Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Blaðsíða 25
Vikublað 28. febrúar–2. mars 2017 Kynningarblað - Úr og skartgripir 5
Meba fagnar
70 ára afmæli
Megináhersla á góða þjónustu og gæði
A
fi minn stofnaði fyrirtækið
þann 7. júlí árið 1947, var
fyrstu tvö árin til húsa að
Barónsstíg en flutt-
ist síðan niður á
Laugaveg og var þar þar
á tveimur stöðum fram
til ársins 1985. Foreldrar
mínir, Björn Árni Ágústs-
son og Þuríður Magn-
úsdóttir, voru þá kom-
in inn í reksturinn en
þau keyptu sig inn
í reksturinn árið
1977. Árið 1985
voru komin drög
að Kringlunni sem
var síðan formlega
opnuð tveimur
árum síðar. Pabbi tók
aldrei annað í mál en
að flytja þangað og eftir
nokkrar fortölur tókst
honum að telja afa hug-
hvarf. Pabbi vissi að þetta
var framtíðin. Í millitíðinni
var fyrirtækið staðsett á
Langholtsvegi, 1985–1987.“
Þetta segir Unnur Eir
Björnsdóttir hjá Meba
sem í dag er með verslun
í Kringlunni og Smára-
lind og státar af merkilegri
70 ára sögu. Fyrirtækið
hét í upphafi Magnús E.
Baldvinsson – Úr og skartgripir en við
flutninginn í Kringluna var tekið upp
nafnið Meba en það var sett saman
úr nöfnum þáverandi aðaleigenda,
afa og föður Unnar, þeirra Magnúsar
Baldvinssonar og Björns Árna.
„Þeir töldu að nafnið þyrfti að
vera stutt og laggott eftir að versl-
unin var komin inn í stóra versl-
unarmiðstöð,“ segir Unnur. Nafnið
breyttist hins vegar í Meba/
Rhodium allmörgum árum síðar,
forsagan er þessi:
„Við opnuðum Rhodium 1998
þegar Borgarkringlan var að sam-
einast Kringlunni, en hún var ætl-
uð meira fyrir yngra fólk. Á þeim
árum héldum við að Kringlan og
Borgarkringlan myndu skiptast
hvor í sinn hlutann. Síðan rann
þetta saman og því ákváðum við
núna um áramótin að sameina
verslanirnar þannig að núna erum
við aftur komin í gamla góða Meba.
Rhodium hefur sameinast okkur
hérna niðri og verslunin í Smára-
lind heitir Meba.“ Afmælishátíð
verður hins vegar haldin í júlí, í
stofnmánuði fyrirtækisins.
Sömu áherslurnar í 70 ár
Meba hefur alltaf kappkostað að
veita góða þjónustu og selja ein-
göngu gæðavörur. „Við erum með
mikið úrval af úrum og skart-
gripum á breiðu verðbili. Okkar
megináherslur eru góð þjónusta
og gæðavörur og við kappkostum
að viðhalda þeim. Þegar fólk versl-
ar hér veit það að það er að kaupa
hluti sem eru í ábyrgð og hafa til
að bera gæði,“ segir Unnur. Á verk-
stæði okkar eru gullsmiðir, úr-
smiðir og áletrunarþjónusta og
reynum við að fullnægja óskum
viðskiptavina okkar sem best við
getum.
Meba er fyrirtækið sem hefur
lifað af hinar ýmsu sveiflur í efna-
hagslífinu og miklar þjóðfélags-
breytingar í 70 ár. Sannkallað fjöl-
skyldu- og ættarfyrirtæki – sem
hefur aldrei skipt um kennitölu.
Til gamans er hér samantekt
um staðsetningar fyrirtækis-
ins í gegnum árin: 1947–1949
Barónsstígur 1949–1975
Laugavegur 12 1975–1985
Laugavegur 8 1985–1987
Langholtsvegur 111 1987
til dagsins í dag; Kringlan
og 2001 til dagsins í dag
einnig í Smáralind. n
Hér er
Unnur Eir
að störfum
Alltaf nóg
að gera á
verkstæðinu í
Meba.
Verslun Meba - Magnús E. Baldvinsson á Laugavegi.
Fallegt úrval skartgripa, en hér má sjá hringa eftir Evu.
Meba í Kringlunni. Meba í Smáralind.
Mikið og vandað
úrval úra Hér má smá
Raymond dömuúr.