Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Side 2
Vikublað 21.–23. mars 20172 Fréttir
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook
„Virkilega
krípí mál“
„Þetta er virkilega krípí mál,“
segir Silja Unnarsdóttir, eigandi
hryssnanna tveggja sem grunur
leikur á að hafi sætt kynferðislegri
misnotkun á milli jóla og nýárs
á síðasta ári. Sleipiefni, olíur og
plasthanskar fundust í einni stí
unni. Rannsókn lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu á málinu
hefur nú verið hætt nema nýjar
vísbendingar berist.
RÚV greindi frá því á mánudag
að engin lífsýni og engin nothæf
fingraför hefðu fundist í hesthús
inu. Lögreglan sé því enn á byrj
unarreit í rannsókninni. Silja til
kynnti málið til Matvælastofnunar
í lok árs 2016 sem kærði málið og
fór fram á rannsókn lögreglu
Þegar blaðamaður DV náði tali
af Silju, sem er dýralæknir, í gær,
mánudag, kvaðst hún sjálf ekki
hafa fengið að heyra að rannsókn
málsins væri lokið. „Ég átti ekkert
sérstaklega von á því að eitthvað
fyndist. Þetta er ekki beint glæpur
sem hægt er að upplýsa auðveld
lega. Það er ekki auðvelt að finna
gerandann nema hann viður
kenni það sjálfur.“
Þá segir Silja að svo margir
gangi um hesthúsið þar sem
hryss urnar eru geymdar að það
hefði verið erfitt að bera saman
fingraför til að finna meintan ger
anda.
Í frétt um málið frá því í byrjun
janúar segir að eiginmaður Silju
hafi, að morgni þriðjudagsins 27.
desember, séð kassa innst í einni
stíunni sem ekki átti þar heima.
Hann fjarlægði kassann og kláraði
morgunverkin. Um kvöldið var
kassinn kominn aftur inn í stíu.
Ummerki eftir sleipiefni fund
ust svo á tveimur hryssum. „Hvað
gerðist nákvæmlega veit ég auð
vitað ekki,“ segir Silja sem telur þó
yfirgnæfandi líkur á að dýrin hafi
verið misnotuð kynferðislega.
S
vona getur einn einstaklingur
skipt miklu máli þegar blóð
söfnun er annars vegar. Við
þurfum fleiri Ólafa,“ seg
ir í frétt á vef Blóðbankans um Ólaf
Helga Kjartansson, lögreglustjóra
á Suðurnesjum, sem gaf blóð í 200.
skipti á mánudag.
Þetta er í fyrsta skipti í sögu Blóð
bankans sem einn og sami blóð
gjafi nær því marki að gefa 200 sinn
um blóð. Í heildina hefur Ólafur
Helgi gefið um 90 lítra af blóði og má
þannig gera ráð fyrir að hann hafi
hjálpað á milli tvö til þrjú hundruð
manns með gjöfum sínum.
„Ef hver blóðgjöf tekur að meðal
tali um 30 mínútur hefur hann varið
að minnsta kosti 100 klukkustundum
í Blóðbankanum. Þetta er ómetan
legt framlag.“
Í fréttinni kemur fram að Ólafur
Helgi hafi gefið blóð í fyrsta sinn á
síðasta ári sínu í Menntaskólanum í
Reykjavík þann 19. mars 1972, þá 18
ára gamall. Síðan hefur hann gefið
blóð reglulega og oft haft mikið fyrir
því að komast í blóðgjöf. Ólafur var
um tíma blóðflögugjafi og kom þá í
blóðskiljuvél reglulega. Eftir það hef
ur ferillinn verið nokkuð samfelldur
og það þrátt fyrir 18 ára búsetu á Ísa
firði, en allar Reykjavíkurferðir voru
skipulagðar þannig að nauðsynleg
erindi, bæði vegna starfa og setu
í bæjarstjórn og bæjarráði, fellu
saman við blóðgjöf nokkurn veginn
á þriggja mánaða fresti. n
Ómetanlegt framlag Ólafs Helga til Blóðbankans
„Við þurfum fleiri Ólafa“
Gæðablóð
Ólafur hefur varið
minnst 100 tímum
í Blóðbankanum.
