Fréttablaðið - 12.10.2017, Side 4
ingar í ferðaþjónustu sem fjærst eru
suðvesturhorni landsins.
„Eftir Evrópumótið í fyrra sáum
við mikla aukningu í ferðaleitar
fyrirspurnum, sérstaklega frá
markaðssvæðum í Evrópu. Núna
eru strákarnir okkar á leið á HM þar
sem sviðið er enn stærra sem þeir
munu án efa nýta sér til fulls og við
njóta góðs af,“ segir Helga.
Hún telur ferðaþjónustuna hafa
fjárfest fyrir um 180 milljarða árin
2015 og 2016. „Því miður er ekki
hægt að segja það sama um stjórn
völd,“ segir Helga. „Til að tryggja
heilsársferðaþjónustu á Íslandi um
allt land verður meðal annars að
stórbæta samgöngur enda eru þær
lífæð ferðaþjónustunnar og sam
félagsins alls. Öruggar og tryggar
samgöngur eru undirstaða hag
sældar okkar allra.“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa
dóttir, ráðherra ferðamála, segir
mikilvægt að dreifa ferðamönnum
sem víðast svo allir landsmenn njóti
góðs af ferðaþjónustu allt árið. „Við
erum að vinna í því að auka milli
landaflug um Akureyri og Egilsstaði
en það verður að gerast á markaðs
legum forsendum. Vinna er í fullum
gangi við að dreifa ferðamönnum og
fjölga seglum úti um allt land,“ segir
Þórdís Kolbrún. sveinn@frettabladid.is
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
ALFA ROMEO STELVIO
EKKI BARA JEPPI. ALFA ROMEO.
SÝNING
LAUGARDAGINN
14. OKTÓBER
OPIÐ FRÁ 12 - 16
Leiðrétting
Í Markaðnum í gær sagði að
Hjörleifur Jakobsson og eiginkona
hans væru orðin einir stærstu
hluthafar Kviku eftir að hafa bætt
við sig um fimm prósenta hlut í
bankanum í gegnum safnreikning
Virðingar. Það er ekki rétt. Er beðist
velvirðingar á þeim mistökum. Þær
upplýsingar byggðust á uppfærðum
hluthafalista Kviku föstudaginn 6.
október þar sem sagði að þau hjónin
stæðu að baki 8,29 prósenta hlut
safnreiknings Virðingar.
Bandaríkin Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, spurði fylgjendur
sína á samfélagsmiðlinum Twitter
í gær á hvaða tímapunkti væri rétt
að reyna að fá útsendingarleyfi NBC
News fellt úr gildi.
Tístin komu í kjölfar fréttar NBC
um að forsetinn vildi að Bandaríkin
tífölduðu kjarnorkuvopnabúr sitt.
„Falska NBC skáldaði frétt um að ég
vildi tíföldun kjarnorkuvopnabúrs
okkar. Algjör skáldskapur. Skáld
aður til að gera lítið úr mér. NBC
= CNN,“ tísti forsetinn sem jafn
framt hefur haft horn í síðu frétta
stofu CNN og ítrekað kallað fréttir
hennar falskar.
Frétt NBC sem um ræðir er af
fundi, sem haldinn var í varnar
málaráðuneytinu í júlí, og er byggð
á frásögn ónefndra heimildar
manna. – þea
Vill svipta
NBC leyfinu
Donald Trump. NorDicphoTos/AFp
Ferðaþjónusta Góður árangur
íslensku landsliðanna í knattspyrnu
mun hafa þau áhrif að ferðamönnum
fjölgi áfram hér á landi þó hlutfallsleg
fjölgun verði ekki sú sama og síðustu
ár. Mikilvægt er að tryggja innviði og
samgöngur til að dreifa ferðamönn
um sem víðast að mati Helgu Árna
dóttur, framkvæmdastjóra Samtaka
ferðaþjónustunnar (SAF).
