Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Blaðsíða 2
Vikublað 28. febrúar–2. mars 20172 Fréttir Varað við grýlukertum Lögreglan beinir þeim tilmælum til fólks á höfuðborgarsvæðinu að huga að grýlukertum og snjó- hengjum er slúta fram af húsþök- um en af þeim getur stafað mikil hætta. Í skeyti frá lögreglu kemur fram að tilmælunum sé ekki síst beint til verslunar- og/eða hús- eigenda á stöðum þar sem mikið er um gangandi vegfarendur. Á þetta meðal annars við um Laugaveg og nærliggjandi götur í miðborginni. Mælst er til þess að fólk kanni með hús sín og grípi til viðeigandi ráð- stafana áður en slys hlýst af. Aftur stærstur Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi íslenskra flokka í nýju- stu könnun MMR á fylgi stjórn- málaflokka. Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist nú 26,9% en var 24,4% í síðustu könnun sem lauk 15. febr- úar 2017. Vinstri græn mældust með næst mest fylgi eða 23,9%. Það er lækkun um 3,1 prósentu- stig frá síðustu mælingu. Þó þarf að taka fram að líkt og fylgisbreytingar annarra flokka, eru sveiflurnar á fylgi flokkanna innan vikmarka. Fylgi Framsóknarflokksins jókst um 1,5% milli kannana og mælist fylgið nú 12,2%. Píratar mælast með 11,6% fylgi, Samfylkingin með 8,0%, Viðreisn með 6,3% og Björt framtíð með 5,2% fylgi. Flokkur fólksins mældist með 2,5% en fylgi annarra flokka mældist undir 1%. Stuðningur við ríkisstjórnina jókst milli kannana og kváðust 37,9% styðja ríkis- stjórnina. Það er þriggja prósentu- stiga hækkun frá síðustu könnun. Könnunin var gerð dagana 17.–24. febrúar 2017, spurðir voru 928 einstaklingar, 18 ára og eldri. M ér fannst þetta svo mikið vont. Mér brá eigin- lega,“ segir Unnur Birna Björnsdóttir, einn af flytjendum lagsins Heim til þín, í samtali við DV. Lag- ið var á meðal þeirra sem tóku þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins um helgina. RÚV sýndi beint frá við- burðinum í sjónvarpinu. Það sem Unnur Birna, og raun- ar fleiri aðstandendur lagsins, gagn- rýnir er hljóðblöndun af hálfu RÚV. Hún segir á Facebook að nær allt hafi verið til fyrirmyndar á sviðinu og baksviðs. Hljóðið í salnum hafi verið mjög gott. Það hafi hins vegar ekki skilað sér í beinu útsendinguna. Beinar útsendingar, með tónlist í forgrunni, séu ekki sterkasta hlið RÚV. „Ég hvet ykkur til að hlusta á þetta lag og raddmassann sem er í því – og gerir mjög mikið fyrir lagið; bæði dýnamískt og listrænt. Hlustið svo á „live“ útsendinguna. Þetta er ekki nálægt því að vera sambæri- legt.“ Hún tekur skýrt fram að gagn- rýnin snúist ekki um úrslit keppn- innar en lagið komst ekki áfram. Hljóðblöndun hafi verið ábótavant í fleiri lögum. Hljóðmaður á RÚV bendir á Facebook á að ekki sé hægt að bera saman stúdíóupptökur og beinar útsendingar. Þá geti öllum orðið á mistök. Laglínan skilaði sér ekki Spurð hvort hægt sé að gera ráð fyrir því að bein útsending standist upp- töku úr hljóðveri snúning segir Unn- ur Birna að svo sé vissulega ekki. „Það er aldrei hægt að gera þá kröfu. Aldrei hægt að ætlast til að það verði nákvæmlega eins.