Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Side 2
Vikublað 28. febrúar–2. mars 20172 Fréttir
Varað við
grýlukertum
Lögreglan beinir þeim tilmælum
til fólks á höfuðborgarsvæðinu
að huga að grýlukertum og snjó-
hengjum er slúta fram af húsþök-
um en af þeim getur stafað mikil
hætta. Í skeyti frá lögreglu kemur
fram að tilmælunum sé ekki síst
beint til verslunar- og/eða hús-
eigenda á stöðum þar sem mikið er
um gangandi vegfarendur. Á þetta
meðal annars við um Laugaveg og
nærliggjandi götur í miðborginni.
Mælst er til þess að fólk kanni með
hús sín og grípi til viðeigandi ráð-
stafana áður en slys hlýst af.
Aftur stærstur
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með
mest fylgi íslenskra flokka í nýju-
stu könnun MMR á fylgi stjórn-
málaflokka. Fylgi Sjálfstæðisflokks
mælist nú 26,9% en var 24,4% í
síðustu könnun sem lauk 15. febr-
úar 2017. Vinstri græn mældust
með næst mest fylgi eða 23,9%.
Það er lækkun um 3,1 prósentu-
stig frá síðustu mælingu. Þó þarf að
taka fram að líkt og fylgisbreytingar
annarra flokka, eru sveiflurnar á
fylgi flokkanna innan vikmarka.
Fylgi Framsóknarflokksins jókst
um 1,5% milli kannana og mælist
fylgið nú 12,2%.
Píratar mælast með 11,6% fylgi,
Samfylkingin með 8,0%, Viðreisn
með 6,3% og Björt framtíð með
5,2% fylgi. Flokkur fólksins mældist
með 2,5% en fylgi annarra flokka
mældist undir 1%. Stuðningur við
ríkisstjórnina jókst milli kannana
og kváðust 37,9% styðja ríkis-
stjórnina. Það er þriggja prósentu-
stiga hækkun frá síðustu könnun.
Könnunin var gerð dagana 17.–24.
febrúar 2017, spurðir voru 928
einstaklingar, 18 ára og eldri.
M
ér fannst þetta svo mikið
vont. Mér brá eigin-
lega,“ segir Unnur Birna
Björnsdóttir, einn af
flytjendum lagsins
Heim til þín, í samtali við DV. Lag-
ið var á meðal þeirra sem tóku þátt
í Söngvakeppni sjónvarpsins um
helgina. RÚV sýndi beint frá við-
burðinum í sjónvarpinu.
Það sem Unnur Birna, og raun-
ar fleiri aðstandendur lagsins, gagn-
rýnir er hljóðblöndun af hálfu RÚV.
Hún segir á Facebook að nær allt
hafi verið til fyrirmyndar á sviðinu
og baksviðs. Hljóðið í salnum hafi
verið mjög gott. Það hafi hins vegar
ekki skilað sér í beinu útsendinguna.
Beinar útsendingar, með tónlist í
forgrunni, séu ekki sterkasta hlið
RÚV. „Ég hvet ykkur til að hlusta á
þetta lag og raddmassann sem er í
því – og gerir mjög mikið fyrir lagið;
bæði dýnamískt og listrænt. Hlustið
svo á „live“ útsendinguna. Þetta er
ekki nálægt því að vera sambæri-
legt.“ Hún tekur skýrt fram að gagn-
rýnin snúist ekki um úrslit keppn-
innar en lagið komst ekki áfram.
Hljóðblöndun hafi verið ábótavant
í fleiri lögum.
Hljóðmaður á RÚV bendir á
Facebook á að ekki sé hægt að bera
saman stúdíóupptökur og beinar
útsendingar. Þá geti öllum orðið á
mistök.
Laglínan skilaði sér ekki
Spurð hvort hægt sé að gera ráð fyrir
því að bein útsending standist upp-
töku úr hljóðveri snúning segir Unn-
ur Birna að svo sé vissulega ekki.
„Það er aldrei hægt að gera þá kröfu.
Aldrei hægt að ætlast til að það verði
nákvæmlega eins.“ Hún segir hins
vegar að grunnhugmyndin í hljóð-
blöndun verði að vera í lagi.
Hún segir að lagið Heim til þín
hafi alls ekki skilað sér með full-
nægjandi hætti í útsendingunni.
