Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Blaðsíða 37
Vikublað 28. febrúar–2. mars 2017 Menning 29 10 bestu íslensku bíómyndirnar Best að mati þjóðarinnar Almúginn er ekki alltaf sammála sérfræðingunum og því gáfum við lesendum tækifæri til að velja sína uppáhaldsmynd í kosningu á dv.is um síðastliðna helgi. Hægt var að velja milli 40 vinsælla kvikmynda og var niðurstaðan eftirfarandi. 1. Stella í orlofi 2. Englar alheimsins 3. Sódóma Reykjavík 4. Með allt á hreinu 5. Djöflaeyjan 6. Vonarstræti 7. Nýtt líf 8. Börn náttúrunnar 9. Svartur á leik 10. Hrútar 6 Sódóma Reykjavík (1992) Sódóma Reykjavík er einhver best heppnaða grínmynd sem gerð hefur verið á Íslandi. Hún var frumsýnd í lok árs 1992 og naut strax mikilla vinsælda, árið eftir var hún svo sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Sódóma er fyrsta mynd Óskars Jónassonar í fullri lengd og fjallar hún um bifvélavirkjann Axel, leikinn af Birni Jörundi Friðbjörnssyni, sem kemst í vandræði þegar sjónvarpsfjarstýring mömmu hans týnist. Leitin breytist fljótlega í æsilegan og farsakenndan eltingarleik um undir- heima Reykjavíkur, þar sem ógleymanlegir karakterar á borð við Brjánsa sýru ráða ríkjum, og endar líklega í frægasta partíi íslenskrar kvik- myndasögu á Dúfnahólum 10. Handrit Óskars er frábært og sést það best á hinum fjölmörgu frösum sem hafa lifað með þjóðinni undanfar- in 25 ár. Það er varla hægt að hugsa um partístand í Reykjavík án þess að vitna á einhvern hátt í Sódómu Reykjavík, og má til dæmis nefna að nöfn tveggja skemmtistaða sem starfræktir hafa verið í borginni á undanförnum árum hafa verið beinar tilvísanir í myndina. Tónlistin leikur stórt hlutverk í þessu og var titillag myndarinnar með Sálinni hans Jóns míns meðal annars valið besta íslenska kvikmyndalagið á Edduverðlaunahátíðinni 2015. 5 Stella í oRlofi (1986) Stella í orflofi er eina myndin sem er leikstýrt af konu sem nær á listann yfir 11 bestu myndirnar. Stella í orlofi er enn fremur efsta hreinræktaða grín- myndin á listanum. Stella sem leikin er af Eddu Björgvinsdóttur er ein eft- irminnilegasta persóna íslenskrar kvikmyndasögu, í myndinni glímir hún meðal annars við geðilla karla, tryllt börn, alkóhólista, flugmenn, Lions- klúbbinn Kidda, danskar drósir og laxeldi. Maríanna Friðbjörnsdóttir, fjölmiðlari, nefnir myndina sem eina þá bestu í íslenskri kvikmyndasögu: „Stella er holdgervingur íslenskra kvenna og hún finnst víða í dag. Handritið er eftir Guðnýju Halldórsdóttur, Þórhildur Þor- leifsdóttir leikstýrði og aðalhlutverkið er í höndum Eddu Björgvins. Þegar þessar þrjár konur leggjast á eitt, kemur eingöngu snilldin ein út úr því og Stella í orlofi er ein ástsælasta gamanmynd sem framleidd hefur verið á ís- lenska kvikmyndamarkaðnum.“ Þórir Snær Sigurðarson, umsjónarmaður Hvíta Tjaldsins á ÍNN, nefnir hana einnig sem eina bestu íslensku myndina frá upphafi: „Það verður seint sagt að hún sé mjög menningarleg eða listræn en er hins vegar full af eftir- minnilegum persónum og drepfyndnum augnablikum. Einfaldur söguþráð- ur og mikið, vel heppnað grín er oft ávísun á góða gamanmynd!“ Nína Richter, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, segir myndina einnig vera í sérstöku uppáhaldi: „Íslensk kvikmyndagerð virðist oft einskorðast við þyngra efni, og þar af leiðandi er grínformið komið frekar stutt á veg. Danir eru til dæmis miklu betri en við í þessu, og Norðmenn líka, en samt erum við mögulega fyndnasta þjóð í heimi miðað við höfðatölu. Ég elska góðar grín- myndir, og Stella er best heppnaða grínmynd Íslandssögunnar. Myndin var gerð fyrir rúmlega þrjátíu árum en húmorinn í henni er bara merkilega sí- gildur, sem er mjög óvenjulegt fyrir gamanmyndir. Skopskynið hjá þjóðinni breytist svo mikið og hratt og okkur finnst kannski eitthvað tabú í dag sem okkur þótti fyndið fyrir 30 árum og öfugt. En þessi mynd bara virkar, sagan er geggjuð, þemun klassísk og Edda Björgvins, Gestur Einar og Laddi í þessum fáránlegu hlutverkum sínum geta ennþá fengið mig til að grenja úr hlátri.“ 4 djöflaeyjan (1996) Það kemur ekki á óvart að Friðrik Þór Friðriksson sé sá leikstjóri sem á flestar myndir á listanum yfir bestu íslensku bíómyndirnar, þrjár af ellefu bestu myndunum samkvæmt álitsgjöfum DV. Kvikmyndin Djöflaeyjan frá 1996 er byggð á metsölubókum Einars Kárasonar um lífið í Braggahverfinu í Reykjavík eftir seinna stríð. Sagan segir frá sorgum og sigrum stórfjölskyldu Karólínu spákonu, fjölskylduátök, vináttu, lífsbaráttuna, ástina og sorgina. „Á sínum tíma dýrasta mynd Íslandssögunnar og það sést á skjánum,“ segir Valur Gunnarsson, rithöfundur og kvikmyndagagnrýnandi. „Bragga- hverfi eftirstríðsáranna eru endurreist og því miður er allt of sjaldan sem maður sér Íslandssöguna endurskapaða með þessum hætti. Balti er eins og fæddur í hlutverk Badda, meira að segja nöfnin eru svipuð. Fangar and- rúmsloft sögu og tímabils vel.“ Baldvin Z kvikmyndagerðarmaður nefnir myndina sem eina af þeim allra bestu í íslenskri kvikmyndasögu: „Gísli Halldórsson tók mann í tilfinninga- legt ferðalag sem ég hef bara upplifað í þessari frábæru mynd Friðriks. Það er leikur hans sem setur þessa mynd í þennan flokk fyrir mig.“ „Í Djöflaeyjunni kemur fram fjölbreyttur hópur þekktustu leikara þjóðar- innar, og af mörgum kynslóðum og sennilega yrði erfitt að finna betri heim- ild um leikaraflóruna á Íslandi á þessum tíma. Flott tónlist, góð myndataka og viðeigandi umhverfi gerir Djöflaeyjuna að períódumynd eins og hún ger- ist best!“ segir Þórir Snær Sigurðarson, umsjónarmaður kvikmyndaþáttarins Hvíta tjaldsins á ÍNN. framhald á næstu síðu 

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.