Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Blaðsíða 10
Vikublað 21.–23. mars 201710 Fréttir P abbi sagði mér að hann væri búinn að leita að heimili handa okkur í fimm mánuði, en án árangurs, ég á eftir að frjósa þarna úti. Ég á heimili þangað til á mánudaginn en eftir það erum við á götunni.“ Þannig hljómaði auglýsing sem Carlos Mondragon Calera birti á Facebook aðfaranótt föstudags, að­ eins nokkrum klukkustundum eftir að yngsti sonur hans kom í heiminn. Carlos og eiginkona hans Argera hafa undanfarna mánuði búið á gistiheimili í Hafnarfirði ásamt son­ um sínum tveimur, 7 og 9 ára, en sjá nú fram á að lenda á vergangi – með ungbarn sem ekki er orðið viku­ gamalt. Carlos segir það hafa verið örvæntingarúrræði að tefla fram ný­ fæddum syni sínum í von um að fá þak yfir höfuðið. Þá segir hann litla hjálp í boði frá félagsmálayfirvöld­ um sem beri fyrir sig langa biðlista. „Ég heiti Maxi og fæddist á mið­ nætti í gær. Mér skilst að það sé kalt á Íslandi en ég veit ekki hvort það sé satt eða ekki þar sem að ég hef ekki ennþá farið út af spítalanum,“ stóð í auglýsingunni og á öðrum stað: „Við erum ekki að biðja um mikið, íbúð með einu eða tveimur svefnher­ bergjum, bílskúr, bara hvað sem er. Geriði það, hjálpið pabba mínum.“ Búið á átta mismunandi stöðum Carlos er frá Kostaríku, og á 18 ára tvíbura með fyrrverandi sambýlis­ konu sinni sem er íslensk. Annar tvíburinn glímir við alvarleg geðræn vandamál og tók Carlos ákvörðun um að flytja með fjölskyldu sína til Íslands til að vera til staðar fyrir son sinn. Carlos er með fasta vinnu hjá ferðaþjónustufyrirtæki hér á landi en illa hefur gengið að finna öruggt heimili fyrir fjölskylduna. Eftir að þau fluttust til Íslands í maí í fyrra hafa þau flakkað á milli leiguíbúða og búið á átta mismunandi stöðum. DV greindi frá aðstæðum Carlos og fjölskyldu hans í október síðastliðn­ um. Þá hafði fjölskyldunni verið gert að yfirgefa hús kaþólsku kirkjunnar við Öldugötu þar sem þau höfðu fengið inni tímabundið. Fjögurra manna fjölskylda í einu herbergi Fjölskyldan fékk að lokum inni á gistiheimili í Hafnarfirði þar sem þau leigja eitt herbergi á 170 þúsund krónur á mánuði. Hin herbergin eru í skammtímaleigu á Airbnb; gesta­ gangur er því mikill og leigjendurn­ ir stoppa stutt. Fyrir rúmum mánuði var Carlos sagt að breyta ætti heim­ ilinu í ungmennahótel, með til­ heyrandi framkvæmdum. Ljóst var að fjölskyldan gat ekki búið áfram í herberginu. „Ég vissi alltaf að það væri bara skammtímalausn að búa á gisti­ heimili þannig að ég hef aldrei hætt að leita að íbúð handa okkur, hvort sem það er á bland.is eða leiguhóp­ um á Facebook eða bara hvar sem er. Ég hef sótt um íbúðir alls stað­ ar, í Breiðholti, Árbæ og Mosfells­ bæ,“ segir Carlos og kveðst sætta sig við tveggja herbergja íbúð fyrir sig og fjölskylduna, bara til að geta haft þak yfir höfuðið. Leiguverðið sé sums staðar svívirðilegt; leiga á einni íbúðinni hafi til að mynda verið 220 þúsund krónur á mánuði. Þá fari leigusalar gjarnan fram á andvirði þriggja mánaða leigu í tryggingu. Carlos segir fólk hafa spurt sig hvers vegna fjölskyldan flytji ekki bara út á land. Það sé þó hægara sagt en gert, enda sé hann í vinnu í Reykjavík. Drengirnir tveir sækja Austurbæjarskóla í Reykjavík en þeir innrituðust ekki í skóla í Hafnar­ firði þar sem óvíst var hvort eða hversu lengi fjölskyldan myndi búa í bænum. „Fólk hefur líka spurt mig af hverju ég fari ekki bara aftur til Kostaríku. En það er ekkert betra sem bíður okkar þar. Þar er ég ekki með vinnu eins og hér og við eigum ekki fyrir flugmiðum.“ Mikill velvilji frá ókunnugum Carlos hefur leitað á náðir Rauða krossins og til félagsþjónustu Reykjavíkurborgar en segir það engu hafa skilað. Félagsþjónustan hafi sagt honum að þriggja ára biðlisti sé eftir félagsíbúð. Á meðan hafi barnavernd gert athugasemdir við aðstæður fjölskyldunnar og ítrekað bent honum á það sem þurfi að laga. „Það er ekki eins og ég hafi beðið um að enda á götunni. Mér líður stundum eins og þau haldi að ég vilji í alvörunni vera í þessari stöðu. Eins og ég sé virkilega að njóta þess. Þetta er svo óréttlátt. Auðvitað geri ég mér fyllilega grein fyrir því að börn eiga rétt á því að eiga heimili, eiga skjól þar sem þau upplifa sig örugg og líð­ ur vel. Ég vildi óska að ég gæti gefið börnunum mínum það.“ Carlos segist hafa fengið fjöldann allan af ábendingum eftir að hann birti auglýsinguna og velvilji fólks sé augljóslega mikill. Enn sem komið er hefur leitin þó engan árangur borið. „Ég hugsaði þetta þannig að ef fólk sæi auglýsinguna og sæi mynd­ irnar af syni mínum þá yrði kannski einhver vitundarvakning. Fólk myndi þá kannski opna augun og sjá hversu skelfilegt ástandið er orðið. Og spyrja sig hversu langt þetta á eig­ inlega að ganga. Þetta er svo skelfi­ legt ástand. Það eru barnafjölskyldur á Íslandi sem búa á götunni, í kulda og frosti. Sumir hafa sagt við mig að ég sé sjúkur að gera þetta svona. Ég myndi segja að það sé enn sjúkara að vita til þess að það er fólk þarna úti sem þarf hjálp, og gera ekkert í því. Það er endalaust hægt að sitja fyrir framan tölvu og gagnrýna aðra.“ Fjölskyldan hefur pakkað saman eigum sínum í herberginu í Hafnar­ firði. Í dag, þriðjudag, verða þau að öllum líkindum á götunni. „Kona frá Keflavík hafði sam­ band við mig og sagði mér að hún ætti ekkert en mér væri velkomið að geyma dótið mitt hjá henni, og svo sagði hún að við mættum gista í einu herberginu heima hjá henni. Ég kann virkilega að meta þetta boð, og ég mun þurfa að þiggja það ef við finnum ekkert annað. Við get­ um ekki verið á götunni með lítið barn.“ n n Hafa búið með tveimur sonum sínum í herbergi á gistiheimili n Fá alls staðar neitun frá leigusölum„Fólk hefur líka spurt mig af hverju ég fari ekki bara aftur til Kostaríku. En það er ekkert betra sem bíður okkar þar. Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Á götunni í Reykjavík með nýfæddan son Hafa leitað að heimili í fimm mánuði Carlos hefur leitað á náðir Rauða krossins og til félagsþjón- ustu Reykjavíkurborgar en segir það engu hafa skilað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.