Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 50
Kærastan mín elskuleg stendur líka á tímamótum enda ’77 módel eins og ég. Ég er reyndar aðeins eldri – alveg mánuðinum en við erum að hugsa um að mætast á miðri leið, slá í gleðiklárinn og halda gott partí í byrjun nóvember. Við erum búin að vera það lengi saman að við eigum alla vini og kunningja sameigin- lega, um að gera að vera samstíga í þessu, eins og öðru,“ segir Ólafur Egilsson leik- ari, handritshöfundur og leikstjóri sem fagnar fertugsafmæli sínu í dag. Ólafur ætlar að halda upp á daginn með því að mæta til vinnu sem hand- ritsráðgjafi hjá RÚV. „Þar standa þessa dagana yfir hugmyndadagar, þar sem öllum er frjálst að kynna hugmynd að nýju íslensku sjónvarpsefni. Það eru svo margir með hugmynd að ég verð þar sennilega fram á kvöld. Kannski ég fái svo mína nánustu með út að borða á Snaps um kvöldið, ég fer yfirleitt þangað til að gera mér dagamun. Við hjónaleysin blásum svo til meiri fagnaðar síðar meir, ætli við fáum ekki bara vini okkar á Snaps til að sjá um það líka.“ Þessa dagana er Ólafur að fylgja eftir sýningum sem hann hefur leikstýrt. „Það er sýning í Hörpu fyrir ferðamenn um Íslendingasögurnar sem ég skrifaði og leikstýrði, hún er að detta í 250 sýningar um þessar mundir, og svo eru það Kart- öfluæturnar í Borgarleikhúsinu sem voru frumsýndar í lok september en það verk er eftir Tyrfing Tyrfingsson. Ég er svona að koma með léttar ábendingar til leik- aranna, en þau eiga þetta auðvitað eftir frumsýningu og ráða alveg hvort þau taka mark á mér, ég ræð engu, sem er reyndar ágætisviðhorf yfirhöfuð – maður ræður engu. Þegar ég er uppi í Borgarleikhúsinu reyni ég svo líka aðeins að fylgjast með Elly blessuninni, en ég skrifaði handritið ásamt Gísla Erni. Brot úr hjónabandi er líka að fara aftur á fjalirnar svo að ég er að undirbúa æfingar á því. Annars er ég aðallega að hita upp raddböndin fyrir tvenna tónleika sem ég tek þátt í undir lok mánaðarins, það eru Hrekkjavöku- tónleikar í Háskólabíói og svo Tommy- konsert í Eldborg, og sinna lestri og skriftum,“ segir afmælisbarnið. benediktboas@365.is Blæs til veislu þegar frúin nær líka fjörutíu árunum Ólafur Egilsson, leikari og leikstjóri, er fertugur í dag. Hann verður við vinnu í dag en ætl- ar að bjóða sínum nánustu til veislu. Stóra veislan verður þegar frúin nær honum í aldri. Þá verður blásið í gleðilúðurinn enda eiga þau hjónaleysin marga sameiginlega vini. Ólafur Egilsson, reffilegur sem fyrr. Fréttablaðið/Hanna Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, Svanhildur Sveinbjörnsdóttir hagfræðingur, Fögruhæð 6, Garðabæ, lést mánudaginn 9. október á líknardeild Landspítalans. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 19. október klukkan 15. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast Svanhildar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Arnar Jónsson Karen Arnarsdóttir Emilía Arnarsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, Hilmar Guðmundsson Kolbeinsá, Hrútafirði, sem lést 29. september sl. verður jarðsunginn frá Prestbakkakirkju laugardaginn 14. október kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Orgelsjóð Prestbakkakirkju, 0161-15-630055, kt. 520269-5929. Sigurrós M. Jónsdóttir Erna Hilmarsdóttir Már Gunnarsson Sigurjón Hilmarsson Rut Einarsdóttir Hannes G. Hilmarsson Kristín G. Jónsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför Arnar Inga Gíslasonar fjöllistamanns. Dýrleif Bjarnadóttir og fjölskylda. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi okkar og langafi, Walter Gunnlaugsson lést þann 3. október sl. á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu DAS, Nesvöllum, Reykjanesbæ. Kveðjuathöfn hefur farið fram í kyrrþey samkvæmt ósk hins látna. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast Walters er bent á Blindrafélagið, blind.is. Anna Lísa Ásgeirsdóttir María Guðrún Waltersdóttir Erla Waltersdóttir Vilhjálmur H. Waltersson Helga Elísabet Jónsdóttir Anna Birgitta Nicholson Björn Línberg Hildur Waltersdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Herdís Matthildur Guðmundsdóttir Úthlíð 33, Hafnarfirði, lést umkringd ástvinum á heimili sínu að morgni 9. október. Útför verður auglýst síðar. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki heimahlynningar Landspítalans og á deild 21A fyrir einstaka umönnun og stuðning. Árni Brynjólfsson Sigþór Árnason Hulda Helga Þráinsdóttir Brynjólfur Árnason Inga Þóra Ásdísardóttir Hrönn Árnadóttir Óskar Meldal Gíslason og ömmubörn. Innilegar þakkir fyrir veittan stuðning og kærleika við fráfall minnar ástkæru eiginkonu, besta vinar, móður okkar, ömmu og langömmu, Helgu Óskar Kúld sjúkraliða, Brávallagötu 16. Sérstakar þakkir fá þeir sem hugsuðu um hana í veikindum hennar, starfsfólk 11E krabbameinsdeildar, starfsfólk 2A hjúkrunarheimilisins Grundar og Útfararstofa Reykjavíkur. Blessuð sé minning hennar. Stefán Brynjólfsson Aðalbjörg Ólafsdóttir Halldóra Ólafsdóttir Heiðrún Ólafsdóttir Guðlaug Helga Helgudóttir Kúld barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, Jóns Hannesar Helgasonar húsgagnasmiðs, Sóleyjarima 7, Reykjavík. Sigurbjörg Haraldsdóttir Arnar Jónsson Anna Sif Jónsdóttir Snorri Jónsson Anna Ólafsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðni Grímsson vélstjóri, Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum, lést fimmtudaginn 28. september. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 14. október kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbavörn, Vestmannaeyjum. Esther Valdimarsdóttir Valdimar Guðnason Þórey Einarsdóttir Grímur Guðnason Eygló Kristinsdóttir Guðni Ingvar Guðnason Þórdís Úlfarsdóttir Bergur Guðnason Jónína Björk Hjörleifsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ólafur Egill Egilsson l 40 ára. l Útskrifaðist úr Leiklistardeild LHÍ árið 2002. l Hefur leikið í fjölmörgum leik- sýningum og kvikmyndum og komið að skrifum vinsælla leikgerða, kvik- mynda og leikrita. l Höfundur eða meðhöfundur verkanna Fólkið í kjallaranum, Svar við bréfi Helgu, Karitas, Elly, Eiðurinn, Brim, Sumarlandið, Brúðguminn og Ófærð. l Hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir sín störf, meðal annars Grímuna sem besti leikari í aðal- og aukahlut- verki og leikskáld ársins. 1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F I M M t U D A G U r30 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð I ð tímamót Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. 1 2 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D F 4 -A 1 C 0 1 D F 4 -A 0 8 4 1 D F 4 -9 F 4 8 1 D F 4 -9 E 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.