Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Page 23
Vikublað 21.–23. mars 2017 Kynningarblað - Bestu pítsur bæjarins 3 Adam's Pizza & Grill er þriggja ára: 50% afsláttur af öllum pizzum í mars! U m árabil hefur veitingastað- urinn Adam's Pizza & Grill notið gífurlegra vinsælda bæði að Seljabraut 54 og á nýja staðnum að Ármúla 42 í Reykjavík. Eigandi staðarins, Adam Anbari, er að sögn þakklátur fyrir frá- bærar móttökur viðskiptavina sinna. „Íbúarnir í hverfinu kunnu frá upp- hafi að meta steinbökuðu pizzurn- ar okkar og það var fljótt að spyrjast út hvað maturinn er góður. Við notum alltaf besta og ferskasta hráefnið og að sögn viðskiptavina okkar erum við með ferskustu pizzurnar hér á landi. Við opnuðum nýja staðinn í Ármúlanum fyrir ekki svo löngu, til að anna aukinni eftirspurn,“ segir Adam. Adam's Pizza & Grill var opnað fyrir þremur árum á Seljabraut og í tilefni þess er nú boðið upp á helmingsafslátt af öllum sóttum pizzum af matseðli út marsmánuð. Það er því um að gera að flýta sér að sækja eina af þessum margrómuðu gómsætu flatbökum sem allir eru að tala um. Góður matur í notalegu umhverfi Adam's Pizza & Grill á Seljabraut er með mat til að taka með en staður- inn í Ármúlanum er vinalegur fjöl- skylduveitingastaður. Matsalurinn þar er vægast sagt glæsilegur. „Salurinn er mjög þægilegur, fallega innréttaður, fjölskylduvænn og rúmar hátt í fjörutíu manns í sæti,“ segir Adam. Það er mjög vinsælt á meðal íbúa í Ármúlanum að borða á staðnum eða taka mat með sér heim. Adam's Pizza & Grill sér líka um heimsendingar á mat. Matseðillinn á báðum stöðum er afar fjölbreyttur og er meðal annars hægt að fá frábærar steinbak- aðar pizzur, girnilega ham- borgara, gómsæt salöt, klass- ískan djúpsteiktan fisk og franskar, ómótstæðilegt kebab og margt fleira, en seðilinn má skoða á vefsíðu veitingastaðarins. „Þriðjudagar eru vinadagar“ Þau hjá Adam's Pizza & Grill eru dug- leg að vera með tilboð til þess að koma viðskiptavinum sínum á bragðið. Adam segist líka vera vinur allra, en að þriðjudagar séu jafnframt sérstak- ir vinadagar. „Þá fá vinir okkar á Face- book „tveir fyrir einn“ tilboð á brauð- stöngum,“ sem staðurinn er ekki hvað síst þekktur fyrir. Brauðstangirnar rómuðu eru ávallt ferskar og aldrei geymdar í frysti eins og víða þekk- ist. Hvítlauksolían sem notuð er með þeim er líka ætíð úr ferskum hvítlauk. Ásamt þeim klassísku, er hægt að fá brauðstangir með ýmsu óvenjulegu áleggi svo sem, rjómaosti, jalapeno, piparosti, og kunnugir segja að þær með piparostinum og pepperóní séu mergjaðar. n Adam's Pizza & Grill er að Selja- braut 54, 109 Rvk. og Ármúla 42, 108 Rvk. Tekið er við pöntunum í síma 513-4444 frá kl. 11– 23 alla daga og heimsending er í boði á milli kl. 17–21. Email: adamspizza@adamspizza.is. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu staðarins. Á Facebook-síðunni má svo lesa jákvæðar umsagnir við- skiptavina og tilboð eru auglýst þar reglulega. Brautryðjandi í pítsugerð og fyrstur með súrdeigspítsur La Luna pizzeria-steakhouse, Grensásvegi 10 L a Luna pizzeria-steakhouse er nýr veitingastaður sem þó byggir á gamalli þekkingu og afar langri reynslu. Staður- inn, sem er að Grensásvegi 10, var opnaður þann 13. janúar síð- astliðinn. Eigandinn, Þorleifur Jónsson, sem ávallt er kall- aður Tolli, var áður með La Luna á Rauðarárstíg og var þá fyrstur á Íslandi til að bjóða upp á súrdeigspít- sur en súrdeigsbotninn er eitt af megineinkenn- um matreiðslunnar á La Luna: „Súrdeigið brotn- ar betur niður í meltingunni, flýtir fyrir henni og er ekki eins þungt í maga og gerhveitibotn- inn,“ segir Tolli en fjöl- skyldufólk sækir mikið á La Luna þar sem það veit að það er að gefa börnunum sín- um heldur hollari pítsur vegna súr- deigsins. En hverjar eru vinsælustu pítsurnar á staðnum: „Humarpítsan er mjög vinsæl og þykir óvenjuleg. Pítsa sem heitir Eat- Pray-Love er líka afar vinsæl, sem og upprunalega pepperónípítsan.“ Að sögn Tolla er bæði vinsælt að sækja pítsur og borða á staðnum enda er stór og góður veitingasalur á La Luna sem tekur marga í sæti. Fjöl- margir vinnustaðir eru í nágrenninu eins og allir vita og er vinsælt að koma í hádegismat á La Luna, ekki síst er þá ásókn í steikurnar sem þar eru í boði en þær eru á mjög góðu hádegistilboði, aðeins 1.990 krónur. „Fastakúnnar hér eru margir sem komu áður á La Luna á Rauðar- árstíg en svo eru líka smám saman að safnast upp fleiri fastakúnnar hér í hverfinu,“ segir Tolli en sem fyrr segir kemur margt fjölskyldufólk á staðinn í kvöldmat. La Luna hefur orð á sér fyrir gæðamatreiðslu og góða þjónustu enda er eigandinn enginn nýgræðingur í bransanum. Hann var eigandi Eldsmiðj- unnar frá 1994 til 2005 og eigandi Reykjavík Pizza Company frá 2005 til 2007. Tolli er því einn af brautryðjendunum í pítsugerð á Íslandi og sem fyrr seg- ir var hann fyrstu til að bjóða upp á súrdeigspítsur. n La Luna pizzeria-steakhouse er opinn virka daga frá kl. 11.30 til 21.30. Á laugardögum er opið frá 12.00 til 21.30 og á sunnudögum frá 17.00 til 21.30. Símanúmer er 577-3838. Nautasteik og franskar 1.990.- 12¨ m/3 áleggjum og gos 1.890.- Notalegt andrúmsloft með ferskri flatbökuangan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.