Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Síða 20
Vikublað 28. febrúar–2. mars 2017 Heimilisfang Kringlan 4-12 4. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7000 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 20 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Ég vil ekki eldast og hafa ekkert að gera Ásgerður Guðbjörnsdóttir hefur sótt um á annað hundrað störf. – lifdununa.is Björn ekki ánægður með Helga Björn Bjarnason, fyrrverandi ráð- herra, er ekki sáttur við Helga í Góu. Í viðtali við helgarblað DV, ræddi Helgi um eitt helsta bar- áttumál sitt, það að lífeyrissjóðir fjárfesti í hús- næði sem hentar öldruðum. Helgi gagnrýndi jafn- framt unga Sjálf- stæðismenn fyr- ir að vilja koma áfengi í matvöruverslanir og vildi sjá þá jafn ákafa í að gömlu fólki liði vel í ellinni. Björn kvart- ar undan því að Helgi hnýti einungis í unga Sjálfstæðismenn þegar þingmenn úr Viðreisn, Pírötum og Bjartri framtíð séu meðal flutningsmanna áfengis- frumvarpsins. Um áherslu Helga á að lífeyrissjóðir fjárfesti í hús- næði fyrir aldraða segir Björn: „Helgi hefur helgað sig þessu baráttumáli sínu árum saman án þess að hafa árangur sem erfiði. Hann er því í svipuðum sporum og þeir sem lengst hafa barist fyrir að áfengi verði selt utan vín- búða ríkisins.“ Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af íþróttagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Sportgleraugu Red Bull sólgleraugu kr. 14.950,- Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Já, ég geri það. Þú sérð hvað ég er myndarlegur! Helgi í Góu spurður hvort hann borði Kentucky og sælgætið sem hann framleiðir? – dv.is Umræðan um innflutning á hráu kjöti hefur verið allt of pólitísk. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, um innfluttar kjötvörur – Reykjavík síðdegis Þ að voru ekki óvænt tíðindi að endurupptökunefnd skyldi kveða upp þann úrskurð að taka bæri upp að nýju Guð- mundar- og Geirfinnsmálið. Ef niðurstaðan hefði orðið önnur væri það reginhneyksli. Svo ótal margt fór úrskeiðis við rannsókn málsins á sínum tíma. Allt kapp var lagt á að upplýsa það, sem skiljanlegt er, og þeir sem unnu að rannsókn málsins fundu sannar- lega fyrir miklum þrýstingi. En það er ekki sama hvernig menn bera sig að og þarna virtist ekki vera hirt um sannanir. Í úrskurði endurupp- tökunefndar er sagt frá harðræði sem lög- regla beitti sakborn- inga í þeim tilgangi að þvinga fram játn- ingar. Þær upplýs- ingar koma ekki á óvart, þjóðin hefur lengi heyrt frásagnir um slíkt. Um rétt sakborninga var ekki hirt – sennilega þótti sá réttur lítils virði. En einmitt þannig mega hlutirnir ekki vera. Vinnubrögð þeirra sem rannsaka sakamál eiga að vera vönduð og játningar á ekki að knýja fram með harðræði. Við getum ekki fallist á það að rétt sé að beita fólk pyntingum til að upplýsa mál. Slík- ar aðferðir kalla mjög auðveldlega á falskar játningar Skuggar Guðmundar- og Geir- finnsmálsins hafa ekki aðeins fylgt þeim sem ranglega voru fangelsaðir og sakfelldir, heldur einnig afkom- endum þeirra. Líf alls þessa fólks hef- ur verið markað af málsmeðferð sem er smánarblettur á réttarkerfinu, og aldrei mun mást af. Það er vissulega léttir fyrir þessa einstaklinga að mál- in verði endurupptekin, þótt það hefði þurft að gerast mun fyrr. Sæv- ar Ciesielski er látinn en hann vann af mikilli elju að því að fá mál sitt endurupptekið, með engum árangri. Hann barðist við ofurefli og átti sára- litla möguleika á sigri. Endurupp- taka hefði verið afar óþægileg fyrir dómskerfið sem hefði þurft að viður- kenna röð af mistökum. Þegar stað- an er þannig finnst valdamönnum auðveldara að þjappa sér saman í vörn fyrir kerfið. Það er forkastanlegt að reyna að koma í veg fyrir endurupptöku mála af ótta við að blettur falli á dómskerfið. Dómskerfið á ekki að vera ósnertanlegt og má ekki fela mistök sín, heldur á að gangast við þeim. Stór hluti þjóðarinnar telur að í Guðmundar- og Geirfinns- málinu hafi átt sér stað réttarmorð. Ekkert getur bætt þeim sem urðu að þola rangar sakargiftir og sátu í fangelsi þann mikla skaða sem þeir urðu fyrir. Endurupptaka getur þó hreinsað nafn þeirra – og það skiptir máli. n Smánarblettur Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Myndin Fannfergi Það höfðu margir tilefni til að kætast á sunnudagsmorgun þegar fallið höfðu rúmir fimmtíu sentimetrar af snjó. Ekki síst yngsta kynslóðin sem fann sér tilefni til leikja á meðan fullorðnir leituðu að bílum sínum í snjónum. mynd SIGtryGGur ArI „Stór hluti þjóðarinnar telur að í Guðmund- ar- og Geirfinns- málinu hafi átt sér stað réttarmorð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.