Bakraddirnar hafi varla heyrst og
annar aðalsöngvarinn hafi verið
hærra stilltur en hinn. „Þórdís var
hæst en það voru tveir aðalsöngvar-
ar. Þetta var áberandi vont. Laglínan
kom heldur ekki fram á öllum stöð-
um“. Alls ekki hafi mátt heyra að sex
manneskjur væru að syngja, hvað
þá að aðalsöngvararnir væru tveir.
Vill finna lausn
Hún tekur skýrt fram að hún áfellist
ekki RÚV fyrir hljóðblöndunina eða
einstaka starfsmenn stofnunarinn-
ar. Allir séu vafalaust að gera sitt
besta. Hún segir hins vegar að þetta
sé umtalað á meðal tónlistarmanna
og beinar útsendingar hafi verið
með þessum hætti í langan tíma.
Hún hafi mestan áhuga á að kom-
ast til botns í málinu og leita lausna.
Það sé allra hagur að tónlistin skili
sér sem best til áhorfenda.
Júlí Heiðar Halldórsson, annar af
aðalsöngvurum lagsins, er ómyrkur
í máli í athugasemd við lagið. „Við
vorum frábær en hljóðblöndunin
var hörmung.“
Fleiri taka undir
Lagahöfundurinn Sveinn Rúnar
Sigurðsson, sem hefur átt fjölmörg
lög í undankeppnum RÚV, og samdi
lagið Nótt sem flutt var á laugardag,
tekur undir með Unni Birnu. „Verð
því miður að taka undir hvert ein-
asta orð í þessum pistli.“
Tónlistarmaðurinn Arnar Jóns-
son, sem flutti lagið Til mín, ásamt
Rakel Pálsdóttur, leggur einnig orð
í belg. „Við vorum hrikalega leið
fyrir ykkar hönd þegar við hlustuð-
um á ykkar lag … Það er svo leiðin-
legt þegar svona gerist, öll vinnan
sem var unnin … Þetta var svona hjá
okkur líka, en alls ekki svona slæmt,“
skrifar hann.
Kemur RÚV til varnar
Hrafnkell Sigurðsson, hljóðmaður
hjá RÚV, svarar Unni Birnu á
Faceook. Hann segir að aldrei sé
hægt að ætlast til að stúdíóupp-
taka, þar sem hvert smáatriði sé fín-
stillt, muni hljóma eins og lifandi
upptaka í sjónvarpinu. Þá geti öll-
um orðið á mistök eða misreiknað
hljóminn. „Meira að segja hljóð-
maðurinn á Grammy-verðlaunun-
um fyrir nokkrum vikum síðan
kunni ekki að opna fyrir mækinn hjá
James Hetfield í Metallica. Milljónir
urðu vitni.“ Hann bætir við að það
sé ósanngjörn fullyrðing að segja að
RÚV sé ófært um útsendingar á lif-
andi tónlistarflutningi og dagskrár-
liðum og viðburðum sem RÚV ann-
ast þar sem lifandi músík kemur við
sögu. „Ég leyfi mér að fullyrða að
enginn fjölmiðill sendi út jafnmikið
af lifandi tónlistarflutningi í beinni
útsendingu ár hvert. Að þessu sögðu
vil ég sem hluti af þessari hljóðkeðju
segja, afar leitt að ekki hafi tekist að
skila því sem þið vilduð til áheyr-
enda.“
Vill finna lausnir
Unnur Birna ítrekar í samtali við DV
að það sé henni kappsmál að leita
skýringa á þessu og finna lausn-
ir. Hana langi fyrst og fremst að
vita hvað sé að. „Ég er ekki að lasta
RÚV en bara benda á hvað þurfi að
laga. Maður getur alveg móðgast,
sem listamaður. Maður hugsar sig
tvisvar um hvort mann langi að taka
þátt aftur.“ n
„Maður getur
alveg Móðgast“
n Flytjandi gagnrýnir RÚV fyrir
hljóðblöndun í söngvakeppninni
„Áberandi
vont
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Unnur Birna á sviði Unnur lést spila á fiðlu á sviðinu og bakraddasöngurinn var ósvikinn.
Myndin er úr safni. Mynd ÚR einKasaFni
Júlí Heiðar „Við vorum frábær en
hljóðblöndunin var hörmung,“ segir Júlí
Heiðar. Mynd RÚV/sÖnGVaKePPnin
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Bakarameistari & Konditormeistari
Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is
Fermingarkynning hjá Jóni Ariliuss
í Kökulist fimmtudaginn 2. mars frá kl. 17-19
Komdu með fermingarbarnið að hitta bakarann!