Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Qupperneq 22
Vikublað 17.–19. janúar 201722 Lífsstíll Í takt við tímann • Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa. • Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum. frakt flutningsmiðlun / sundagörðum 2 , 104 reykjaVík / sími: 520 1450 S amsett mynd af skemmd- um sítrónum í eggja- bakka er þungamiðja vit- undarvakningar um brjóstakrabbamein, sem vakið hefur mikla athygli á samfé- lagsmiðlum að undanförnu. Bar- áttan fer fram undir myllumerkinu #KnowYourLemons er notað í bar- áttunni en þar eru konur hvattar til að leita læknis ef einhver af tólf ein- kennum gera vart við sig í brjóstum kvenna. Markmiðið er að vekja konur til vitundar um að hnúður í brjósti er ekki eina einkenni brjóstakrabba- meins. Telegraph og fleiri erlendir miðlar greina frá þessu. „Sumar breytingar eru eðlilegar, aðrar geta stafað af tíðum eða sýk- ingum,“ kemur fram á síðu góð- gerðasamtakanna Worldwide Bre- ast Cancer, sem stendur að baki vitundarvakningunni. „Ef einkenn- in hverfa ekki skaltu vera skynsöm og leita til læknis.“ Herferðin er hug- mynd Corrine Beaumont, bresks hönnuðar, sem missti báðar ömm- ur sínar úr brjóstakrabbameini þegar þær voru 40 og 62 ára gamlar. Hún sagði að sítrónur væru minna feimnismál en brjóst og því væru þær notaðar til að sýna einkennin. Einkennin sem notuð eru í herferðinni eru (í lauslegri þýð- ingu): Aukinn þéttleiki, hola, við- kvæm húð, roði eða hiti, tor- kennilegur vökvi, dæld, hnúður, stækkandi æðar, inndregin geir- varta, ný lögun, appelsínuhúð eða falið æxli. n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is 12 einkenni brjóstakrabbameins n Hnúður í brjósti er ekki eina einkenni krabbameins n Vitundarvakning á meðal kvenna Verk eftir Tolla Litir sem næra sálina. Karl Berndsen mælir með Kalli mælir með Next Falleg vinnu- brögð, fágaður stíll og verðið kemur á óvart, segir Kalli. Góður matur á Kringlu- kránni „Á Kringlukránni er að finna yndislegt starfsfólk, góðan mat og fjör.“ Karen Millen eins og haust í glugga Munstur, litir og áferð haustið 2016. Það er eins og Þingvöllum á fallegum haustdegi hafi verið komið fyrir í glugganum. Yndislegt starfsfólk hjá Jóni og Óskari „Ástæðan fyrir því að ég mæli með Jóni og Óskari í Kringlunni er að fjólublái liturinn höfðar til mín. Þar er líka yndislegt starfsfólk og gott rými til að skoða sig um. Ég elska líka „bling“.“ Tag Heuer fer fallega á hönd Aðals- merki TAG Heuer er að bjóða upp á breiða línu af úrum úr ryðfríu stáli en einnig stáli og 18 kt gulli og oft með demöntum. Þ etta er allt í kaffinu,“ eru ein fleygustu ummæli Karls Berndsen og allir ættu að kannast við. Þar mælti hann með Merrild-kaffi og hafa fáar auglýsingar vakið jafn mikla athygli. Karl var nýlega í ítarlegu við- tali við DV þar sem hann opnaði sig um sitt nýja líf en Karl fór úr glæsi- hýsi í íbúð hjá Blindrafélaginu. Áður stjórnaði hann sjónvarps- þætti og lék í auglýsingum og all- ir elskuðu Kalla sem vildi baða sig í stjörnuljómanum. Kalli er nú löngu fluttur úr glæsihýsinu en er í dag að rísa upp úr öskustónni eins og fuglinn Fönix. Karl hefur alltaf verið listhneigður. Hann hefur málað myndir, samið ljóð og nýtur þess að taka ljósmynd- ir. Það gerir hann lista vel þrátt fyrir að hann sé með litla sem enga sjón á vinstra auga og löglega blindur. Í DV í dag mælir Kalli með sex hlutum sem enginn ætti að vera án. „Þetta eru fallegir hlutir sem hreinsa huga þinn af neikvæðni!“ segir Karl. „Þeir geta gefið þér fallegri lífssýn og dýpkað hana.“ Karl segir liti og áferð alla tíð hafa verið stóran hluta af lífi hans. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.