Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Blaðsíða 23
Vikublað 28. febrúar–2. mars 2017 Kynningarblað - Úr og skartgripir 3
Framúrskarandi íslensk hönnun:
Úr, skartgripir og borðbúnaður
Erna gull- og silfursmiðja, Skipholti 3
E
rna gull- og silfursmiðja
rekur sögu sína allt aftur til
ársins 1924 og fer fyrirtækið
því að nálgast 100 ára af-
mæli. Guðlaugur A. Magnús-
son gullsmiður hóf starfsemi sína á
Ísafirði í febrúar árið 1924 með gull-
og silfursmíðaverkstæði ásamt til-
heyrandi verslun með framleiðslu
verkstæðisins. Starfsemin fluttist til
Reykjavíkur árið 1927 og hefur ver-
ið í höfuðborginni síðan þá. Auk úra
og skartgripa hefur fyrirtækið verið
framarlega í hönnun og framleiðslu
borðbúnaðar.
Í dag er Erna til húsa að Skipholti
3, Reykjavík. Framkvæmdastjóri
fyrir tækisins er Sara Steina Reynis-
dóttir, en faðir hennar, Reynir Guð-
laugsson, var meistari smiðjunnar
frá árunum 1952 til 2001.
Við hönnun gripa í Ernu er fornt
handverk í hávegum haft og
flestir munir eru handsmíð-
aðir. Hér að neðan er stiklað
á stóru um nokkra merkilega
gripi sem hafa verið þróaðir
og hannaðir í Ernu:
Njáluarmbandið
Ríkarður Jónsson, einn
fremsti listamaður þjóðar-
innar á 20. öld, teiknaði
armbandið fyrir Guðlaug A.
Magnússon gullsmið, inn-
blásinn af Njáls sögu. Karl
Guðmundsson, myndskeri
frá Þinganesi, er nam hjá
Ríkarði, var fenginn til
þess að skera út frumgerð
armbandsins. Karl hann-
aði einnig silfurmuni sem
framleiddir hafa verið, eins
og armbandið hjá Gull-og
silfursmiðjunni Ernu um
áratuga skeið. Djúpar rætur
magna glæsileik þessa fagra
grips er fylgir eiganda sín-
um, tímalaust djásn. (verð
159.200,-).
Faber Islandicus
Herraskartgripalína sem á sér rætur í
germanskri járnöld. Massífir, verkleg-
ir hlutir, hringar (15.500,-)
og ermahnappar (25.500,-).
Silfurborðbúnaður
Klassískur íslenskur silfurborðbún-
aður með mynstrum sem hafa ís-
lensk þemu, sum úr blómaríkinu.
Gripir sem prýða borð hjá fagurker-
um hér heima og erlendis – í raun
eitt best geymda leyndarmálið á Ís-
landi!
YRSA Reykjavík
Íslenskt úramerki þar sem nýjungar
koma fram reglulega. Núna er sjö-
unda herraúrið í línunni komið fram
en það er sjálfvinda (automatic).
Bæði dömu- og herraúr eru fram-
leidd í þessari flottu línu og eru þau
á verðbilinu 15.000–50.000 kr.
Pierre Lannier
Kristal Line-úrin hafa slegið rækilega
í gegn í Frakklandi og víðar. Skífan er
úr Swarovski-kristöllum og verkið er
svissneskt. Verðið er það sama og í
heimalandinu Frakklandi (sem ekki
er algengt á Íslandi), á bilinu 16.000
til rétt rúmra 20.000. Sending sem
kom fyrir jól seldist upp á nokkrum
dögum en núna er komin ný sending
(úr á mynd sem fylgir greininni
kostar 16.000 kr.).
Trúlofunarhringar
Úr gulli, hvítagulli, silfri, titanium,
tungsten, palladíum og platínu.
Verðbil frá 16.500 og upp úr (tung-
sten-par á mynd 19.500,-).
Verslunin að Skipholti 3 er opin
virka daga frá kl. 10 til 18. Nánari
upplýsingar um fyrirtækið er að
finna á vefsíðunni erna.is. n