Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Blaðsíða 22
Vikublað 28. febrúar–2. mars 20172 Úr og skartgripir - Kynningarblað Glæsileg íslensk hönnun frá Gilbert úrsmið JS Watch co. Reykjavik J S Watch co. Reykjavik úrin eru íslensk frá grunni. Þau eru hönnuð á teikniborði JS hér heima á Íslandi. Allir íhlutir úrsins eru síðan sérframleiddir eftir þeirra hönnun í mörgum, sér- hæfðum verksmiðjum í Þýskalandi og Sviss og settir saman hér á landi undir ströngu gæðaeftirliti Gilberts Ó. Guð- jónssonar úrsmiðameistara sem nýtir áralanga þekkingu og reynslu sína af úrsmíði til að tryggja að hvert og eitt úr standist ströngustu kröfur. Frá upphafi framleiðslunnar hefur verið leitast við að sameina, glæsilega hönnun, gæði, fyrsta flokks úrverk og falleg armbönd. Vönduð úr eru mun- aðarvara og fylgihlutir sem bæði karl- menn og konur njóta þess að velja, bera og eiga. En úr er ekki bara skart- gripur. Það er nytjahlutur sem hjálpar okkur að gegna skyldum okkar, halda loforð og skapa góðar minningar. Sérstaða úranna á íslenskum markaði ásamt persónulegri þjón- ustu og árangursríku markaðs- og kynningarstarfi hefur leitt til þess að úrin hafa orðið eftirsótt meðal heimsfrægra einstaklinga sem koma til landsins. Meðal þekktra einstak- linga má til gamans nefna Ben Stiller, Tom Cruise, Quentin Tarantino, Jude Law, Viggo Mortensen, Mads Mikk- elsen, Tobey Maguire, Dennis Quaid, Elvis Costello, Ian Anderson, Yoko Ono, Sean Lennon, Dalai Lama, Katie Couric, Vinnie Jones og Constantine Grikklandskonung. Fágæti úranna ásamt því að vera framleidd í hæsta gæðaflokki er það sem gerir þau eftirsóknarverð, en á skífu allra úranna stendur Reykja- vík. Það ásamt, vönduðu verki, fram- leiðslu og sígildu útliti gerir úrin fágæt og einstök. Gilbert úrsmiður hefur lagt sitt af mörk- um við að hvetja til bættrar verslunar og þjónustu við ferðamenn efst á Laugaveginum og hefur ásamt fleirum tekið ríkan þátt þátt í að byggja upp verslun í Vitahverfinu. Persónuleg þjónusta og góð vöruþekking er að- alsmerki verslunarinnar og þjónustustig verslun- arinnar er til fyrirmyndar. Viðskipta- vinir eiga kost á að hitta framleiðend- ur, fá að sjá úrsmiði að störfum og koma með ábendingar varðandi sam- setningu og útlit þeirra úra sem þeir hyggjast kaupa. Ferðamenn geta óskað eftir einkaheimsókn komist þeir ekki í verslunina á hefðbundnum opn- unartíma og eru þeir þá jafnan sóttir á hótel sitt og ekið til baka að lokinni heimsókn. Heildstæð áferð og fram- úrstefnuleg ásýnd markaðs- og kynn- ingarmála JS Watch co. Reykjavík hefur vak- ið athygli bæði innan- lands og utan. Úrvalið hefur aldrei verið meira en nánari upplýsingar um úrin og hönnunina má finna á vefsíðunni www.gilbert.is. n Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62, sími: 551-4100.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.