Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 30
Mig langar að taka burtu þennan ramma sem er settur utan um „plus size“ tísku og gera tískuna aðgengi­ legri. Ég vil færa konum eitthvað sem þær geta prufað sig áfram með, farið út fyrir kassann. Thelma byrjaði ung að velta fyrir sér tísku og fötum. Sem unglingur var hún þó oftast í vandræðum með fataval og að kaupa föt var hið mesta erfiði. Thelma upplifði því tískuheiminn óaðgengilegan vegna líkams­ stærðar sinnar. Það var þess vegna sem hún ákvað að taka málin í sínar hendur og gerast fatahönn­ uður. „Ég fann löngun til að hjálpa fólki í yfirstærð sem hefur áhuga á tísku. Hún er í raun ekki aðgengi­ leg fyrir þennan hóp og svo er líka skortur á fjölbreytileika þegar kemur að „plus size“ fatnaði. Þetta eru mikið til einsleit föt og hugsunin er að steypa alla í sama mótið.“ Aðspurð um hugmyndafræðina sem liggur að baki fatamerkinu segist Thelma ætla að leggja sitt af mörkum til að breyta því hvernig staðalímyndir kvenna eru mót­ aðar af samfélaginu; „Mig langar að taka burtu þennan ramma sem er settur utan um „plus size“ tísku og gera tískuna aðgengilegri. Ég vil færa konum eitthvað sem þær geta prufað sig áfram með, farið út fyrir kassann. Oftast er þetta þannig að það er ein aðalfatalína og svo er „plus size“ lína. Svo er alltaf mikill munur á línunum. Ég vil eyða þessu, kynna eina línu og hafa margar stærðir í boði. Síðan má líka tala um það sem er jákvætt að gerast. Fatahönnuður­ inn Christian Siriano er til dæmis núna farinn að opna línuna sína fyrir stærri stærðum og var með módel í alls konar stærðum á nýjustu tískusýningunni sinni. Það er það sem ég vil gera.“ Um eigin stíl segir Thelma hann vera nokkuð fjölbreyttan en á sama tíma vill hún ögra staðal­ ímyndum með fatavali sínu og prófa eitthvað nýtt. „Ég reyni að vera svona frekar afslöppuð eða „effortless chic“ ef ég má sletta. En ég vil líka ögra þessari pælingu sem er með konur í yfirstærð, það að þær þurfi að fela eitthvað. Ég er að reyna að brjótast út úr því og ganga í því sem mér finnst flott þó svo að það sjáist í magann á mér. Það er eins og sumar kröfur, sem settar eru á konur í yfirstærð, séu gerðar fyrir þægindi annarra. Svo að fólki líði ekki illa við að horfa á mann. Ég á til dæmis netbol sem ég ætti í raun ekki að klæðast samkvæmt þessu. Mér finnst að allar konur ættu að stíga út fyrir kassann sinn og prófa sig áfram óháð því í hvaða stærð þær eru. Dýfa tánum í óvissuna. Þú tapar ekkert á því.“ Thelma lærði fatahönnun í IFA Paris og sýndi útskriftarlínuna sína á Pulp Fashion Week árið 2015. Síðan þá hefur hún unnið að opnun netverslunar á heimasíðu sinni. Fyrsta flíkin sem fer í sölu verða buxur sem eru úr útskriftar­ línu Thelmu. „Mig langaði að byrja á þeim því þær fengu svo góðar undirtektir á Pulp Fashion Week í París. Ég er búin að vera að vinna í stærðar­ skala sem ég vil miða við en ég stefni á að byrja að selja í byrjun næsta árs. Það er hægt að skrá sig á póstlistann á heimasíðunni minni en hún er enn í vinnslu. Þar sendi ég út tilkynningu þegar netverslunin verður opnuð ef fólk hefur áhuga á henni.“ Ögrar staðalímyndunum Thelma Björnsdóttir er 29 ára fatahönnuður með stórar hugsjónir. Hún stundaði nám í París og er nýflutt til Sviss. Hún er með eigið fatamerki og hyggst hanna flíkur fyrir konur í öllum stærðum. Thelma Björnsdóttir með fyrirsætum sínum á Pulp Fashion Week í París 2015. Thelma Björnsdóttir fatahönnuður. Buxur sem verða til sölu hjá Thelmu. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Gallabuxur kr. 7.900.- Litur: dökkblár Str. 38-52 2 síddir: 78 og 82 cm Svartar buxur kr. 9.800.- Str. S-2XL Ný buxnasending frá Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 Flottar buxur Kr. 7990,- Netverslun á tiskuhus.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . o K TÓ B e R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 2 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 4 -C 9 4 0 1 D F 4 -C 8 0 4 1 D F 4 -C 6 C 8 1 D F 4 -C 5 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.