Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Side 22
Vikublað 21.–23. mars 20172 Bestu pizzur bæjarins - Kynningarblað
Pizzurnar bakaðar í eldofni og
opin ítölsk stemning í salnum
R
eynsla og tenging við pizzu
gerð í 30 ár eru á meðal þess
sem einkennir Eldofninn.
Ellert og Eva voru viðriðin
stofnun Eldsmiðjunnar árið
1986. Ég fæddist árið 1987 og þá
hoppaði pabbi bara beint á vakt af
fæðingardeildinni,“ segir Evert Aust
mann Ellertsson, bakari hjá Eldofn
inum í Grímsbæ, fjölskyldufyrirtæki
þar sem foreldrar, synir og annað
frábært starfsfólk leggur alúð sína í
að búa til framúrskarandi pizzur og
veita góða þjónustu.
Á Eldofninum eru eingöngu í
boði 12” pizzur sem bakaðar eru í
eldofni og er eingöngu notaður eldi
viður við baksturinn.
Árið 2008, ári áður en Eldofninn
var opnaður, fóru hjónin Ellert Aust
mann Ingimundarson og Eva Karls
dóttir til Ítalíu í leit að hentugum
ofni. Þau komu heim með eldofn
með snúningsplötu, sem tryggir í
senn frábæran bakstur, ósvikið við
arofnsbragð og hraða þjónustu.
„Eftir að við setjum pizzuna inn í
ofninn þá ýtum við bara á einn takka,
pizzan byrjar að snúast og bakast
jafnt og þétt á tveimur mínútum,“
segir Evert.
Snúningsplatan í ofninum skapar
sjálfvirka alúð við baksturinn, hægt
er að afgreiða pizzurnar mjög hratt
en þær eru þó afar jafnt og vel bak
aðar.
„Við getum sett inn átta pizzur í
einu en þegar jafn mikið er að gera
eins og er núorðið þá þarf að vera með
mann á ofninum til að fylgjast með.“
Allt eldað frá grunni
„Við búum til allt frá grunni, sósurnar
okkar eru án aðfenginna aukaefna
og í hana eru notaðir plómutómat
ar; það sama má segja um hvítlauks
olíuna og Eldofnsolíuna okkar sem
er sterk chiliolía. Rauðlaukinn sker
um við niður hérna og kryddið sem
fer í sósuna mallar í potti,“ segir
Evert.
En hvaða pizzur eru vinsælastar?
„Vinsælustu pizzurnar eru yfirleitt
þær sem eru kenndar við okkur bak
arana og við höfum sett saman eft
ir okkar smekk. Sigga Spes pizzan
er til dæmis búin að vera vinsælasta
pizzan hér í 3–4 ár en á henni eru
sveppir, skorið pepperóní, ananas,
svartar ólífur, jalapeno, hvítlaukur,
rjómaostur og óreganó. Þessi pizza
slær í gegn hjá öllum og er sívinsæl.“
Opin ítölsk stemning í matsalnum
Veitingasalurinn á Eldofninum er
bæði huggulegur og skemmtileg
ur. Allt er galopið svo viðskiptavinir
sjá bakarana að störfum og að þeyta
pizzum upp í loftið. „Krakkarnir eru
mjög spenntir fyrir þessu, til dæmis
að sjá pizzurnar snúast í ofninum,“
segir Evert og honum líkar það vel
að matargestir sjái fjölskylduna að
störfum.
Tíu prósenta afsláttur er veittur
af mat sem er sóttur og einnig eru
alltaf í gangi hádegistilboð virka
daga frá 11.30 til 14.00 en þá er stað
urinn yfirleitt þéttsetinn.
Matseðill og upplýsingar um
tilboð má finna á heimasíðunni,
eldofninn.is. n
Eldofninn er opinn mánudaga til
fimmtudaga frá kl. 11.30 til 21.00,
föstudaga til kl. 22.00.
Á laugardögum er opið frá kl. 17
til 22 og á sunnudögum frá 17 til 21.
Á mánudögum er lokað – þá hleð-
ur Eldofnsfjölskyldan rafhlöðurnar
fyrir hina sex daga vikunnar.
Myndir sigtryggur Ari