Hannes Óli varð að stöðva sýningu á leikverkinu Illsku vegna magakrampa
H
ver leiksýning er einstök
og sem leikari þarf maður
að bregðast við ýmsum
aðstæðum. Þessar voru
þó með þeim óþægilegri
fyrir mig,“ segir leikarinn Hann
es Óli Ágústsson í samtali við DV.
Hann fer með eitt af aðalhlutverk
unum í leikverkinu Illsku sem hef
ur verið sýnt undanfarnar vikur
á Litla sviði Borgar leikhússins. Á
hádramatískum lokakafla leikverks
ins á dögunum varð Hannes Óli að
snúa sér að áhorfendum og tilkynna
þeim að í óefni væri komið og hann
yrði að bregða sér frá á salernið.
Beit á jaxlinn
„Ég kem inn á svið eftir hlé og er
bara búinn að vera mjög hress. Ég er
kannski búinn að vera inni á sviði í
hálfa mínútu þegar ég fæ krampa í
magann. Mér líður mjög illa en þetta
er þannig leikverk að það eru eig
inlega allir inni á sviðinu allan tím
ann og því voru góð ráð dýr,“ segir
Hannes Óli. Hann hafi upplifað
mikla ógleði auk þess sem hann hafi
nauðsynlega þurft að komast á kló
settið. Eins og ástríðufullum leikara
sæmir þá ákvað Hannes Óli að bíta á
jaxlinn. „Ég var staðráðinn í að klára
sýninguna en ástandið ágerðist bara.
Ég var sífellt að reyna að koma auga
á einhverjar glufur til þess að leysa
vandamálið og kannski ná að skjót
ast til baka en allt kom fyrir ekki,“
segir leikarinn.
„Þá ákvað ég að
stöðva sýninguna“
Tíminn leið og þegar komið var að
hápunkti sýningarinnar þar sem
dramatíkin var allsráðandi þá gat
Hannes Óli ekki meir. „Mér var farið
að líða virkilega illa og var í svitakófi.
Allt í einu áttaði ég mig á því að ég var
ekki í neinum tengslum við neitt sem
var að gerast á sviðinu. Þá ákvað ég
að stöðva sýninguna. Það var annað
hvort það eða að gera á sig á sviðið,“
segir Hannes Óli og hlær. Hann til
kynnti Sólveigu Guðmundsdóttur
leikkonu um ástand mála og síðan
sneri hann sér að gestum og tilkynnti
að örstutt hlé yrði gert á sýningunni
og hljóp baksviðs.
Óttaðist að geta ekki
klárað sýninguna
„Mér skilst að mótleikarar mínir hafi
brugðist við með því að bregða á leik,
eflaust á minn kostnað. Á meðan
hljóp ég inn á klósett þar sem gusað
ist upp úr mér og þó aðallega niður.
Leikstjórinn, Vignir Rafn Valþórs
son, var á sýningunni og við ræddum
málin stuttlega. Síðan gekk ég inn á
sviðið og við kláruðum sýninguna,“
segir Hannes Óli. Aðspurður hvað
hafi farið í gegnum huga hans meðan
á hamförunum stóð segir leikarinn:
„Ég var fyrst og fremst stressaður yfir
því að ég gæti ekki klárað sýninguna
en það hafðist sem betur fer. Ég varð
ekki var við annað en að allir gestir
sýningarinnar hafi sýnt þessari upp
ákomu skilning. Mótleikarar mín
ir höfðu að minnsta kosti gaman af
þessu.“
Öll þau ár sem Hannes Óli hefur
staðið á sviði þá hefur aldrei neitt
þessu líkt gerst en næst komst hann
því þegar hann fékk snert af matar
eitrun á sýningu áhugaleikhúss. „Þá
harkaði ég af mér en því var ekki við
komið á þessari sýningu. Ég gat ekki
meira.“
Þess ber að geta að Illska hefur
hlotið einróma lof gagnrýnenda en
síðasta sýning leikverksins fer fram
þann 1. apríl næstkomandi. n
„Ég gat
ekki meira“ Hannes Óli Ágústsson Þurfti að gera óvænt hlé á sýningu Illsku í Borgarleikhúsinu á dögunum. „Það var annaðhvort það eða að gera á sig á sviðið,“ segir leikarinn.
Mynd Bjarni Eiríksson
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is