Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Qupperneq 4
Vikublað 21.–23. mars 20174 Fréttir Gerðu daginn eftirminnilegan Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ Bakarameistari & Konditormeistari Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is Kannabis- ræktun upprætt í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra menn á sunnudags­ kvöld eftir að lögreglumenn stöðv­ uðu fíkniefnaframleiðslu í Kópa­ vogi. Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknar málsins, en um var að ræða kanna­ bisræktun. Ekki liggur fyrir hversu margar plöntur voru í ræktun í umræddu húsnæði. Þá voru fimm ölvaðir karlmenn handteknir við Kleppsveg um klukkan 18 á sunnudag, en þeir eru grunaðir um nytjastuld bifreiðar, eignaspjöll og ölvun við akstur. Um átta leytið að kvöldi sunnu­ dags barst lögreglu svo tilkynning um þjófnað úr verslun við Lækj­ argötu. Maður stal tveimur dýr­ um úlpum. Hann var handtekinn skömmu síðar með báðar úlpurnar í fórum sínum. Þá er hann einnig grunaður um vörslu fíkniefna. Friðarsúlan lýsir Kveikt var á Friðarsúlunni í Viðey klukkustund eftir sólset­ ur í gær, mánudaginn 20. mars, á brúðkaups afmæli Johns Lennon og Yoko Ono. Þau gengu í hjónaband árið 1969 og vörðu hveitibrauðs­ dögum sínum í rúminu í mót­ mælaskyni við stríðið í Víetnam. Í tilkynningu kemur fram að ljósgeisla friðarsúlunnar sé einmitt ætlað að minna fólk á frið og mun hann lýsa upp kvöldhimininn á vorjafndægri, 20. mars, þegar sól­ in er beint yfir miðbaug jarðar og lengd dags og nætur um það bil sú sama um alla jörð. Friðarsúlan mun lýsa til mánudagsins 27. mars. Á morgun, miðvikudag, verður mál gegn pólskum karlmanni á fimmtugsaldri þingfest en hann hefur verið ákærður fyrir að reyna að smygla um 700 millilítrum af amfetamínbasa til landsins. Talið er að maðurinn hafi ætlað að selja efnið á Íslandi. Smyglið komst upp í byrjun febrúar á þessu ári en maðurinn var að koma með flugi til Keflavíkur frá Berlín þegar tollverðir fundu efnin í flösku í farangri mannsins. RÚV greindi frá því að málið yrði tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness. Í frétt á DV frá árinu 2013 þegar upp kom sambærilegt mál kom fram að hægt væri að framleiða 10 kíló af amfetamíni úr 750 millilítr­ um af basa. n Ákærður fyrir smygl á amfetamínbasa Talið er að maðurinn hafi ætlað að selja efnið Myndin sýnir amfetmínbasa Tengist fréttinni ekki beint. Lúxusdagur ÖryrkjabandaLagsins í bLáa Lóninu n „Starfsdagur stjórnar“ í lóninu n Nákvæmur kostnaður fæst ekki uppgefinn Ö ryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) hélt á dögunum svokallaðan „starfsdag stjórnar“ á einum fjölfarnasta ferðamannastað landsins, Bláa lóninu, en þá hittust allir í stjórn ÖBÍ ásamt for­ mönnum málefnahópa. Nákvæmur kostnaður við þennan starfsdag fæst ekki upp gefinn þar sem fram­ kvæmdastjóri bandalagsins segist ekki vera kominn með reikning fyrir leigu á fundarsal og veitingum. Samkvæmt upplýsingum frá Ör­ yrkjabandalaginu var um að ræða viðburð sem var haldinn í fyrsta skipti í ár og var Bláa lónið sagt val­ ið vegna góðs aðgengis fatlaðs fólks. Um