Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Síða 46
Vikublað 28. febrúar–2. mars 201738 Fólk
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu
þjónustu
okkar á
Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
Ó
hætt er að segja að gleðin hafi
verið við völd á Hótel Hilton
Reykjavík Nordica á sunnu-
dagskvöld þegar Edduverð-
launin 2017 voru afhent. Um
er að ræða stærstu verðlaunahátíð
sem haldin er hér á landi á sviði kvik-
mynda- og sjónvarps.
Kvikmyndin Hjartasteinn var
ótvíræður sigurvegari kvöldsins
en myndin hlaut alls tíu verðlaun,
meðal annars sem kvikmynd ársins,
fyrir leikstjórn, handrit, kvikmynda-
töku og klippingu. Blær Hinriksson
var valinn besti leikarinn fyrir Hjarta-
stein en Hera Hilmarsdóttir besta
leikkonan fyrir Eiðinn. Helgi Seljan
var valinn sjónvarpsmaður ársins og
Ligeglad var valið besta leikna sjón-
varpsefni ársins.
Ljósmyndari DV var á svæðinu og
náði þessum myndum. n
Stærsta kvöld ársins
Edduverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á sunnudagskvöld
Snyrtilegir Guðni Th.
Jóhannes son, forseti Íslands, og
Bjarni Benediktsson forsætis-
ráðherra voru léttir í lund þegar
Edduverðlaunin voru afhent.
Mikið hefur mætt á þeim síðustu
mánuði.
Öflugt teymi Aðstandendur þáttarins Með okkar augum voru kátir þegar verðlaunin voru
afhent. Þátturinn var valinn Menningarþáttur ársins og er vel að þeim verðlaunum kominn.
Sigurvegarar Hjartasteinn sópaði að sér verðlaunum á hátíðinni og hlaut alls tíu
verðlaun. Aðalhlutverkin voru í höndum ungra og efnilegra leikara sem svo sannarlega eiga
framtíðina fyrir sér.
Frábærar Tvær af ástsælustu leikkonum þjóðarinnar, Edda Björgvins-
dóttir og Helga Braga Jónsdóttir, voru brosmildar að vanda á hátíðinni.
Töff mæðgur Svala Björgvinsdóttir og Ragnheiður Björk
Reynisdóttir voru glæsilegar á hátíðinni á sunnudagskvöld. Svala
undirbýr sig nú af kappi fyrir forkeppni Eurovision um næstu helgi.
Ráðherra og fréttakonur Bjarni Benediktsson forsætisráðherra stillir sér hér upp við
hlið Fanneyjar Birnu Jónsdóttur, fyrrverandi aðstoðarritstjóra Fréttablaðsins, og Viktoríu
Hermannsdóttur, fréttakonu hjá RÚV. Kærasti Viktoríu, grínistinn og þúsundþjalasmiðurinn
Sólmundur Hólm, var kynnir hátíðarinnar.
Í stuði Hjónin Vilborg Halldórsdóttir og Helgi Björnsson voru í sínu
fínasta pússi á hátíðinni.