Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Síða 48
Vikublað 21.–23. mars 2017 22. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 554 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Allt fyrir veisluna Veislusalir • Fundarsalir • Sýningarsalir • Íþróttasalir • Veisluþjónusta • Veitingastaðir Skemmtikraftar - Tækjaleigur - Veislustjórar - Veislutjöld - Tónlistarmenn - Dúkaleiga - Blóm og skreytingar - Veislubakkar - Barnaafmæli Eru allir vegan í dag? Þrettán kíló af fitu fokin n Fjölmiðlamanninum Sigurjóni M. Egilssyni þykir fátt skemmti- legra en að fara í göngutúr. Hann benti á það á Facebook á mánu- dag að frá áramótum hefði hann gengið 392 kílómetra, eða rétt rúmlega leið sem samsvarar vegalengdinni frá Reykjavík til Akureyrar. „Á leiðinni hef ég misst 13 kíló af fitu og er bara allt annar,“ segir Sigur- jón. Þá kveðst Sig- urjón synda um 350 metra bringusund fimm daga vik- unnar. „Alvöru stökkpallur“ n Við erum nýbyrjuð að taka á móti umsóknum fyrir keppnina og það eru þegar komnar all- nokkrar umsóknir,“ segir Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Hard Rock. Veitingakeðjan stendur fyrir alþjóðlegri hljóm- sveitakeppni sem ber heitið Battle of the Bands en hún fer fram á um 125 veitingastöðum Hard Rock um allan heim. Íslenska keppnin verður haldin á Hard Rock Cafe Reykja- vík í Lækjargötu og fer fram þann 18. maí nk. Sigurvegari Hard Rock Café Reykjavík fer í úrslit með sigurvegurum Battle of the Bands í Evrópu og sigurvegarar þar fara síðan í úrslitakeppnina þar sem þeir bestu frá öllum heimsálfum mætast. Stefán á von á því að þátttak- an hér heima verði góð. Um sé að ræða stórt tækifæri fyrir íslenskar hljómsveitir. „Keppnin er alvöru stökkpallur fyrir hljómsveitir sem hafa metnað til að hugsa stórt og koma sér á framfæri úti í hinum stóra heimi. Sá sem vinnur aðal- keppnina mun fá mikla athygli á heimsvísu og spila á stóra sviðinu.“ Íslenskir peningaseðlar eru 100 prósent vegan Innlendar grænmetisætur þurfa því ekki að óttast „að snerta lík“ Á síðari hluta ársins 2016 kynnti seðlabanki Englands glænýjan fimm punda seðil til leiks. Sú nýjung leit dags- ins ljós að seðillinn var búinn til úr plasti en tilgangurinn var sá að bæta endingu hans auk þess að gera fölsurum erfiðara fyrir. Seðillinn hafði eingöngu verið í notkun í tvo mánuði þegar meðvitaðir borgarar sendu Twitter-færslur á bankann og spurðu: „Er rétt að tólgur sé notaður í nýju fimm punda seðlana?“ Seðlabank- inn svaraði að bragði og viðurkenndi að snefill af tólg væri að finna í seðlin- um. Tólgur er meðal annars notaður í fjölmörgum gerðum af kertum, sáp- um og snyrtivörum. Of dýrt að hætta við Uppljóstrunin olli fjaðrafoki meðal grænmetisæta auk trúarhópa sem mega ekki neyta kjöts. Meðal annars neitaði vegan-kaffihús í Cambridge að taka við seðlunum. Þá voru stofn- aðir undirskriftalistar þar sem „tólgs- hneykslið“ var gagnrýnt harðlega og forsvarsmenn enska seðlabankans hvattir til þess að endurskoða inni- haldsefni seðlanna. Sá bankinn sig knúinn til þess að lýsa því yfir að hann tæki afstöðu þrýstihópanna alvarlega og málið yrði skoðað vandlega. Um miðjan febrúar á þessu ári kvað bankinn síðan upp þann úr- skurð að peningaseðlarnir yrðu ekki teknir úr umferð og fyrirhuguð út- gáfa 10 punda seðils á næsta ári, með sömu innihaldsefnum, yrði áfram á dagskrá. Bankinn gæti ekki stoppað úti í miðri á úr því sem komið væri enda hefði of miklu verið kostað til. „Eins og að snerta lík“ Fyrirtækið sem hannaði plastseðlana heitir Innovia en seðlarnir eru síðan prentaðir af enska fyrirtækinu De La Rue. Það ágæta fyrirtæki, sem er um tveggja alda gamalt, er afar umfangs- mikið í peningaprentun en 150 ríki kaupa framleiðslu fyrirtækisins, þar á meðal íslenska ríkið. Sú staðreynd hefur eflaust skapað þann misskiln- ing sem blaðamaður DV rak augun í á samfélagsmiðlum hér á landi. Þar lýstu íslenskar grænmetisæt- ur yfir áhyggjum sínum af því að ís- lensku peningaseðlarnir væru ekki vegan. Hafði einn á orði að tilhugs- unin um að snerta slíkan seðil væri eins og „að snerta lík.“ Sá blaðamað- ur sig því knúinn til þess að senda formlega fyrirspurn á Seðlabanka Ís- lands sem athugaði málið vandlega. Skriflegt svar barst síðan nokkrum dögum síðar. „Niðurstaða athugun- ar okkar er að íslenskir peningaseðl- ar eru 100% „vegan“, skrifaði Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri í Seðla- banka Íslands. n bjornth@dv.is Kennir sjálfsstyrkingu um allan heim B akgrunnur þátttakenda á námskeiðum Profectus hefur verið af ýmsum toga, enda er þar að finna stjórnendur, sálfræðinga, einkaþjálfara, presta, félagsfræðinga, fjölskylduráð- gjafa, andlitslesara, hópstjóra, verk- stjóra, meðferðarfulltrúa, prófarka- lesara og nuddara.“ Þetta segir skemmtikrafturinn Ingvar Jónsson, sem áður fyrr var andlit einnar vinsæl- ustu hljómsveitar landsins, Papanna. Ingvar hefur heldur betur breytt um kúrs síðan hann tryllti dans- þyrsta Íslendinga um gervallt Ís- lands. Tæplega fertugur lagði hann stund á alþjóða markaðsfræði og út- skrifaðist í framhaldinu frá CBS með MBA-gráðu, en í náminu kynntist hann markþjálfun, sem var á meðal þeirra verkfæra sem nemendur nýttu til að styðja hver annan. Ingvar seg- ir að í kjölfar vandlegrar sjálfskoðun- ar hafi hann uppgötvað að tíma hans væri best varið ef hann styddi aðra til vaxtar í gegnum viðlíka sjálfskoðun. Suður-Afríka og Írland Ingvar fékk vottun í markþjálfun frá International Coaching Federation (IFC) árið 2011 og hefur ekki setið auðum höndum síðan. Hann kom á laggirnar mannauðsfyrirtækinu Pro- fectus sem hefur í dag útskrifað fimm hópa í markþjálfun; tvo hópa í Suð- ur-Afríku, einn á Írlandi og tvo á Ís- landi. Nemendur þessara hópa hafa komið víða að; Írlandi, Englandi, Spáni, Hollandi, Bandaríkjunum, Suður-Afríku og, að sjálfsögðu, Ís- landi. Í vor er í bígerð að halda nám- skeið í markþjálfun á Indlandi. Learning by doing Hann segir að sérstaða Profectus í kennslu byggi meðal annars á því að kennt er í litlum hópum, mest 12 nemendur. áherslan sé lögð á aðgerðabundið nám, „learning by doing“, og gerðar eru miklar kröf- ur til vinnu af hálfu nemendanna. Ingvar, sem skrifað hefur tvær bæk- ur um markþjálfun segir að á með- an náminu stendur nýti nemendur markþjálfann sem verkfæri til sjálf- skoðunar, og svo þeir kynnist mis- munandi aðferðum séu að minnsta kosti fimm vottaðir markþjálfar fengnir til að taka að sér sýnikennslu. Nemendur öðlist skilning á tengingu taugavísinda og virkni heilans við markþjálfaferlið, hlutverki mark- þjálfans og öllum ellefu hæfnisþátt- um markþjálfunar. n „Papinn“ Ingvar Jónsson hefur útskrifað fimm hópa í markþjálfun Markþjálfari Ingvar hefur kennt tveimur hópum í Suður-Afríku. Mynd M.FLOvEnt Á sviði Ingvar söng með Pöpunum um árabil. Íslenskir peningaseðlar Seðlarnir eru 100 prósent „vegan“ samkvæmt skriflegu svari frá Seðlabanka Íslands. Mynd SIgtryggur ArI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.