Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Side 34
Vikublað 28. febrúar–2. mars 201726 Lífsstíll n Rannsókn varpar ljósi á áhrif þess að hugsa um vinnuna heima n „Þetta gengur af fólki dauðu“ R eykingar, drykkja eða neysla á óhollum fæðutegundum þurfa ekki að vera hættuleg- ustu venjurnar í lífi fólks. Ný rannsókn sýnir að streitan sem fylgir því að taka vinnuna með sér heim, vera alltaf í sambandi og trufla þannig fjölskyldulífið – er sennilega skaðlegast af öllu. Þetta kemur fram í Sunday Times. Freistingin til að sinna vinnunni utan vinnutíma gerir að verkum að tími fólks á heimilinu veldur því meira álagi en tíminn í vinnunni. Með rannsókninni, sem kostuð var af bresku tryggingafyrirtæki, hefur í fyrsta sinn tekist að tengja þá hátt- semi, að vera alltaf tengdur, við hjarta- og æðasjúkdóma. Rannsóknin leiðir í ljós að meira en helmingur vinnandi fólks í borgar samfélögum finnur fyr- ir minna álagi í vinnunni en heima fyrir, þar sem togstreita á milli einka- lífs og vinnunnar ræður ríkjum. Fólk laumast til að fylgjast með vinnunni – og þykist ekki fylgjast með vinnunni – en nær um leið ekki að slaka á. Miklu alvarlegra en menn héldu Rannsakendur festu á þátttakendur armbönd sem mældi púls og fylgd- ust þannig með álaginu. Niðurstöð- urnar voru á þá leið að álagið jókst til muna þegar fólkið fór að fylgjast með vinnunni heima fyrir. David einn höfunda rannsóknar- innar, segir að menn hafi lengi vitað að of mikil vinna veldur streitu. „Nú getum við séð hvernig þetta gerist. Þetta er miklu alvarlegra en við sáum fyrir. Þetta gengur af fólki dauðu. Nú getum við sýnt fram á að það er mjög skaðlegt að vinna heima, utan vinnutíma.“ Niðurstöður rannsóknarinnar birtust í nýjasta tölublaði Frontiers in Human Neuroscience. Snjallsímar og fartölvur Tryggingafélög eru nú sögð vera að fylgjast með starfsfólki þar sem álag er mikið til að komast til botns í því hvort skortur á þeim eiginleika að slíta sig frá vinnunni komi nið- ur á frammistöðu þeirra til að sinna störf unum. Haft er eftir Gordon Henderson, framkvæmdastjóra nýsköpunar hjá AXA PPP Healthcare, að tímarnir hafi breyst. Áður fyrr hafi fólk ekki getað fylgst með vinnunni heiman frá sér en með tilkomu snjallsíma, fartölva og annarra samskiptatækja, sé fólk alltaf tengt, hvort sem því líkar betur eða ver. „Þetta er fyrsta kynslóðin sem þarf að glíma við af- leiðingar þessa.“ Börnin valda streitu Unnið er að frekari rannsóknum í kjölfar þeirrar sem hér er rætt um. Þannig eru 550 starfsmenn franska bankans BNP Paribas, staðsettir í London, undir eftirliti. Frumniður- stöður sýna að barnafólk í hópnum glímir við hættulega mikla streitu til klukkan hálf níu á kvöldin, eða þar til yngri börnin eru sofnuð. Sumir glíma við mikla streitu allt fram að svefni. Lítill hluti þátttakenda, eða um 25 starfsmenn, vaknar á nóttunni, á milli klukkan þrjú og fjögur, eftir grunnan svefn og leiðir hugann að vinnunni. Fólkinu í þeim hópi tekst ekki að hvílast þannig að það mæti endurnært til vinnu. Arm- böndin afhjúpuðu að sumir í þess- um hópi nýttu tækifærið þegar þeir vöknuðu og lásu eða sendu tölvu- póst í rúminu. n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is LífshættuLegt að taka vinnuna heim Unnið heima Sumir geta aldrei slitið sig frá vinnu - tekið úr sambandi. Mynd 123rf.coM Hvað er streita? Af doktor.is Streitu má skilgreina sem ákveðin viðbrögð líkamans við álagi eða kröfum sem gerðar eru til okkar hvort sem þær eru ímyndaðar eða ekki. Öll streita, hvort sem hún er jákvæð eða neikvæð, veldur því að líkaminn fer að framleiða efni (líkt og adrenalín) til að búa okkur undir áreynslu. Hjartsláttur eykst, blóð- þrýstingur hækkar, augun þenjast út og blóð streymir ekki til innyflanna. Hluti af taugakerfinu er háður þessum viðbrögð- um. Svo er annar hluti taugakerfisins sem ber ábyrgð á hvíld, slökun, meltingu matvæla, ónæmiskerfinu og öllum öðrum „húsverkum“ líkamans. Líkaminn sveiflast á milli þessara tveggja kerfa sem í sameiningu mynda ósjálfráða taugakerfið. PLUSMINUS OPTIC Smáralind www.plusminus. is Sumar kaupauki Sólgler með öllum gleraugum Index 1,5* Sjóngler plusminus.is • sími: 517 0317 Hágæða sjóngler frá nOVa TIlBOð Margskipt sjóngler frá 49.900 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.