Fréttablaðið - 12.10.2017, Side 12

Fréttablaðið - 12.10.2017, Side 12
Við leitum að nýjum höfundum og efnum því til rafbókasamkeppni! Allt að þrjú handrit verða valin og gefin út hjá Forlaginu. Vinningshafar fá samning við Forlagið, fyrirfram- greiðslu upp á 100.000 kr., ritstjórn og kynningu. Skiladagur er 1. desember. Allar upplýsingar er að finna á www.forlagid.is BÝR BÓK Í ÞÉR? Spánn Ef Katalónía lætur ekki af óljósum áformum um sjálfstæðis­ yfirlýsingu mun spænska ríkis­ stjórnin grípa til aðgerða og byrja á því að svipta héraðið sjálfsstjórnar­ réttindum. Þetta sagði Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, í gær. Vafi leikur á um hvort Katalónar hafi eða hafi ekki lýst yfir sjálfstæði á þriðjudag. Carles Puigdemont, for­ seti héraðsstjórnar Katalóníu, skrif­ aði vissulega undir yfirlýsingu þess efnis en gildistöku yfirlýsingarinnar var frestað í því skyni að freista þess að komast að samkomulagi við Rajoy­stjórnina. Rajoy gaf Puigdemont fimm daga frest til að skýra mál sitt en tilkynn­ ing gærdagsins er fyrsta skrefið í átt að sviptingu sjálfsstjórnarréttinda. Togstreitan á milli katalónskra aðskilnaðarsinna og Spánverja hefur ekki verið meiri í langan tíma en hún hefur stigmagnast dag frá degi allt frá því katalónska þingið boðaði til kosninga. Þær kosningar fóru fram þótt spænski stjórnlaga­ dómstóllinn dæmdi þær ólöglegar og niðurstöðurnar voru mikill stuðningur við sjálfstæðisyfirlýs­ ingu, þó með dræmri kjörsókn. „Þetta ákall til Katalóna, sem kemur áður en stjórnvöld grípa til aðgerða í samræmi við 155. grein stjórnarskrár okkar, miðar að því að gera ástandið skýrt fyrir almenningi og tryggja öryggi þeirra í aðstæðum sem þessum,“ sagði Rajoy. „Það er algjörlega nauðsynlegt að binda enda á ástandið í Katalóníu, að tryggja öryggi héraðsins á ný, eins fljótt og auðið er,“ bætti forsætisráð­ herrann við. Rajoy hélt einnig ræðu fyrir spænska þinginu síðar í gær þar sem hann sagði alvarlegustu ógn í fjörutíu ára sögu Spánar nú steðja að ríkinu. Sakaði hann katalónska aðskilnaðarsinna um að hafa hrundið af stað andlýðræðislegri áætlun og með því sogað alla Kata­ lóna, jafnvel sambandssinna, inn í hringiðuna. Spánverjar þyrftu því að koma jafnvægi á í héraðinu á ný. Forsætisráðherrann þvertók einnig fyrir að erlendir aðilar kæmu að borðinu til að miðla málum. Sú ábyrgð hvíldi á herðum Puigdemont og samstarfsmanna hans. Jafnframt væri hann tilbúinn til þess að semja um aukna sjálfsstjórn Katalóníu og breytingar á spænsku stjórnar­ skránni en það þyrfti að gerast innan ramma spænskra laga. Pedro Sanchez, leiðtogi spænsku stjórnarandstöðunnar, tjáði sig um ástandið við fjölmiðla í gær. Sagði hann að stjórnarandstaðan ynni með ríkisstjórninni að því að binda enda á deiluna. „Við einbeitum okkur að því að því að halda Kata­ lóníu innan Spánar, ekki að því hvernig væri hægt að veita héraðinu sjálfstæði,“ sagði Sanchez. thorgnyr@frettabladid.is Hótar aðgerðum og biður um skýrmælgi Ríkisstjórn Spánar hótar enn á ný að svipta Katalóníu sjálfsstjórnarréttindum. Forsætisráðherrann biður forseta Katalóníu um að útskýra áform sín um sjálf- stæðisyfirlýsingu héraðsins. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar er sammála Rajoy. Er meirihluti fyrir sjálfstæði? Þótt níutíu prósent atkvæða í nýafstöðnum kosningum í Kata- lóníu hafi fallið sjálfstæðinu í vil er ekki hægt að fullyrða að meirihluti Katalóna aðhyllist aðskilnað frá Spáni. Til að mynda var kjörsókn vel undir fimmtíu prósentum og þá höfðu sambandssinnar á katalónska þinginu eindregið hvatt stuðningsmenn sína til þess að sniðganga hinar ólöglegu kosningar. Það er einnig erfitt að nálgast nýjar skoðanakannanir um sjálf- stæði Katalóníu. Í könnun Socio- métrica frá því í byrjun septem- ber kemur fram að 50,1 prósent aðhyllist sjálfstæði. Í júlí kom fram í könnun GESOP að 41,1 prósent aðhylltist sjálfstæði og í könnun GAD3 frá því í apríl aðhylltust 41,9 prósent sjálfstæði. The Washington Post birti langa úttekt í gær á því sem miðillinn kallar „Mýtan um mikinn stuðning við sjálfstæði Katalóníu“. Þar kemur fram að samkvæmt opin- berum könnunum katalónsku héraðsstjórnarinnar hafi stuðning- ur við sjálfstæði mælst 35 prósent í júlí. Samkvæmt þeim könnunum hafa sjálfstæðissinnar aldrei verið í meirihluta undanfarinn áratug. Næst meirihluta var komist árið 2013 þegar 49 prósent sögðust styðja sjálfstæði. Í úttektinni kemur hins vegar fram að í ljósi hatrammrar deilu Rajoy og Puigdemont sé líklegt að stuðningur við sjálfstæði aukist. Mariano Rajoy forsætisráðherra var harðorður í garð aðskilnaðarsinna. NoRdicphotos/AFp 1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F I M M t U D A G U r12 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð 1 2 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 4 -B F 6 0 1 D F 4 -B E 2 4 1 D F 4 -B C E 8 1 D F 4 -B B A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.