Fréttablaðið - 12.10.2017, Side 47
Sameignarfélagið Faxaflóahafnir, sem er að mestu í eigu Reykjavíkur borgar, hefur nánast
hneppt Hvalfjörð í fjötra með eignar
haldi sínu á Grundartanga þar sem
hvert mengandi iðjuverið á fætur
öðru hefur risið, fyrir tilstilli Faxa
flóahafna. Eitt þeirra, GMR, hefur lagt
upp laupana við lítinn glæsibrag. Sér
kennilegt er að Reykjavík þurfi að fara
í annað sveitarfélag með óhreinan
iðnað. Borgin sem fékk náttúru og
umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs
2014 hefur falið andlit sitt að þessu
leyti bak við Faxaflóahafnir.
Mengun frá iðjuverunum á
Grundar tanga hefur haft verulega
neikvæð áhrif á lífríkið, búskap,
heilsu dýra, ferðaþjónustu, útivist og
lífsgæði íbúa við allan Hvalfjörð, sem
er ekki lengur hreint svæði. Mengandi
efni í andrúmslofti, vatni, gróðri og
lífverum eru í boði Faxaflóahafna.
Þau sveitarfélög sem einnig eiga hlut
í Faxaflóahöfnum virðast til í hvað
sem er, séu peningar í boði. Þá er ekki
verið að velta fyrir sér „smámunum“
svo sem mati á umhverfisáhrifum eða
rækilegri úttekt á afleiðingum meng
unarinnar. Menn virðast tilbúnir til
að trúa hverju sem er og skýla sér
á bak við innlendar eftirlitsstofn
anir sem hafa sýnt að þær láta hvorki
náttúruna njóta vafans né leggjast í
rannsóknir sem staðfest geti að hið
mikla umburðarlyndi þeirra gagnvart
mengandi iðjuverum sé réttlætanlegt.
Nítjándi september síðastliðinn
markaði tímamót varðandi stóriðju
hérlendis, en þann dag féll Silicor
Materials formlega frá samningum
við Faxaflóahafnir um aðstöðu fyrir
iðjuver sitt á Grundartanga. Áður
hafði Silicor Materials, sem dregur
sögulegan slóða vanefnda á eftir sér,
haldið Faxaflóahöfnum volgum í
nokkur ár með því að veifa hund
ruðum atvinnutækifæra framan í
viðsemjendur sína á Íslandi.
Ekki er ljóst á hvaða róli vísinda
samfélagið var meðan á þessu stóð.
Vitað var að um tilraun í framleiðslu
sólarkísils var að ræða. Engir aðrir
en Silicor Materials sjálft og fulltrúar
þess á Íslandi gáfu upplýsingar um
framleiðsluferilinn. Engin til þess
bær, hlutlaus erlend stofnun virðist
hafa verið fengin til að meta mögu
leika Silicor Materials til að standa
undir væntingum, hvorki hvað varð
aði framleiðsluna, fjármögnun né
orkukaup. Silicor Materials átti sviðið.
Almenningur ber kostnaðinn
Eðli málsins samkvæmt mun
almenningur bera kostnað vegna
undirbúnings fyrir Silicor Materials
á Grundartanga sem og vegna undir
búnings fyrir væntanlega fólksfjölgun
vegna iðjuversins í nálægu þéttbýli.
Það er ástæða til að óttast að sam
eignarfélagið Faxaflóahafnir, sem
hefur verið blint á að í firðinum býr
fólk sem á rétt á hreinu umhverfi eins
og aðrir borgarar þessa lands, reyni að
krækja í enn eitt mengandi iðjuverið
til handa Hvalfirði. Lögmál frum
skógarins, þar sem sá sterkari étur
þann vanmáttugri, gæti enn um sinn
orðið leiðarljós Faxaflóahafna, þrátt
fyrir að sameignarfélagið hafi þurft
að lúta í gras eftir samskipti sín við
Silicor Materials.
Saga Silicor Materials á Íslandi
hefði getað orðið lengri og með
meira tjóni en orðið er. Gott er að
þessu máli er lokið. En vert er að
minnast þess að Faxaflóahafnir lögð
ust gegn því að Silicor þyrfti að sæta
mati á umhverfis áhrifum. Svo mikil
var trúgirnin og flumbrugangurinn.
Eftir er að sjá hvort Faxaflóahafnir
muni læra af reynslunni og verða
umhverfisvænni framvegis. Félagið
þyrfti að einbeita sér að því í alvöru að
koma böndum á mengun frá Elkem,
Norðuráli og Kratusi sem leigja land
Faxaflóahafna á Grundartanga, sem
og mengun frá gríðarlegri umferð
flutningaskipa um Hvalfjörð. Það
myndi bæta ásýnd Reykjavíkurborgar
og annarra eigenda Faxaflóahafna.
Faxaflóahafnir og lögmál
frumskógarins
Ragnheiður
Þorgrímsdóttir
Kúludalsá,
Hvalfirði
Saga Silicor Materials á Ís
landi hefði getað orðið lengri
og með meira tjóni en orðið
er. Gott er að þessu máli er
lokið. En vert er að minnast
þess að Faxaflóahafnir lögð
ust gegn því að Silicor þyrfti
að sæta mati á um hverfis
áhrifum. Svo mikil var trú
girnin og flumbrugangurinn.
Mundir þú eftir að
bursta og skola í morgun?
GUM eru hágæða tannvörur
tannlæk
nar
mæla m
eð
GUM
tannvör
um
... fæst í næsta apóteki
og helstu stórmörkuðum
allar upplýsingar
á www.icecare.is
MERKIÐ
MITT
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 27F i M M T u D A G u R 1 2 . o k T ó B e R 2 0 1 7
1
2
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
F
4
-B
A
7
0
1
D
F
4
-B
9
3
4
1
D
F
4
-B
7
F
8
1
D
F
4
-B
6
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K