Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 6
NeyteNdur Það munar 90 pró-
sentum á hæsta og lægsta verðinu
á umfelgun fyrir dæmigerðan fólks-
bíl og allt að 120 prósentum á verði
vetrardekkja. Þetta leiddi verðathug-
un Fréttablaðsins hjá tíu dekkjaverk-
stæðum á höfuðborgarsvæðinu í ljós.
Nú þegar næturfrost er víða farið að
að láta á sér kræla eru margir farnir
að huga að því að setja vetrardekkin
undir.
Fréttablaðið byggði verðathugun
sína á forsendum könnunar FÍB frá
því fyrir ári. Miðað er við meðal-
fólksbíl á álfelgum með hjóla- og
dekkjastærð 205/55 R16, sem FÍB
segir eina algengustu stærðina undir
fólksbílum hér á landi. Valin voru 9
fyrirtæki af höfuðborgarsvæðinu úr
umfelgunarverðkönnun ASÍ frá því
í apríl síðastliðnum, en verð kannað
hjá Costco að auki sem ekki hafði
opnað þegar ASÍ gerði sína athugun.
Mörg fyrirtæki brugðust við komu
Costco á dekkjasölumarkað með
verðlækkunum fyrr á þessu ári.
Hafa ber í huga að ekki var lagt
mat á gæði þjónustu né tegund
dekkja. Aðeins var kannað verðlista-
verð á því að skipta um fjögur dekk á
þessum meðalbíl og síðan óskað eftir
Tuga prósenta verðmunur á
vetrardekkjum og umfelgun
Vetrarösin á dekkjaverkstæðum fer að bresta á en töluverðu getur munað á verði fyrir dekkjaskiptin. Fréttablaðið/Vilhelm
Umfelgun Vetrardekk tegund
Ódýrustu
dekkin (4)
heildarverð
(umfelgun og dekk)
titancar 5.000 kr. Iceblazer 49.600 kr. 54.600 kr.
Dekkverk 6.400 kr. Goodride 32.000 kr. 38.400 kr.
bílkó 6.460 kr. Sailon Blazer 49.600 kr. 56.060 kr.
Vaka 7.581 kr. Rovelo 34.400 kr. 51.981 kr.
hjólb.verkst.
Sigurjóns 7.650 kr. Fulda 46.000 kr. 53.650 kr.
Nesdekk 7.890 kr. Interstate 40.000 kr. 47.890 kr.
Sólning 7.900 kr. Torque 35.992 kr. 43.892 kr.
max1 9.200 kr. Nokian 51.960 kr. 61.160 kr.
N1 9.493 kr. Westlake 37.960 kr. 47.453 kr.
Costco Frítt með dekkjum Michelin 70.396 kr. 70.396 kr.
Mesti munur kr. 4.493 kr. 38.396 kr 31.996 kr.
Mesti munur % 90% 120% 83%
Þetta kostar umfelgun og ódýrustu vetrardekkin
GLERAUGU
MEÐ GLAMPAVÖRN
Bluestop gleraugu veita vörn
gegn skaðlegum blágeislum
sem símar, spjaldtölvur og
flúorljós gefa frá sér. Bluestop
verndar augun, vinnur gegn
augnþreytu og virkar sem forvörn
gegn hrörnun í augnbotnum
og skýi á augasteini. Þú færð
Bluestop gleraugu í Augastað.
BLUE
STOP
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S:587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
VIÐSKIPtI Norska fiskeldisfyrirtækið
NTS ASA hyggst festa kaup á 45,2
prósenta hlut í Fiskeldi Austfjarða,
sem stundar fiskeldi í Berufirði og
Fáskrúðsfirði. Seljandi er annað
norskt fyrirtæki, MNH Holding.
NTS á nú þegar 16,9 prósenta hlut
í íslenska fiskeldisfyrirtækinu í gegn-
um dótturfélag sitt, Midt-Norsk Hav-
bruk, og mun því eiga ráðandi 62,1
prósents hlut eftir að kaupin ganga
í gegn síðar á árinu.
Kaupverðið mun ráðast af þeim
leyfum sem Fiskeldi Austfjarða fær
til laxaframleiðslu.
NTS greiðir að lágmarki 73,5 millj-
ónir norskra króna, sem jafngildir
um 965 milljónum íslenskra króna,
fyrir hlutabréfin, en ef Fiskeldi Aust-
fjarða fær leyfi til aukinnar fram-
leiðslu á næstu tíu árum gæti kaup-
verðið hækkað í allt að 294 milljónir
norskra króna eða sem nemur 3,9
milljörðum íslenskra króna.
Fisk eldi Aust fjarða hefur nú leyfi
til þess að slátra 11 þúsund tonnum
á ári í Berufirði og Fáskrúðsfirði,
en fyrirtækið áætlar að auka árlega
slátrun úr fiskeldinu í 21 þúsund
tonn. Gera langtímaáætlanir fyrir-
tækisins ráð fyrir allt að 54 þúsund
tonna framleiðslu.
Fram kom í skýrslu starfshóps um
stefnumótun í fiskeldi, sem skilaði
Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur
sjávarútvegsráðherra skýrslu í ágúst-
mánuði, að nær öll erlend fjárfesting
í íslensku laxeldi kæmi frá norskum
fiskeldisfyrirtækjum.
Ljóst væri að erlendir fjárfestar
hefðu fjármagnað uppbyggingu
sjókvíaeldis þegar innlent fjármagn
til slíkra fjárfestinga var ekki í boði.
„Jafnframt hafa erlendir fjárfestar
miðlað af reynslu sinni og þekk-
ingu og nýtt viðskiptasambönd
sín í rekstri fiskeldis hér á landi.
