömlu og góðu Islendingasagnaútgáfu í brúnu káp-
unni, sem ávallt er ný.
Á þessu ári — árinu 1945 — hafa eftirtaldar Islendingasögur verið gefnar út að nýju og sendar í bóka-
verzlanirnar til viðbótar þeim Islendingasögum sem fyrir voru:
Egils saga Skallagrímssonar. Edda Snorra Sturlusonar
Hraínkels saga Freysgoða.
r • •
Fyrir nokkrum dögum kom í bókaverzlanir ný útgáfa af
Islendingaþáttum 42
Síðastliðinn fimmtudag kom ný útgáfa í bókaverzlanir af
Gunnlaugs sögu Ormstungu
AHar eru þessar Islendingasögur búnar undir prentun af Guðna Jónssyni magister
Þrátt fyrir það, að margar stórar Islendingasögur í alþýðuútgáfu Sigurðar Kristjánssonar hafa
verið gefnar út á þessu ári, þá eru þær allar seldar við svo vægu verða að ekkert annað útgáfufyrirtæki
getur boðið yður íslendingasögurnar fyrir neitt svipað verð, og er þó frágangur allur með ágætum.
Vegna endurtekinna fyrirspurna skal tekið fram að menn geta alls ekki orðið áskrifendur að al-
þýðuútgáfu Sigurðar Kristjánssonar af íslendingasögunum, en þér getið keypt Islendingasögurnar
ódýrt strax í dag — eina eða fleiri í senn.
Hvers virði er það að eiga Islendingasögurnar, ef Sæmundar edda og Snorra edda fylgja ekki með?
Athugið að ekkert útgáfufyrirtæki býður yður allar Islendingasögurnar ásamt Sæmundar eddu og
Snoddra eddu nema alþýðuútgáfa Sigurðar Kristjánssonar af Islendingasögunum.
Islendingasögurnar í alþýðuútgáfu Sigurðar Kristjánssonar eru prentaðar upp að nýju jafnóðum og
þær seljast upp — þess vegna er yður mögulegt að nota hin hagstæðu kostakjör og kaupa margar
Islendingasögur strax í dag við fyrirstríðs verði. — Munið að reynslan hefir þráfaldlega sýnt að þær
Islendingasögur, sem eru til í dag geta verið uppseldar á morgun.
Ekki missir sá, er fyrstur fcer!
Bókaverzlun Siguröar Kristjánssonar
BANKASTRÆTI 3.