Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Qupperneq 12
Vikublað 28. febrúar–2. mars 201712 Fréttir
Norðurljósin heilla
Ferðamennirnir höfðu lúmskt gaman af því að horfa á Íslendinga grafa sig út úr húsum sínum á sunnudaginn
Þ
að var kalt en fallegt veður á
höfuðborgarsvæðinu í gær,
mánudag, þegar blaðamaður
DV og ljósmyndari brugðu sér
út úr húsi í þeim tilgangi að
spjalla við ferðamenn. Ekki þurfti að
leita lengi og var fólk, frá öllum heims-
hornum, tilbúið til að spjalla. Allir sem
rætt var við voru gríðarlega ánægðir
með ferðina og hrósuðu umhverfinu
og meira að segja snjónum í hástert.
Þá virðast ferðamenn, allavega miðað
við þetta litla úrtak, ekkert kippa sér
upp við hátt verðlag á Íslandi. Öll voru
þau sammála um að norðurljósin hafi
haft mesta aðdráttaraflið. n
Donna Goyethehe og Marion
Mossman, Nova Scotia í Kanada
Þær Donna og Marion komu til Íslands í skipulagða hópferð ásamt stórum hópi Kanada- og
Bandaríkjamanna. Þar sem þær eru frá Nova Scotia í Kanada létu þær snjóinn, sem nú þekur
höfuðborgarsvæðið, ekki koma sér úr jafnvægi heldur dást þær að því hvað hann er hvítur.
„Í Nova Scotia er mikið af reykháfum og mengum sem gerir að verkum að snjórinn er
yfirleitt grár á litinn. En sú er alls ekki raunin á Íslandi, við getum bara ekki hægt að dásama
hvað snjórinn hérna er hreinn og ferskur.“ Á miðvikudaginn ætla þær Donna og Marion
Gullna hringinn en í kvöld ætla þær að freista þess að sjá norðurljósin.
„Ástæðan fyrir því að við komum til Íslands er sú að okkur langaði að sjá norðurljósin.
Við erum líka forvitnar um eldfjöllin ykkar og jarðvarma.“
Þeim Donnu og Marion þykir miðborg Reykjavíkur hugguleg og þeim þykir heldur ekkert
dýrt hérna. Að minnsta kosti voru þær undirbúnar fyrir að það yrði mun dýrara að vera á
Íslandi.
„Verðlagið er eiginlega bara svipað og heima. Það sem sagt pirrar okkur ekkert. Við
erum komnar hingað til að njóta lífsins og hingað til hefur allt staðist væntingar og gott
betur en það.“
Gaelle og Alexandre Perrier,
Nice í Frakklandi
„Þetta er búið að vera ævintýraleg ferð,“ segir Gealle Perrier sem er í vikuferðalagi á Íslandi
ásamt eiginmanni sínum Alexandre. Þau komu til landsins frá Nice í Frakklandi síðastliðinn
miðvikudag, þar sem þau eru búsett, og eru búin að afreka heilmargt síðan. Bæði eru heilluð
af Íslandi og eru sammála um að hápunktur ferðarinnar, hingað til, hafi verið þegar þau sáu
norðurljósin.
„Það var ótrúleg upplifun að vakna á sunnudagsmorguninn og allt var á kafi á snjó. Við
höfum auðvitað séð snjó áður en ekki svona mikið snjófall á nokkrum klukkustundum. Þetta
var rosalegt.“
Gærdeginum eyddu þau í rólegheitum í miðborginni sem þau segja einstaklega huggu-
lega. Þá eru þau búin að fara Gullna hringinn, skoða Jökulsárlón. „Við erum búin að hafa það
mjög gott og værum alveg til í að vera hérna lengur.“
Kristín Clausen
kristin@dv.is
„Okkur langaði bara að sjá eitthvað alveg
nýtt. Ekki fara á svona dæmigerðan
áfangastað eins og París eða Róm heldur
eitthvað allt öðruvísi,“ segir Claire Liao sem
er á ferðalagi á Íslandi ásamt vinkonum
sínum Rosu, Mavis og Peggy. Þær hafa
ferðast víða saman og vildu í þetta skiptið
gera eitthvað öðruvísi. Því varð Ísland fyrir
valinu.
Helsta ástæðan fyrir því að þær tóku Ísland
fram yfir aðra norræna áfangastaði er sú
að allar langaði þær að sjá norðurljósin.
„Íslensku norðurljósin eru mikið markaðs-
sett fyrir ferðamenn bæði í auglýsingum og
í kvikmyndum. Það var erfitt að standast
freistinguna. Ég skal alveg viðurkenna það.“
Þá segjast þær hafa ákveðið að koma til
Íslands á meðan þær eru enn ungar þar sem
þetta sé langt frá heimalandinu, Taívan.
Þær eru búnar að leigja bíl fyrir morgun-
daginn og ætla að keyra út á land. Þá eiga
þær bókað í Bláa lónið og í kvöld ætla þær
að freista þess að sjá norðurljósin.
„Þetta er búið að vera æðislegt. Það eina
sem ég get sett út á er að það eru bygginga-
kranar úti um allt. Ég bjóst við að það væri
meiri svona „sveitafílingur“ í miðbænum
en það er verið að byggja risastór hús úti
um allt. En það verður kannski líka bara
sjarmerandi. Hver veit.“
Claire Liao, Rosa Chen, Mavis Chien, Peggy Chen: Vinkonur frá Taívan