Umfjöllun um það afrek íslenska
karlalandsliðsins í knattspyrnu, að
hafa tryggt sér keppnisrétt á loka
keppni HM í Rússlandi næsta sumar
var að finna úti um allan heim. Þar
fer jákvæð landkynning sem bætist
við þá kynningu sem áfangastað
urinn Ísland hefur fengið síðustu
misseri.
Gistinóttum á Norður og Austur
landi fækkaði í ágústmánuði saman
borið við ágústmánuð í fyrra og vís
bendingar eru um að ferðamenn fari
styttri ferðir út úr höfuðborginni en
áður. Þannig nýtast illa þær fjárfest
Krafa um dreifingu ferðamanna
vegna þátttöku Íslands á HM
FjársjóðsLeit „Án þess að það hafi
áhrif á réttindi og aðgerðir Hapag
Lloyd AG með tilliti til eignarhalds
ins á verðmætum í flakinu eða á
skipinu viljum við ekki tjá okkur
frekar um málið að svo stöddu,“
segir Nils Haupt, framkvæmdastjóri
samskipta hjá þýska skipafélaginu
HapagLloyd AG sem telur sig eiga
flutningaskipið Minden.
Eins og fram hefur komið bíður
breska félagið Advanced Marine
Services nú leyfis Umhverfisstofn
unar hér á landi til að ná skáp með
verðmætum málmum úr Minden.
Fréttablaðið greindi frá því fyrir
viku að HapagLloyd gerði í bréfi
til Umhverfisstofnunar tilkall til
Minden. Félagið gerði ekki athuga
semd við útgáfu starfsleyfis til AMS.
Í síðustu viku sendi Fréttablaðið
HapagLloyd fyrirspurn um viðhorf
fyrirtækisins til þeirrar fyrirætlunar
AMS að færa skápinn umrædda til
Bretlands og í vald stofnunarinnar
UK Reciever of Wreck sem segja eigi
til um hver sé réttmætur eigandi.
Einnig var spurt hvort Hapag
Lloyd vildi að farið væri með málið á
annan hátt og hvort fyrirtækið hefði
vitneskju eða einhverjar kenningar
um innihald skápsins.
Sem fyrr segir vill Nils Haupt hjá
HapagLloyd ekki svara þessum
spurningum á þessu stigi. Hins
vegar staðfestir Haupt það sem fram
kom í Fréttablaðinu fimmtudaginn
5. október.
„Við getum staðfest að Hapag
Lloyd AG skrifaði bréf til Umhverfis
stofnunar Íslands og til AMS og lýsti
áhuga sínum á flaki SS Minden og
eign sinni á hverjum þeim verðmæt
um sem þar gætu endurheimst,“
segir í svari Haupts. – gar
Þýska skipafélagið svarar ekki frekar um fjársjóðsleitina í bili
Landkynning Íslands vegna afreka Gylfa sigurðssonar og félaga mun fjölga ferðafólki á Íslandi. FréTTAbLAðið/ErNir
Áhöfn ss Minden sökkti skipinu 1939 til að forða því frá að falla í hendur
breta. ss porta, sem myndin sýnir, var systurskip Minden. MyND/WikipEDiA
helga Árnadóttir,
framkvæmda-
stjóri samtaka
ferðaþjónust-
unnar
Þórdís kolbrún
reykfjörð Gylfa-
dóttir, ferða-
málaráðherra
Aukin landkynning í
kjölfar góðs árangurs
íslensku landsliðanna
í knattspyrnu kallar á
aðgerðir stjórnvalda til
að dreifa ferðamönnum
betur um landið. Ráð-
herra ferðamála segir
vinnu í fullum gangi.
Framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónust-
unnar segir mikilvægt
að tryggja heilsársferða-
þjónustu um allt land.
1 2 . o k t ó B e r 2 0 1 7 F i M M t u d a g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
1
2
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
F
4
-8
9
1
0
1
D
F
4
-8
7
D
4
1
D
F
4
-8
6
9
8
1
D
F
4
-8
5
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K