Morgunblaðið - 02.02.2017, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
Eiður Svanberg Guðna-
son, fv. þingmaður, ráð-
herra og sendiherra,
varð bráðkvaddur á
heimili sínu mánudag-
inn 30. janúar sl., á 78.
aldursári. Eiður fæddist
í Reykjavík 7. nóvember
1939. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR 1959,
stundaði nám í stjórn-
málafræði við háskól-
ann í Delaware í Banda-
ríkjunum 1960-61, varð
löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi
í ensku 1962, lauk BA-prófi í ensku og
enskum bókmenntum við HÍ 1967 og
stundaði nám í sjónvarpsfræðum og
upptökustjórn hjá ITV í London 1967
og hjá sænska sjónvarpinu 1968.
Eiður var blaðamaður og síðar rit-
stjórnarfulltrúi á Alþýðublaðinu
1962-67, var yfirþýðandi og frétta-
maður Sjónvarpsins 1967-78 og vara-
fréttastjóri 1971-78.
Hann var þingmaður
Alþýðuflokksins í Vest-
urlandskjördæmi 1978-
93, þingflokksformaður
1983-91 og umhverfis-
ráðherra og samstarfs-
ráðherra Norður-
landanna 1991-93.
Eiður var sendiherra
Íslands í Ósló í Noregi
1993-98 og fleiri um-
dæmislöndum sendi-
ráðsins, fyrsti skrif-
stofustjóri Auðlinda- og umhverfis-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins
1998-2001, aðalræðismaður Íslands í
Winnipeg í Kanada 2001-2002 og
sendiherra Íslands í Kína og um-
dæmislöndum þess sendiráðs 2002-
2006 og skrifstofustjóri menningar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins 2006. Eiður var skipaður
aðalræðismaður Íslands í Færeyjum
2007 og var fyrsti diplómatíski emb-
ættismaður annars ríkis í Færeyjum.
Hann lét af störfum í utanríkisþjón-
ustunni í ársbyrjun 2009.
Eiður stjórnaði gerð fjölda heim-
ildarkvikmynda og þýddi útvarps-
leikrit og útvarpssögur. Hann sat
m.a. í stjórn Blaðamannafélags Ís-
lands 1968-73 og var formaður þess
1971-72. Eiður sat í flokksstjórn Al-
þýðuflokksins 1964-69 og 1978-93, var
varaborgarfulltrúi Alþýðuflokksins í
Reykjavík 1966-70, sat í útvarpsráði
1978-87 og var formaður fjárveitinga-
nefndar Alþingis 1979-80. Hann sat í
Norðurlandaráði 1978-79 og 1981-89,
var formaður Íslandsdeildar ráðsins
1978-79 og í forsætisnefnd þess.
Eiður kvæntist Eygló Helgu Har-
aldsdóttur píanókennara 16. mars
1963. Hún lést 13. maí 2015. Börn
Eiðs og Eyglóar eru Helga Þóra,
Þórunn Svanhildur og Haraldur
Guðni.
Andlát
Eiður Svanberg Guðnason
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKI 1
Haffi 777 2000
Grétar 777 2001
Stærðir 200x200
210x210
220x220
235x235
8 hyrnt
LOK Á POTTA
HITAVEITUSKELJAR
Mikið úrval
Litir:
Grátt
Brúnt
Kvenfélagskonur komu saman á Hallveigarstöðum í gær til að fagna degi
kvenfélagskonunnar. Dagur kvenfélagskonunnar hefur verið haldinn há-
tíðlegur 1. febrúar hvert ár síðan 2010. Fjölmörg dagatöl og dagbækur
geta dagsins og hefur hann fest sig í sessi á undanförnum árum.
Kvenfélagasamband Íslands var stofnað 1. febrúar 1930 og fagnaði því
einnig 87 ára afmæli sínu í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Kvenfélagskonur nutu veitinga á Hallveigarstöðum
Dagur kvenfélagskonunnar var haldinn hátíðlegur í gær og komu kvenfélagskonur saman í tilefni þess
HB Grandi hefur
lagt til hliðar
áform um fram-
kvæmdir við fisk-
þurrkun á Akra-
nesi. Vilhjálmur
Vilhjálmsson for-
stjóri segir að far-
ið verði yfir
áformin í heild
sinni og allir
möguleikar skoðaðir.
„Við erum fyrst og fremst að af-
létta óvissu sem starfsfólk okkar
hefur verið í hátt í ár með því að til-
kynna þetta. Ljóst er að við erum
ekki að fara að þurrka þarna fisk á
þessu ári og væntanlega ekki held-
ur því næsta,“ segir Vilhjálmur.
Fyrirtækið hefur verið að afla
leyfa fyrir enduruppbyggingu að-
stöðunnar á Akranesi. Ekki er búið
að ganga frá deiliskipulagi.
