Fréttablaðið - 12.10.2017, Side 14
Finnski ísbrjóturinn
MSV Nordica
13. – 15. október
milli klukkan 10:00 – 14:00
Gamla Höfnin, Miðbakki
BOÐ TIL ALMENNINGS
MSV Nordica hefur siglt bæði norðaustur
og norðvestur leiðirnar í gegnum íshafið
og verður til sýnis fyrir almenning.
Ísbrjóturinn kemur í tilefni alþjóðaþings
Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle,
sem haldið er í Hörpu, 13.-15. október, 2017.
Allir velkomnir
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands, segir að fast-
eignaverð sem hlutfall af byggingar-
kostnaði nálgist nú sögulegar hæðir.
Það sé ákall til verktaka um að byggja
fleiri íbúðir. „Það mun koma tölu-
vert framboð á fasteignamarkaðinn
á næstu árum. Ég hef enga trú á öðru
en að verktakar muni svara þessari
miklu eftirspurn,“ segir hann.
Ásgeir bendir á að á sama tíma og
stórir árgangar ungs fólks hafi komið
inn á fasteignamarkaðinn hafi
framleiðslugeta í byggingariðnaði
skroppið saman eftir fall fjármála-
kerfisins 2008. Vanalega hafi verið
byggðar um 1.000 til 1.500 íbúðir á
höfuðborgarsvæðinu á ári en í kjöl-
far hrunsins hafi orðið nær algert hlé
á nýbyggingum. Markaðurinn hafi
vart verið með lífsmarki allt fram til
ársins 2014.
„Það gekk mun hægar að blása
lífi í byggingariðnaðinn en menn
bjuggust við. Mörg verktakafyrir-
tæki fóru auðvitað illa út úr hruninu
og þá hefur athyglin einkum beinst
að hótelframkvæmdum, en ekki
uppbyggingu íbúða. Það er ástæðan
fyrir þessum skorti.“
Erfitt sé fyrir stjórnmálamenn að
ætla að bjarga málunum. Vanda-
málið sé einfaldlega ónógt framboð.
„Það er engin lausn að ætla að lána
fólki meiri pening til þess að kaupa
sér íbúð, eins og gert var á árunum
fyrir hrun. Því ef framboðið eykst
ekki mun aukið lánsfjármagn aðeins
leiða til þess að fleiri peningar elta
sama fjölda íbúða og verðið hækkar
þá bara meira.“
Ásgeir tekur fram að í ljósi þess
að fasteignaverð, á mælikvarða
byggingarkostnaðar, stefni í sögu-
legar hæðir sé fyrir hendi mikill hvati
fyrir verktaka til þess að byggja fleiri
íbúðir. Þær íbúðir muni væntanlega
skila sér á markaðinn eftir fáein ár.
„Engu að síður er mikilvægt að
verktakar geri sér ekki vonir um að
fasteignaverð haldi áfram að hækka.
Það er ekki endilega víst að það ger-
ist. Það veltur mikið á launaþróun-
inni og margir eru nú reynslunni
ríkari eftir sveiflur síðustu ára og vilja
ekki lenda í því að kaupa á toppnum.
Um leið og hægir á launahækkunum
mun hægja á fasteignaverðshækkun-
um. Og eins og sakir standa er lítið ef
nokkurt svigrúm til launahækkana.“
kristinningi@frettabladid.is
Engin lausn að
lána meira fé
Dósent í hagfræði segir vandann á fasteignamarkaði
felast í framboðsskorti. Lausnin sé ekki að lána fólki
meira fé. Von sé á fjölmörgum íbúðum á markaðinn.
Íbúðaverð hefur hækkað um níutíu prósent á höfuðborgarsvæðinu á síðustu
sjö árum. Ástæðan er fyrst og fremst mikill og viðvarandi skortur á framboði
íbúðarhúsnæðis í kjölfar hrunsins 2008. Fréttablaðið/anton brink
Það er engin lausn
að ætla að lána fólki
meiri pening til þess að
kaupa sér íbúð, eins og gert
var á árunum
fyrir hrun.
Ásgeir Jónsson,
dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
4
4
6
2
VIÐEIGANDI AÐLÖGUN
Á VINNUMARKAÐI
Aðalfyrirlesari er Anna Lawson, prófessor í lögum
við Háskólann í Leeds á Englandi og sérfræðingur
í viðeigandi aðlögun. Árið 2014 varð hún fyrst
blindra kvenna á Bretlandseyjum til að hljóta
prófessorsnafnbót í lögfræði.
DAGSKRÁ
Ellen Calmon, formaður ÖBÍ, flytur ávarp
Anna Lawson flytur erindi um viðeigandi aðlögun á vinnumarkaði
Halldór Sævar Guðbergsson, atvinnu- og virkniráðgjafi fyrir blinda og
sjónskerta og varaformaður ÖBÍ, flytur erindi um stöðu mála á Íslandi, meðal
annars út frá eigin reynslu
Anna Lawson svarar spurningum fundargesta
Fundarstjóri: Ingveldur Jónsdóttir, MS-félagi Íslands
Málþing um viðeigandi aðlögun á vinnumarkaði og
starfsgetumat föstudaginn 13. október, kl. 13-15
á Icelandair hótel Reykjavík Natura.
MARKAÐURINN
1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F I M M t U D A G U r14 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
1
2
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
F
4
-A
B
A
0
1
D
F
4
-A
A
6
4
1
D
F
4
-A
9
2
8
1
D
F
4
-A
7
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K