Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Page 22
Vikublað 28. febrúar–2. mars 20172 Úr og skartgripir - Kynningarblað
Glæsileg
íslensk
hönnun
frá Gilbert
úrsmið
JS Watch co. Reykjavik
J
S Watch co. Reykjavik úrin
eru íslensk frá grunni. Þau eru
hönnuð á teikniborði JS hér
heima á Íslandi. Allir íhlutir
úrsins eru síðan sérframleiddir
eftir þeirra hönnun í mörgum, sér-
hæfðum verksmiðjum í Þýskalandi og
Sviss og settir saman hér á landi undir
ströngu gæðaeftirliti Gilberts Ó. Guð-
jónssonar úrsmiðameistara sem nýtir
áralanga þekkingu og reynslu sína af
úrsmíði til að tryggja að hvert og eitt
úr standist ströngustu kröfur.
Frá upphafi framleiðslunnar hefur
verið leitast við að sameina, glæsilega
hönnun, gæði, fyrsta flokks úrverk og
falleg armbönd. Vönduð úr eru mun-
aðarvara og fylgihlutir sem bæði karl-
menn og konur njóta þess að velja,
bera og eiga. En úr er ekki bara skart-
gripur. Það er nytjahlutur sem hjálpar
okkur að gegna skyldum okkar, halda
loforð og skapa góðar minningar.
Sérstaða úranna á íslenskum
markaði ásamt persónulegri þjón-
ustu og árangursríku markaðs- og
kynningarstarfi hefur leitt til þess
að úrin hafa orðið eftirsótt meðal
heimsfrægra einstaklinga sem koma
til landsins. Meðal þekktra einstak-
linga má til gamans nefna Ben Stiller,
Tom Cruise, Quentin Tarantino, Jude
Law, Viggo Mortensen, Mads Mikk-
elsen, Tobey Maguire, Dennis Quaid,
Elvis Costello, Ian Anderson, Yoko
Ono, Sean Lennon, Dalai Lama, Katie
Couric, Vinnie Jones og Constantine
Grikklandskonung.
Fágæti úranna ásamt því að vera
framleidd í hæsta gæðaflokki er það
sem gerir þau eftirsóknarverð, en á
skífu allra úranna stendur Reykja-
vík. Það ásamt, vönduðu verki, fram-
leiðslu og sígildu útliti gerir úrin fágæt
og einstök.
Gilbert úrsmiður
hefur lagt sitt af
mörk-
um við að hvetja til bættrar verslunar
og þjónustu við ferðamenn efst á
Laugaveginum og hefur ásamt fleirum
tekið ríkan þátt þátt í að byggja upp
verslun í Vitahverfinu. Persónuleg
þjónusta og góð vöruþekking er að-
alsmerki verslunarinnar og
þjónustustig verslun-
arinnar er til fyrirmyndar. Viðskipta-
vinir eiga kost á að hitta framleiðend-
ur, fá að sjá úrsmiði að störfum og
koma með ábendingar varðandi sam-
setningu og útlit þeirra
úra sem þeir hyggjast
kaupa. Ferðamenn
geta óskað
eftir einkaheimsókn komist þeir ekki
í verslunina á hefðbundnum opn-
unartíma og eru þeir þá jafnan sóttir
á hótel sitt og ekið til baka að lokinni
heimsókn. Heildstæð áferð og fram-
úrstefnuleg ásýnd markaðs- og kynn-
ingarmála JS Watch co. Reykjavík
hefur vak- ið athygli bæði innan-
lands og utan.
Úrvalið hefur aldrei verið meira
en nánari upplýsingar um úrin og
hönnunina má finna á vefsíðunni
www.gilbert.is. n
Gilbert úrsmiður,
Laugavegi 62,
sími: 551-4100.