“ Hún segir hins vegar að grunnhugmyndin í hljóð- blöndun verði að vera í lagi. Hún segir að lagið Heim til þín hafi alls ekki skilað sér með full- nægjandi hætti í útsendingunni. Bakraddirnar hafi varla heyrst og annar aðalsöngvarinn hafi verið hærra stilltur en hinn. „Þórdís var hæst en það voru tveir aðalsöngvar- ar. Þetta var áberandi vont. Laglínan kom heldur ekki fram á öllum stöð- um“. Alls ekki hafi mátt heyra að sex manneskjur væru að syngja, hvað þá að aðalsöngvararnir væru tveir. Vill finna lausn Hún tekur skýrt fram að hún áfellist ekki RÚV fyrir hljóðblöndunina eða einstaka starfsmenn stofnunarinn- ar. Allir séu vafalaust að gera sitt besta. Hún segir hins vegar að þetta sé umtalað á meðal tónlistarmanna og beinar útsendingar hafi verið með þessum hætti í langan tíma. Hún hafi mestan áhuga á að kom- ast til botns í málinu og leita lausna. Það sé allra hagur að tónlistin skili sér sem best til áhorfenda. Júlí Heiðar Halldórsson, annar af aðalsöngvurum lagsins, er ómyrkur í máli í athugasemd við lagið. „Við vorum frábær en hljóðblöndunin var hörmung.“ Fleiri taka undir Lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem hefur átt fjölmörg lög í undankeppnum RÚV, og samdi lagið Nótt sem flutt var á laugardag, tekur undir með Unni Birnu. „Verð því miður að taka undir hvert ein- asta orð í þessum pistli.“ Tónlistarmaðurinn Arnar Jóns- son, sem flutti lagið Til mín, ásamt Rakel Pálsdóttur, leggur einnig orð í belg. „Við vorum hrikalega leið fyrir ykkar hönd þegar við hlustuð- um á ykkar lag … Það er svo leiðin- legt þegar svona gerist, öll vinnan sem var unnin … Þetta var svona hjá okkur líka, en alls ekki svona slæmt,“ skrifar hann. Kemur RÚV til varnar Hrafnkell Sigurðsson, hljóðmaður hjá RÚV, svarar Unni Birnu á Faceook. Hann segir að aldrei sé hægt að ætlast til að stúdíóupp- taka, þar sem hvert smáatriði sé fín- stillt, muni hljóma eins og lifandi upptaka í sjónvarpinu. Þá geti öll- um orðið á mistök eða misreiknað hljóminn. „Meira að segja hljóð- maðurinn á Grammy-verðlaunun- um fyrir nokkrum vikum síðan kunni ekki að opna fyrir mækinn hjá James Hetfield í Metallica. Milljónir urðu vitni.“ Hann bætir við að það sé ósanngjörn fullyrðing að segja að RÚV sé ófært um útsendingar á lif- andi tónlistarflutningi og dagskrár- liðum og viðburðum sem RÚV ann- ast þar sem lifandi músík kemur við sögu. „Ég leyfi mér að fullyrða að enginn fjölmiðill sendi út jafnmikið af lifandi tónlistarflutningi í beinni útsendingu ár hvert. Að þessu sögðu vil ég sem hluti af þessari hljóðkeðju segja, afar leitt að ekki hafi tekist að skila því sem þið vilduð til áheyr- enda.“ Vill finna lausnir Unnur Birna ítrekar í samtali við DV að það sé henni kappsmál að leita skýringa á þessu og finna lausn- ir. Hana langi fyrst og fremst að vita hvað sé að. „Ég er ekki að lasta RÚV en bara benda á hvað þurfi að laga. Maður getur alveg móðgast, sem listamaður. Maður hugsar sig tvisvar um hvort mann langi að taka þátt aftur.“ n „Maður getur alveg Móðgast“ n Flytjandi gagnrýnir RÚV fyrir hljóðblöndun í söngvakeppninni „Áberandi vont Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Unnur Birna á sviði Unnur lést spila á fiðlu á sviðinu og bakraddasöngurinn var ósvikinn. Myndin er úr safni. Mynd ÚR einKasaFni Júlí Heiðar „Við vorum frábær en hljóðblöndunin var hörmung,“ segir Júlí Heiðar. Mynd RÚV/sÖnGVaKePPnin Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ Bakarameistari & Konditormeistari Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is Fermingarkynning hjá Jóni Ariliuss í Kökulist fimmtudaginn 2. mars frá kl. 17-19 Komdu með fermingarbarnið að hitta bakarann!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.