Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Qupperneq 22
Vikublað 21.–23. mars 20172 Bestu pizzur bæjarins - Kynningarblað Pizzurnar bakaðar í eldofni og opin ítölsk stemning í salnum R eynsla og tenging við pizzu­ gerð í 30 ár eru á meðal þess sem einkennir Eldofninn. Ellert og Eva voru viðriðin stofnun Eldsmiðjunnar árið 1986. Ég fæddist árið 1987 og þá hoppaði pabbi bara beint á vakt af fæðingardeildinni,“ segir Evert Aust­ mann Ellertsson, bakari hjá Eldofn­ inum í Grímsbæ, fjölskyldufyrirtæki þar sem foreldrar, synir og annað frábært starfsfólk leggur alúð sína í að búa til framúrskarandi pizzur og veita góða þjónustu. Á Eldofninum eru eingöngu í boði 12” pizzur sem bakaðar eru í eldofni og er eingöngu notaður eldi­ viður við baksturinn. Árið 2008, ári áður en Eldofninn var opnaður, fóru hjónin Ellert Aust­ mann Ingimundarson og Eva Karls­ dóttir til Ítalíu í leit að hentugum ofni. Þau komu heim með eldofn með snúningsplötu, sem tryggir í senn frábæran bakstur, ósvikið við­ arofnsbragð og hraða þjónustu. „Eftir að við setjum pizzuna inn í ofninn þá ýtum við bara á einn takka, pizzan byrjar að snúast og bakast jafnt og þétt á tveimur mínútum,“ segir Evert. Snúningsplatan í ofninum skapar sjálfvirka alúð við baksturinn, hægt er að afgreiða pizzurnar mjög hratt en þær eru þó afar jafnt og vel bak­ aðar. „Við getum sett inn átta pizzur í einu en þegar jafn mikið er að gera eins og er núorðið þá þarf að vera með mann á ofninum til að fylgjast með.“ Allt eldað frá grunni „Við búum til allt frá grunni, sósurnar okkar eru án aðfenginna aukaefna og í hana eru notaðir plómutómat­ ar; það sama má segja um hvítlauks­ olíuna og Eldofnsolíuna okkar sem er sterk chili­olía. Rauðlaukinn sker­ um við niður hérna og kryddið sem fer í sósuna mallar í potti,“ segir Evert. En hvaða pizzur eru vinsælastar? „Vinsælustu pizzurnar eru yfirleitt þær sem eru kenndar við okkur bak­ arana og við höfum sett saman eft­ ir okkar smekk. Sigga Spes pizzan er til dæmis búin að vera vinsælasta pizzan hér í 3–4 ár en á henni eru sveppir, skorið pepperóní, ananas, svartar ólífur, jalapeno, hvítlaukur, rjómaostur og óreganó. Þessi pizza slær í gegn hjá öllum og er sívinsæl.“ Opin ítölsk stemning í matsalnum Veitingasalurinn á Eldofninum er bæði huggulegur og skemmtileg­ ur. Allt er galopið svo viðskiptavinir sjá bakarana að störfum og að þeyta pizzum upp í loftið. „Krakkarnir eru mjög spenntir fyrir þessu, til dæmis að sjá pizzurnar snúast í ofninum,“ segir Evert og honum líkar það vel að matargestir sjái fjölskylduna að störfum. Tíu prósenta afsláttur er veittur af mat sem er sóttur og einnig eru alltaf í gangi hádegistilboð virka daga frá 11.30 til 14.00 en þá er stað­ urinn yfirleitt þéttsetinn. Matseðill og upplýsingar um tilboð má finna á heimasíðunni, eldofninn.is. n Eldofninn er opinn mánudaga til fimmtudaga frá kl. 11.30 til 21.00, föstudaga til kl. 22.00. Á laugardögum er opið frá kl. 17 til 22 og á sunnudögum frá 17 til 21. Á mánudögum er lokað – þá hleð- ur Eldofnsfjölskyldan rafhlöðurnar fyrir hina sex daga vikunnar. Myndir sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.