HB Grandi hætti að þurrka fisk á
Akranesi í apríl á síðasta ári vegna
markaðsaðstæðna. Markaður fyrir
þurrkaðar afurðir hefur verið erf-
iður vegna lítillar kaupgetu í Níg-
eríu og virðist ekki vera að lagast.
Þrettán af 26 starfsmönnum var
tryggð atvinna í öðrum starfs-
stöðvum HB Granda á Akranesi.
Þeim 13 sem eftir eru hefur verið
boðin vinna hjá dótturfyrirtækjum
HB Granda á Akranesi. helgi@mbl.is
Ekki farið í fram-
kvæmdir við fisk-
þurrkun á Akranesi
Þurrkað Mark-
aður er erfiður.
Fulltrúar meirihlutans í umhverfis-
og skipulagsráði borgarinnar felldu
tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
um að leita umsagnar Vegagerðar-
innar, lögreglunnar, Samgöngustofu
og samtaka sveitarfélaga áður en
skýrsla starfshóps um lækkun um-
ferðarhraða á götum borgarinnar
vestan Kringlumýrarbrautar yrði
tekin til afgreiðslu. Skýrslan var
samþykkt á fundi í gær með atkvæð-
um meirihlutans en fulltrúar minni-
hlutans greiddu atkvæði á móti.
Stefnumótun skýrslunnar felur
m.a. í sér að umferðarhraði í íbúð-
argötum verði lækkaður í 30 kíló-
metra á klukkustund, hraði á Hring-
braut og Miklubraut, vestan
Kringlumýrarbrautar, lækkaður úr
50 km í 40 og á Sæbraut úr 60 km í
50.
Halldór Halldórsson, Sjálfstæðis-
flokki, segir að fulltrúar flokksins í
ráðinu styðji tillögur um lækkun
hraða í íbúðargötum. Sömuleiðis í
Lækjargötu enda sé þar náið sam-
spil ökutækja og gangandi vegfar-
enda. Hins vegar sé ekkert í skýrsl-
unni sem sannfæri þá um að lækkun
á ökuhraða á Hringbraut og Miklu-
braut og Sæbraut sé til góðs.
Í bókun Halldórs og Mörtu Guð-
jónsdóttur á fundinum kemur fram
það sjónarmið að slíkar aðgerðir
myndu draga úr umferðarflæði,
auka mengun og lengja ferðatíma
borgarbúa en draga ekki úr hættu
fyrir gangandi vegfarendur. Halldór
bendir á að flest slysin verði á ljósa-
stýrðum gatnamótum. Borgin þurfi
að einbeita sér að úrbótum á þeim,
til dæmis með gerð göngubrúa eða
undirganga.
Einstakar aðgerðir kynntar
Halldór furðar sig á því að meiri-
hlutinn skuli ekki vilja leita álits
Vegagerðarinnar, sem er veghaldari
á hluta gatnanna, lögreglunnar og
fleiri stofnana. Fulltrúar meirihlut-
ans, Samfylkingarinnar, Bjartrar
framtíðar, VG og Pírata, sögðu að
vinnan hefði verið kynnt víða á með-
an skýrslan var í vinnslu. Þegar
stakar aðgerðir kæmu til fram-
kvæmda yrði samráð haft við við-
komandi málsaðila. Varðandi tillög-
urnar í heild kemur sú skoðun fram í
bókun meirihlutans að mikill sam-
félagslegur ávinningur felist í auknu
öryggi og umhverfisgæðum fyrir
íbúa borgarinnar. helgi@mbl.is
Fellt að leita álits veghaldara
Fulltrúar meirihlutans í umhverfis- og skipulagsráði samþykkja stefnu-
mörkun um lækkun umferðarhraða á Hringbraut, Sæbraut og í íbúðagötum
Morgunblaðið/Ómar
Miklabraut Mikið álag er á stofnbrautum á annatímum og umferðin hæg.
Skrifstofustjóri
skrifstofu um-
hverfisgæða hjá
Reykjavíkurborg
telur æskilegt að
banna sorp-
kvarnir sem
mjög ryðja sér til
rúms í eldhús-
vöskum á heim-
ilum borgarbúa.
Þar eru matarleifar hakkaðar nið-
ur í holræsakerfi borgarinnar.
Kemur þetta álit fram í svari við
fyrirspurn Halldórs Halldórssonar
og Hildar Sverrisdóttur, borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Skrifstofustjórinn segir að
kvarnirnar auki verulega álag á
fráveitukerfið, álag sem það sé ekki
hannað fyrir. Úrgangurinn safnist
fyrir í kerfinu og valdi miklum
kostnaði við hreinsun og jafnvel
skemmdum. Tekur hann þó fram að
ekki hafi orðið vart aukins rottu-
gangs en fyrirspyrjendur vöktu at-
hygli á því að hakkaðar matarleifar
frá heimilum gætu hjálpað músa-
og rottustofnum að þrífast.
Vill banna sorp-
kvarnir á heimilum
Vaskur Sorpkvörn
er ekki góð lausn.