Engum vafa er undirorpið að upp-
bygging íslensks fiskeldis undan-
farin ár byggist á þessari þátttöku
erlendra fjárfesta. Þessi uppbygging
fiskeldisins hefur ekki aðeins skilað
beinum fjárfestingum til landsins
heldur einnig leitt af sér óbein áhrif
í formi afleiddra starfa sem tengjast
fiskeldi,“ sagði í skýrslunni. – kij
Eignast meirihluta í Fiskeldi Austfjarða
Fiskeldi austfjarða er með eldi í berufirði og Fáskrúðsfirði. Fréttablaðið/GVa
965
milljónir króna að lágmarki
eru greiddar fyrir 45,2 pró-
senta hlut í FA.
62,1%
hlutafjár í Fiskeldi Austfjarða
verður síðar á árinu komið í
hendur norska fyrirtækisins
NTS ASA.
MjaNMar Æðsti erindreki Samein-
uðu þjóðanna í Asíuríkinu Mjanmar
hefur verið kallaður heim. Um þetta
tilkynntu Sameinuðu þjóðirnar í
gær.
Erindrekinn sem um ræðir,
Renata Lok-Dessallien, var mið-
punktur rannsóknar BBC í síðasta
mánuði þar sem hún var sögð
kæfa umræður innan Sameinuðu
þjóðanna um stöðu þjóðflokks
Rohingja í Mjanmar.
Jafnframt leiddi rannsóknin í ljós
að hún hefði reynt að koma í veg
fyrir að starfsmenn mannréttinda-
baráttusamtaka heimsæktu ákveðin
svæði í Mjanmar.
Rúmlega hálf milljón Rohingja
hefur flúið til Bangladess frá því í
ágúst. Mannréttindastjóri Samein-
uðu þjóðanna segir Rohingja sæta
ofsóknum í heimalandinu. Herinn í
Mjanmar ráðist á þá, taki þá af lífi án
dóms og laga og brenni bæi þeirra
til grunna.
Í frétt BBC af ákvörðun SÞ kemur
fram að heimildarmenn í höfuð-
borginni Yangon fullyrði að ákvörð-
unin byggist á því að Lok-Dessallien
hafi ekki haft mannúðarsjónarmið í
forgrunni í starfi sínu.
Stóll erindrekans hefur verið
heitur undanfarna mánuði en fyrir
tveimur vikum sagði í tilkynningu
frá framkvæmdastjóra SÞ að Lok-
Dessallien nyti fulls trausts. – þea
Erindreki SÞ
kallaður frá
Mjanmar
Faðir syrgir dóttur sem fórst á flótta.
NorDiCphotoS/aFp
Fréttablaðið kannaði
verðið á umfelgun og
ódýrustu tegund vetrar-
dekkja hjá tíu fyrir-
tækjum á höfuðborgar-
svæðinu. Munar 90
prósentum á hæsta og
lægsta verðinu á umfelg-
un og 120 prósentum á
dekkjum. Umfelgun er
innifalin í verði dekkja
hjá Costco en mánaðar-
bið er eftir því að fá þau
sett undir bílinn.
verðinu á ódýrustu tegund ónegldra
vetrardekkja af áðurnefndri stærð á
hverjum stað fyrir sig.
Ódýrast var að láta skipta um dekk
hjá fyrirtækinu Titancar á Smiðju-
vegi í Kópavogi, eða 5.000 krónur
sem var einnig lægsta verðið í verð-
könnun ASÍ í apríl. Næstódýrastir
voru Dekkverk á Nýbýlavegi í Kópa-
vogi, með 6.400 krónur.
Dýrast er að láta N1 skipta um
dekkin eða 9.493 krónur. Þar var
bent á að N1 korthafar fengju þó
afslátt af því verði. Næstdýrastir eru
Max 1, þar sem umfelgunin kostar
9.200 krónur.
Hjá Costco er ekki hægt að kaupa
bara umfelgun, en hún er innifalin
í verði dekkjaumgangsins. Það þarf
því að kaupa dekkin þar til að fá fría
umfelgun. Þar fengust sömuleiðis
þær upplýsingar í gærmorgun að
mánaðarbið væri eftir dekkja-
skiptum þar.
Ódýrasta umganginn af 16 tommu
205/55 ónegldum vetrardekkjum var
að fá í Dekkverki þar sem fá má fjög-
ur Goodride-vetrardekk á alls 32 þús-
und krónur. Með umfelgun gera það
38.400 krónur sem reyndist lægsta
heildarverðið í verðkönnuninni.
Umbeðin dekkjastærð í Costco
reyndist nokkuð dýr þar saman-
borið við ódýrustu tegund annars
staðar og kostaði umgangurinn af
Michelin-vetrardekkjum þar rúmar
70 þúsund krónur. Af þeim sökum
var hæsta heildarverðið í Costco,
þrátt fyrir að umfelgun væri innifalin.
Af þessari könnun má ráða að það
borgi sig sem fyrr fyrir neytendur
að gera verðsamanburð áður en
haldið er af stað í dekkjaskipti fyrir
veturinn. Vert er þó að hafa í huga að
dekk eru eitt mikilvægasta öryggis-
tæki allra bifreiða og ekki mælt með
að einblína á verðið þegar leggja á út
fyrir þeim. mikael@frettabladid.is
1 2 . o K t ó b e r 2 0 1 7 F I M M t u d a G u r6 F r é t t I r ∙ F r é t t a b L a Ð I Ð
1
2
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
F
4
-9
C
D
0
1
D
F
4
-9
B
9
4
1
D
F
4
-9
A
5
8
1
D
F
4
-9
9
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K