Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Síða 24
Vikublað 28. febrúar–2. mars 20174 Úr og skartgripir - Kynningarblað
Klukkan, Hamraborg 10 og Klukkan.is
K
lukkan er fyrirtæki sem sam-
einar það besta úr fortíðinni
og nútímanum. Annars
vegar er hún yfir 40 ára göm-
ul úra- og skartgripaversl-
un, staðsett á grónum verslunarstað
á höfuðborgarsvæðinu, nánar til-
tekið í Hamraborginni í Kópavogi;
hins vegar nútímaleg netverslun sem
fer sístækkandi og býður upp á af-
bragðsþjónustu, meðal annars gjald-
fría heimsendingu um allt land.
Klukkan var stofnuð árið 1975 og
hefur alla tíð verið staðsett í Hamra-
borg. Fyrirtækið er í eigu Viðars
Haukssonar úrsmíðameistara og fjöl-
skyldu hans. Boðið er upp á mikið úr-
val af úrum og skartgripum. Einnig er
mikið úrval af klukkum í öllum stærð-
um og gerðum, en einnig skírnargjöf-
um og nafnagjöfum ásamt annarri
tengdri gjafavöru. Meðal helstu úr-
amerkjanna í Klukkunni eru Hugo
Boss, Daniel Wellington, DKNY,
Tommy Hilfiger, Raymond Weil,
Fossil og Seiko. Meðal helstu vöru-
merkja í skartgripum eru íslensku
merkin Sign og Lovísa og danska
skartgripalínan frá Kranz.
Núna er Klukkan að taka inn nýjar
klukkur og úr frá Newgate, bresku
merki sem hefur notið mikilla vin-
sælda víða. Vörurnar eru væntanlega
í sölu fyrstu vikuna í mars.
Verslunin í Hamraborg 10 er opin
virka daga frá kl. 10 til 18 en laugar-
daga frá 11 til 14. Símanúmer er
554-4320, og má nálgast allar
frekari upplýsingar á heimasíðu
verslunarinnar, klukkan.is.
Öflug netverslun og frí
heimsending um land
allt
Sem fyrr segir er mikill
kraftur í netverslun Klukk-
unnar á slóðinni klukkan.
is. Er það metnaður Klukk-
unnar að vera leiðandi í net-
verslun með úr og skartgripi á
Íslandi. Almennt leggur Klukk-
an mikla áherslu á góða þjón-
ustu við viðskiptavini og að það
sé auðvelt og þægilegt að eiga
viðskipti við fyrirtækið. Lykilatriði
þar er að reka svo öfluga netversl-
un að það skipti ekki máli hvar við-
skiptavinir Klukkunnar búi þó að
vissulega sé alltaf gaman að koma í
verslunina í Hamraborg 10.
Sem fyrr segir eru allar vörur
sendar frítt hvert á land sem er. Á
höfuðborgarsvæðinu eru pantanir
að jafnaði keyrðar heim samdægurs
á virkum dögum sé pantað á af-
greiðslutíma verslunarinnar.
Pantanir út fyrir höfuðborgarsvæðið
berast á 1–2 virkum dögum.
Nánari upplýsingar á klukkan.is. n
Verslun með langa sögu og
framúrskarandi netverslun