Fréttablaðið - 12.10.2017, Síða 14

Fréttablaðið - 12.10.2017, Síða 14
Finnski ísbrjóturinn MSV Nordica 13. – 15. október milli klukkan 10:00 – 14:00 Gamla Höfnin, Miðbakki BOÐ TIL ALMENNINGS MSV Nordica hefur siglt bæði norðaustur og norðvestur leiðirnar í gegnum íshafið og verður til sýnis fyrir almenning. Ísbrjóturinn kemur í tilefni alþjóðaþings Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle, sem haldið er í Hörpu, 13.-15. október, 2017. Allir velkomnir Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, segir að fast- eignaverð sem hlutfall af byggingar- kostnaði nálgist nú sögulegar hæðir. Það sé ákall til verktaka um að byggja fleiri íbúðir. „Það mun koma tölu- vert framboð á fasteignamarkaðinn á næstu árum. Ég hef enga trú á öðru en að verktakar muni svara þessari miklu eftirspurn,“ segir hann. Ásgeir bendir á að á sama tíma og stórir árgangar ungs fólks hafi komið inn á fasteignamarkaðinn hafi framleiðslugeta í byggingariðnaði skroppið saman eftir fall fjármála- kerfisins 2008. Vanalega hafi verið byggðar um 1.000 til 1.500 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu á ári en í kjöl- far hrunsins hafi orðið nær algert hlé á nýbyggingum. Markaðurinn hafi vart verið með lífsmarki allt fram til ársins 2014. „Það gekk mun hægar að blása lífi í byggingariðnaðinn en menn bjuggust við. Mörg verktakafyrir- tæki fóru auðvitað illa út úr hruninu og þá hefur athyglin einkum beinst að hótelframkvæmdum, en ekki uppbyggingu íbúða. Það er ástæðan fyrir þessum skorti.“ Erfitt sé fyrir stjórnmálamenn að ætla að bjarga málunum. Vanda- málið sé einfaldlega ónógt framboð. „Það er engin lausn að ætla að lána fólki meiri pening til þess að kaupa sér íbúð, eins og gert var á árunum fyrir hrun. Því ef framboðið eykst ekki mun aukið lánsfjármagn aðeins leiða til þess að fleiri peningar elta sama fjölda íbúða og verðið hækkar þá bara meira.“ Ásgeir tekur fram að í ljósi þess að fasteignaverð, á mælikvarða byggingarkostnaðar, stefni í sögu- legar hæðir sé fyrir hendi mikill hvati fyrir verktaka til þess að byggja fleiri íbúðir. Þær íbúðir muni væntanlega skila sér á markaðinn eftir fáein ár. „Engu að síður er mikilvægt að verktakar geri sér ekki vonir um að fasteignaverð haldi áfram að hækka. Það er ekki endilega víst að það ger- ist. Það veltur mikið á launaþróun- inni og margir eru nú reynslunni ríkari eftir sveiflur síðustu ára og vilja ekki lenda í því að kaupa á toppnum. Um leið og hægir á launahækkunum mun hægja á fasteignaverðshækkun- um. Og eins og sakir standa er lítið ef nokkurt svigrúm til launahækkana.“ kristinningi@frettabladid.is Engin lausn að lána meira fé Dósent í hagfræði segir vandann á fasteignamarkaði felast í framboðsskorti. Lausnin sé ekki að lána fólki meira fé. Von sé á fjölmörgum íbúðum á markaðinn. Íbúðaverð hefur hækkað um níutíu prósent á höfuðborgarsvæðinu á síðustu sjö árum. Ástæðan er fyrst og fremst mikill og viðvarandi skortur á framboði íbúðarhúsnæðis í kjölfar hrunsins 2008. Fréttablaðið/anton brink Það er engin lausn að ætla að lána fólki meiri pening til þess að kaupa sér íbúð, eins og gert var á árunum fyrir hrun. Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands E N N E M M / S ÍA / N M 8 4 4 6 2 VIÐEIGANDI AÐLÖGUN Á VINNUMARKAÐI Aðalfyrirlesari er Anna Lawson, prófessor í lögum við Háskólann í Leeds á Englandi og sérfræðingur í viðeigandi aðlögun. Árið 2014 varð hún fyrst blindra kvenna á Bretlandseyjum til að hljóta prófessorsnafnbót í lögfræði. DAGSKRÁ Ellen Calmon, formaður ÖBÍ, flytur ávarp Anna Lawson flytur erindi um viðeigandi aðlögun á vinnumarkaði Halldór Sævar Guðbergsson, atvinnu- og virkniráðgjafi fyrir blinda og sjónskerta og varaformaður ÖBÍ, flytur erindi um stöðu mála á Íslandi, meðal annars út frá eigin reynslu Anna Lawson svarar spurningum fundargesta Fundarstjóri: Ingveldur Jónsdóttir, MS-félagi Íslands Málþing um viðeigandi aðlögun á vinnumarkaði og starfsgetumat föstudaginn 13. október, kl. 13-15 á Icelandair hótel Reykjavík Natura. MARKAÐURINN 1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F I M M t U D A G U r14 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð 1 2 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 4 -A B A 0 1 D F 4 -A A 6 4 1 D F 4 -A 9 2 8 1 D F 4 -A 7 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 7 2 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.