Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 34
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Saulius Jekeliunas er aldursforseti Dekkverks og algjörlega ómissandi starfsmaður. Aron Máni að negla eins og enginn sé morgundagur- inn. Allt á fullu hjá Gylfa við að maka á dekkin. Dekkverk var stofnað árið 2009 í Garðabæ en stofn-andi fyrirtækisins, Guð- mundur Örn Guðjónsson, átti sér þann draum að selja dekk á viðráðanlegri verðum en tíðkaðist þá auk þess sem hann sá líka tækifæri í breyttum opnunartíma. Árið 2013 kom Jón Haukdal Þor- geirsson að rekstri fyrirtækisins samfara því sem Guðmundur hóf að sinna öðrum verkefnum. Jón segist hafa fylgt sömu hugmynda- fræði og Guðmundur frá upphafi enda óþarfi að breyta því sem vel gengur. „Þegar Guðmundur opnaði Dekkverk rak hann fyrirtækið á þeirri hugmyndafræði að bjóða lægstu verðin sem hægt var að bjóða upp á auk þess sem opið var milli kl. 10 og 19 alla daga sem var nýtt á þeim tíma. Óhætt er að segja að fyrirtækið hafi ekki aflað sér mikilla vinsælda hjá keppinaut- unum fyrir vikið.“ Fyrirtækið fór fljótlega á flug þrátt fyrir að auglýsa lítið sem ekkert. „Ánægðir viðskiptavinir voru besta auglýsingin og Dekk- verk stækkaði jafnt og þétt á næstu árum. Samkeppnisaðilar okkar tóku vel eftir breyttri kauphegðun neytenda sem keyptu margar vinsælar dekkjategundir á alveg hlægilega góðum verðum.“ Þjónustustigið hækkað Fyrir þremur árum var stigið stórt skref þegar Dekkverk opnaði annað útibú við Nýbýlaveg 2 í Kópavogi, á sama stað og Toyota var með þjónustuverkstæði sitt áður. „Þetta var mikið stökk því sama ár tryggði Dekkverk sér umboðið fyrir Westlake-dekkin. Annað stórt stökk var síðan tekið í haust þegar við ákváðum að loka Dekkverki í Garðabæ, færa alla þjónustu á Nýbýlaveginn og auka þjónustuna um leið. Mörgum föstum viðskiptavinum okkar í Garðabænum þótti það miður en ég held að þegar þeir sjá að við erum enn gamla góða Dekkverk, bara á öðrum stað, þá komi nú gamla góða brosið aftur. Um leið breyttum við opnunartíma um helgar en nú er opið milli kl. 12 og 16 bæði laugardaga og sunnudaga.“ Sterkari innviðir Í dag býður Dekkverk líka upp á viðgerðar- og smurþjónustu og því þurfti að fjölga starfsmönnum, segir Jón. „Við þurftum að ráða fleiri starfsmenn en hafa sést hér áður. Húsnæðið stækkaði og þjónustuúrvalið breikkaði. Fyrir vikið voru starfsmenn í smá tíma að vaxa inn í það hlutverk en nú gengur allt eins og í sögu. Núna erum við því að sjá hvernig Dekk- verk ætlar að starfa í framtíðinni og er þetta gert með sterkari inn- viðum og þéttara eftirliti með þeim verkum sem eru í gangi hverju sinni.“ Dekkverk býður upp á gott úrval af bæði vetrar- og heilsársdekkjum að sögn Jóns. „Við ráðleggjum viðskiptavinum með val á réttum dekkjum. Vetrardekk eru venju- lega negld dekk á meðan heils- ársdekk eru óneglanleg dekk en það er hægt að fá vetrardekk sem er ekki búið að negla og nota þau sem heilsársdekk. Einnig bjóðum við upp á rúðuþurrkur, rúðuvökva, rafgeyma, perur og aðrar vörur sem fylgja gjarnan vetrartímanum.“ Góð þjónusta Það er harðnandi samkeppni á dekkjamarkaði en Dekkverk hefur alltaf getað státað af sveigjanlegri þjónustu, segir Jón. „Stundum fæst ekki það sem viðskiptavinur vill fá og þá höfum við oftast stokkið til og reddað málum, jafnvel þótt það sé utan vinnutíma eða við höfum keyrt vörur í heimahús. Ef ákveðin dekk fást ekki hjá okkur pöntum við þau viðskiptavinum að kostn- aðarlausu. Við kannski auglýsum það ekki sérstaklega en liðlegheit og sveigjanleiki einkennir svo sannarlega rekstur okkar.“ Hann segir Dekkverk alltaf leitast við að bæta þá frábæru þjónustu sem fyrirtækið hefur boðið upp á undanfarin ár. „Það er alltaf erfitt að halda í starfskraftinn eftir stóru tarnirnar en við gerum okkar besta til að halda í þessa frá- bæru stráka. Við erum með stórt og flott húsnæði og í augnablikinu er að fara mikið pláss til spillis. Um þessar mundir erum við þó á fyrstu stigum í að stækka reksturinn inn í þetta rými. Vonandi verður það þrifalegra heldur en verkstæðis- hlutinn okkar. Annars erum við bara stoltir af íslensku landsliðs- strákunum okkar í fótbolta eftir sigurinn á mánudaginn. Við hér á Dekkverki ætlum svo sannarlega að fylgja þeim eftir alla leið næsta sumar.“ Nánari upplýsingar má finna á www.dekkverk.is. Ánægðir viðskipta- vinir voru besta auglýsingin og Dekkverk stækkaði jafnt og þétt á næstu árum. Jón Haukdal Þorgeirsson JEPPADEKK fyrir felgustærðir 15 - 16 - 17 - 18 og 20 tommur Sumar stærðir eru fáanlegar sem burðardekk (D,E). Icetrack ehf. Sími 773 4334 · mtdekk@mtdekk.is www.mtdekk.is 2 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . o K tó B e R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R VetRARDeKK 1 2 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 4 -A 1 C 0 1 D F 4 -A 0 8 4 1 D F 4 -9 F 4 8 1 D F 4 -9 E 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.