var að ræða tuttugu og fimm manns sem á einn eða annan hátt koma nálægt stjórn bandalagsins sem telur um 29 þúsund félagsmenn úr 41 aðildarfélagi. Ekki alveg viss Öryrkjabandalagið segir daginn hafa kostað hátt í hálfa milljón króna, eða 450.000 krónur samkvæmt til­ boði Bláa lónsins að sögn fram­ kvæmdastjóra bandalagsins, Lilju Þorgeirsdóttur. Lilja var spurð sérstaklega út í til­ boð Bláa lónsins og hvort kostnað­ urinn hafi mögulega verið hærri en þær 450 þúsund krónur sem hún gaf blaðamanni upp. Lilja kvaðst ekki vita það, hún væri ekki komin með reikninginn frá Bláa lóninu og einnig hefði hún lítinn tíma til þess að ræða við blaðamann þar sem hún væri að stjórna fundi. Nákvæmur kostnaður fékkst því ekki upp gefinn. „Ég hef tekið þetta gróflega saman. Við fengum gott tilboð frá Bláa lóninu. Með salarleigu, morgunhressingu, hádegisverði, kaffi og kvöldverði þá er kostnaður­ inn um 450.000 kr.­ fyrir þá 25 manns sem sumir voru allan daginn og aðr­ ir hluta úr degi. En um var að ræða dagskrá frá 9 og fram yfir kvöldverð á laugardegi,“ skrifaði Lilja í svari til DV. Formaður félagsins, Ellen Calmon, sagðist í samtali við DV ekki þekkja krónutöluna. „Það er gríðarlega mikilvægt að stjórnin okkar gefi sér tíma og eyði svona heilum laugardegi með okkur. Ég er með starfsfólk hér sem leitar tilboða, þessi salur var laus en ég þekki ekki krónutöluna. Okkur þótti það nægilega gott til að rúmast inn­ an þess fjárhagsramma sem okkur er gefinn,“ sagði Ellen og bætti við: „Þetta þykir mér ekki frétt.“ Boðið upp á það besta Þá sagði Ellen einnig að stjórnin hefði ákveðið að halda starfsdaginn utan höfuðborgarsvæðisins svo „… fólk væri ekki að stinga af.“ Þetta væri, eins og áður kom fram, í fyrsta skiptið sem slíkur dagur hafi verið haldinn en hingað til hafi verið haldin stefnuþing en þá kemur saman yfir hundrað manna hópur og vinnur að ýmsum málefnum við­ komandi ÖBÍ. Starfsdagur stjórnar­ innar hafi verið til þess að undirbúa vinnuna sem fram færi á umræddu stefnuþingi sem venja er að halda annað hvert ár. En heldur þú að fólk komi ekki til með að gagnrýna ÖBÍ fyrir að hafa valið Bláa lónið og þeirra lúxus­ veitingastað og fundarsali fyrir starfs­ dag stjórnarinnar? Hefði til dæmis ekki mátt gera þetta á ódýrari hátt? „Þetta er margt fatlað fólk sem er að gefa vinnuna sína og því ekki annað í boði en að bjóða þeim upp á allt sem við getum boðið þeim upp á. Það væri ekki eðlilegt annað en að bjóða örorkulífeyrisþegum og fötluðu fólki upp á mannsæmandi fundarstað og veitingar.“ Ellen segir þó ekki líklegt að Ör­ yrkjabandalagið velji Bláa lónið sem fundarstað aftur: „Salurinn var ekki alveg nógu góður fyrir þá sem glíma við heyrnarskerðingu.“ n Atli Már Gylfason atli@dv.is Ellen Calmon Formaður Öryrkjabanda- lags Íslands. Mynd SiGtryGGur Ari Lilja Þorgeirsdóttir Framkvæmdastjóri ÖBÍ veit ekki hver nákvæmur kostnaður var við Bláa lóns-dag stjórnarinnar. undurfagur staður Hundruð þúsunda ferðamanna heimsækja Bláa lónið ár hvert en staðurinn er einn sá fjölfarnasti á Íslandi. „Þetta þykir mér ekki frétt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.