Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 47
Sameignarfélagið Faxaflóahafnir, sem er að mestu í eigu Reykja­víkur borgar, hefur nánast hneppt Hvalfjörð í fjötra með eignar­ haldi sínu á Grundartanga þar sem hvert mengandi iðjuverið á fætur öðru hefur risið, fyrir tilstilli Faxa­ flóahafna. Eitt þeirra, GMR, hefur lagt upp laupana við lítinn glæsibrag. Sér­ kennilegt er að Reykjavík þurfi að fara í annað sveitarfélag með óhreinan iðnað. Borgin sem fékk náttúru­ og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2014 hefur falið andlit sitt að þessu leyti bak við Faxaflóahafnir. Mengun frá iðjuverunum á Grundar tanga hefur haft verulega neikvæð áhrif á lífríkið, búskap, heilsu dýra, ferðaþjónustu, útivist og lífsgæði íbúa við allan Hvalfjörð, sem er ekki lengur hreint svæði. Mengandi efni í andrúmslofti, vatni, gróðri og lífverum eru í boði Faxaflóahafna. Þau sveitarfélög sem einnig eiga hlut í Faxaflóahöfnum virðast til í hvað sem er, séu peningar í boði. Þá er ekki verið að velta fyrir sér „smámunum“ svo sem mati á umhverfisáhrifum eða rækilegri úttekt á afleiðingum meng­ unarinnar. Menn virðast tilbúnir til að trúa hverju sem er og skýla sér á bak við innlendar eftirlitsstofn­ anir sem hafa sýnt að þær láta hvorki náttúruna njóta vafans né leggjast í rannsóknir sem staðfest geti að hið mikla umburðarlyndi þeirra gagnvart mengandi iðjuverum sé réttlætanlegt. Nítjándi september síðastliðinn markaði tímamót varðandi stóriðju hérlendis, en þann dag féll Silicor Materials formlega frá samningum við Faxaflóahafnir um aðstöðu fyrir iðjuver sitt á Grundartanga. Áður hafði Silicor Materials, sem dregur sögulegan slóða vanefnda á eftir sér, haldið Faxaflóahöfnum volgum í nokkur ár með því að veifa hund­ ruðum atvinnutækifæra framan í viðsemjendur sína á Íslandi. Ekki er ljóst á hvaða róli vísinda­ samfélagið var meðan á þessu stóð. Vitað var að um tilraun í framleiðslu sólarkísils var að ræða. Engir aðrir en Silicor Materials sjálft og fulltrúar þess á Íslandi gáfu upplýsingar um framleiðsluferilinn. Engin til þess bær, hlutlaus erlend stofnun virðist hafa verið fengin til að meta mögu­ leika Silicor Materials til að standa undir væntingum, hvorki hvað varð­ aði framleiðsluna, fjármögnun né orkukaup. Silicor Materials átti sviðið. Almenningur ber kostnaðinn Eðli málsins samkvæmt mun almenningur bera kostnað vegna undirbúnings fyrir Silicor Materials á Grundartanga sem og vegna undir­ búnings fyrir væntanlega fólksfjölgun vegna iðjuversins í nálægu þéttbýli. Það er ástæða til að óttast að sam­ eignarfélagið Faxaflóahafnir, sem hefur verið blint á að í firðinum býr fólk sem á rétt á hreinu umhverfi eins og aðrir borgarar þessa lands, reyni að krækja í enn eitt mengandi iðjuverið til handa Hvalfirði. Lögmál frum­ skógarins, þar sem sá sterkari étur þann vanmáttugri, gæti enn um sinn orðið leiðarljós Faxaflóahafna, þrátt fyrir að sameignarfélagið hafi þurft að lúta í gras eftir samskipti sín við Silicor Materials. Saga Silicor Materials á Íslandi hefði getað orðið lengri og með meira tjóni en orðið er. Gott er að þessu máli er lokið. En vert er að minnast þess að Faxaflóahafnir lögð­ ust gegn því að Silicor þyrfti að sæta mati á umhverfis áhrifum. Svo mikil var trúgirnin og flumbrugangurinn. Eftir er að sjá hvort Faxaflóahafnir muni læra af reynslunni og verða umhverfisvænni framvegis. Félagið þyrfti að einbeita sér að því í alvöru að koma böndum á mengun frá Elkem, Norðuráli og Kratusi sem leigja land Faxaflóahafna á Grundartanga, sem og mengun frá gríðarlegri umferð flutningaskipa um Hvalfjörð. Það myndi bæta ásýnd Reykjavíkurborgar og annarra eigenda Faxaflóahafna. Faxaflóahafnir og lögmál frumskógarins Ragnheiður Þorgrímsdóttir Kúludalsá, Hvalfirði Saga Silicor Materials á Ís­ landi hefði getað orðið lengri og með meira tjóni en orðið er. Gott er að þessu máli er lokið. En vert er að minnast þess að Faxaflóahafnir lögð­ ust gegn því að Silicor þyrfti að sæta mati á um hverfis­ áhrifum. Svo mikil var trú­ girnin og flumbrugangurinn. Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? GUM eru hágæða tannvörur tannlæk nar mæla m eð GUM tannvör um ... fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum allar upplýsingar á www.icecare.is MERKIÐ MITT Skoðaðu litríkt úrval á bros.is Bros auglýsingavörur, Norðlingabraut 14. Bros auglýsingavörur með þínu merki S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 27F i M M T u D A G u R 1 2 . o k T ó B e R 2 0 1 7 1 2 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 4 -B A 7 0 1 D F 4 -B 9 3 4 1 D F 4 -B 7 F 8 1 D F 4 -B 6 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.