Fréttablaðið - 12.10.2017, Síða 30
Mig langar að taka
burtu þennan
ramma sem er settur
utan um „plus size“ tísku
og gera tískuna aðgengi
legri. Ég vil færa konum
eitthvað sem þær geta
prufað sig áfram með,
farið út fyrir kassann.
Thelma byrjaði ung að velta fyrir sér tísku og fötum. Sem unglingur var hún þó oftast
í vandræðum með fataval og að
kaupa föt var hið mesta erfiði.
Thelma upplifði því tískuheiminn
óaðgengilegan vegna líkams
stærðar sinnar. Það var þess vegna
sem hún ákvað að taka málin í
sínar hendur og gerast fatahönn
uður.
„Ég fann löngun til að hjálpa
fólki í yfirstærð sem hefur áhuga á
tísku. Hún er í raun ekki aðgengi
leg fyrir þennan hóp og svo er líka
skortur á fjölbreytileika þegar
kemur að „plus size“ fatnaði.
Þetta eru mikið til einsleit föt og
hugsunin er að steypa alla í sama
mótið.“
Aðspurð um hugmyndafræðina
sem liggur að baki fatamerkinu
segist Thelma ætla að leggja sitt af
mörkum til að breyta því hvernig
staðalímyndir kvenna eru mót
aðar af samfélaginu;
„Mig langar að taka burtu
þennan ramma sem er settur
utan um „plus size“ tísku og gera
tískuna aðgengilegri. Ég vil færa
konum eitthvað sem þær geta
prufað sig áfram með, farið út
fyrir kassann. Oftast er þetta
þannig að það er ein aðalfatalína
og svo er „plus size“ lína. Svo er
alltaf mikill munur á línunum. Ég
vil eyða þessu, kynna eina línu
og hafa margar stærðir í boði.
Síðan má líka tala um það sem er
jákvætt að gerast. Fatahönnuður
inn Christian Siriano er til dæmis
núna farinn að opna línuna sína
fyrir stærri stærðum og var með
módel í alls konar stærðum á
nýjustu tískusýningunni sinni.
Það er það sem ég vil gera.“
Um eigin stíl segir Thelma hann
vera nokkuð fjölbreyttan en á
sama tíma vill hún ögra staðal
ímyndum með fatavali sínu og
prófa eitthvað nýtt.
„Ég reyni að vera svona frekar
afslöppuð eða „effortless chic“ ef
ég má sletta. En ég vil líka ögra
þessari pælingu sem er með konur
í yfirstærð, það að þær þurfi að
fela eitthvað. Ég er að reyna að
brjótast út úr því og ganga í því
sem mér finnst flott þó svo að það
sjáist í magann á mér. Það er eins
og sumar kröfur, sem settar eru á
konur í yfirstærð, séu gerðar fyrir
þægindi annarra. Svo að fólki líði
ekki illa við að horfa á mann. Ég á
til dæmis netbol sem ég ætti í raun
ekki að klæðast samkvæmt þessu.
Mér finnst að allar konur ættu að
stíga út fyrir kassann sinn og prófa
sig áfram óháð því í hvaða stærð
þær eru. Dýfa tánum í óvissuna.
Þú tapar ekkert á því.“
Thelma lærði fatahönnun í IFA
Paris og sýndi útskriftarlínuna
sína á Pulp Fashion Week árið
2015. Síðan þá hefur hún unnið að
opnun netverslunar á heimasíðu
sinni. Fyrsta flíkin sem fer í sölu
verða buxur sem eru úr útskriftar
línu Thelmu.
„Mig langaði að byrja á þeim því
þær fengu svo góðar undirtektir
á Pulp Fashion Week í París. Ég er
búin að vera að vinna í stærðar
skala sem ég vil miða við en ég
stefni á að byrja að selja í byrjun
næsta árs. Það er hægt að skrá
sig á póstlistann á heimasíðunni
minni en hún er enn í vinnslu.
Þar sendi ég út tilkynningu þegar
netverslunin verður opnuð ef fólk
hefur áhuga á henni.“
Ögrar staðalímyndunum
Thelma Björnsdóttir er 29 ára fatahönnuður með stórar hugsjónir. Hún stundaði nám í París og er
nýflutt til Sviss. Hún er með eigið fatamerki og hyggst hanna flíkur fyrir konur í öllum stærðum.
Thelma Björnsdóttir með fyrirsætum sínum á Pulp Fashion Week í París 2015.
Thelma Björnsdóttir fatahönnuður.
Buxur sem verða til sölu hjá Thelmu.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Gallabuxur
kr. 7.900.-
Litur: dökkblár
Str. 38-52
2 síddir: 78 og 82 cm
Svartar buxur
kr. 9.800.-
Str. S-2XL
Ný buxnasending frá
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
Flottar buxur
Kr. 7990,-
Netverslun á tiskuhus.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . o K TÓ B e R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
2
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
F
4
-C
9
4
0
1
D
F
4
-C
8
0
4
1
D
F
4
-C
6
C
8
1
D
F
4
-C
5
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K