Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Page 25
Vikublað 28. febrúar–2. mars 2017 Kynningarblað - Úr og skartgripir 5 Meba fagnar 70 ára afmæli Megináhersla á góða þjónustu og gæði A fi minn stofnaði fyrirtækið þann 7. júlí árið 1947, var fyrstu tvö árin til húsa að Barónsstíg en flutt- ist síðan niður á Laugaveg og var þar þar á tveimur stöðum fram til ársins 1985. Foreldrar mínir, Björn Árni Ágústs- son og Þuríður Magn- úsdóttir, voru þá kom- in inn í reksturinn en þau keyptu sig inn í reksturinn árið 1977. Árið 1985 voru komin drög að Kringlunni sem var síðan formlega opnuð tveimur árum síðar. Pabbi tók aldrei annað í mál en að flytja þangað og eftir nokkrar fortölur tókst honum að telja afa hug- hvarf. Pabbi vissi að þetta var framtíðin. Í millitíðinni var fyrirtækið staðsett á Langholtsvegi, 1985–1987.“ Þetta segir Unnur Eir Björnsdóttir hjá Meba sem í dag er með verslun í Kringlunni og Smára- lind og státar af merkilegri 70 ára sögu. Fyrirtækið hét í upphafi Magnús E. Baldvinsson – Úr og skartgripir en við flutninginn í Kringluna var tekið upp nafnið Meba en það var sett saman úr nöfnum þáverandi aðaleigenda, afa og föður Unnar, þeirra Magnúsar Baldvinssonar og Björns Árna. „Þeir töldu að nafnið þyrfti að vera stutt og laggott eftir að versl- unin var komin inn í stóra versl- unarmiðstöð,“ segir Unnur. Nafnið breyttist hins vegar í Meba/ Rhodium allmörgum árum síðar, forsagan er þessi: „Við opnuðum Rhodium 1998 þegar Borgarkringlan var að sam- einast Kringlunni, en hún var ætl- uð meira fyrir yngra fólk. Á þeim árum héldum við að Kringlan og Borgarkringlan myndu skiptast hvor í sinn hlutann. Síðan rann þetta saman og því ákváðum við núna um áramótin að sameina verslanirnar þannig að núna erum við aftur komin í gamla góða Meba. Rhodium hefur sameinast okkur hérna niðri og verslunin í Smára- lind heitir Meba.“ Afmælishátíð verður hins vegar haldin í júlí, í stofnmánuði fyrirtækisins. Sömu áherslurnar í 70 ár Meba hefur alltaf kappkostað að veita góða þjónustu og selja ein- göngu gæðavörur. „Við erum með mikið úrval af úrum og skart- gripum á breiðu verðbili. Okkar megináherslur eru góð þjónusta og gæðavörur og við kappkostum að viðhalda þeim. Þegar fólk versl- ar hér veit það að það er að kaupa hluti sem eru í ábyrgð og hafa til að bera gæði,“ segir Unnur. Á verk- stæði okkar eru gullsmiðir, úr- smiðir og áletrunarþjónusta og reynum við að fullnægja óskum viðskiptavina okkar sem best við getum. Meba er fyrirtækið sem hefur lifað af hinar ýmsu sveiflur í efna- hagslífinu og miklar þjóðfélags- breytingar í 70 ár. Sannkallað fjöl- skyldu- og ættarfyrirtæki – sem hefur aldrei skipt um kennitölu. Til gamans er hér samantekt um staðsetningar fyrirtækis- ins í gegnum árin: 1947–1949 Barónsstígur 1949–1975 Laugavegur 12 1975–1985 Laugavegur 8 1985–1987 Langholtsvegur 111 1987 til dagsins í dag; Kringlan og 2001 til dagsins í dag einnig í Smáralind. n Hér er Unnur Eir að störfum Alltaf nóg að gera á verkstæðinu í Meba. Verslun Meba - Magnús E. Baldvinsson á Laugavegi. Fallegt úrval skartgripa, en hér má sjá hringa eftir Evu. Meba í Kringlunni. Meba í Smáralind. Mikið og vandað úrval úra Hér má smá Raymond dömuúr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.