Morgunblaðið - 02.02.2017, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
Rómantískur
9.990 kr.
fyrir tvo
matseðill
fyrir tvo
Opið 9-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is
13.-14. og 18.-19. febrúar
Laxa og hörpuskels Carpaccio með
sítrónuolíu-dressingu, borið fram með
árstíðar-grænmetisstefi
✶ ✶ ✶
Yndislegt ofnsteikt lambalæri í kryddhjúp,
borið fram með snöggsteiktum kartöflum,
perlulauk, beikoni og blóðberg
✶ eða ✶
Gambas stórrækjur grillaðar með ólífuolíu og
hvítvíni, bornar fram með grænmeti í
Provençale stíl, sellerý, hvítlauk og kartöflum.
✶ ✶ ✶
Súkkulaði Fondant með
vanilluís til að deila
Borgarráð Reykjavíkur hefur
samþykkt verkefnislýsingu vegna
fyrirhugaðrar breytingar á Að-
alskipulagi Reykjavíkur 2010-
2030, er varðar nýjan hjólastíg í
Elliðaárdal. Hjólastígurinn verður
lagður í meginatriðum í legu eldri
reiðstígs, sem verður við það
lagður af. Um er að ræða legu
stígs frá Sprengisandi við Bú-
staðaveg og austur að Höfða-
bakka, við stíflu í Elliðaárdal.
Fram kemur í kynningar-
gögnum að samkvæmt Hjólreiða-
áætlun Reykjavíkur 2015-2020 og
markmiði Aðalskipulags Reykja-
víkurn um uppbyggingu hjóla-
stígakerfis sé lagt til að lagður
verði sérstakur hjólastígur í El-
liðaárdal sem verði aðgreindur
frá núverandi stofnstíg, sunnan
áa, á kaflanum frá Reykjanes-
braut að Höfðabakka.
Í ljósi þess að hesthúsabyggð
hefur verið aflögð á Sprengisandi
við Bústaðaveg, er lagt til að reið-
stígur sem liggur um þennan
hluta Elliðaárdals verði aflagður
og stæði hans verði nýtt fyrir
hinn nýja hjólastíg. Með því verði
lágmarkað það mögulega rask á
skóglendi sem gæti fylgt fram-
kvæmdinni við hjólastíginn, auk
þess að tryggja aukið öryggi hjól-
andi og gangandi umferðar um
dalinn.
Gert er ráð fyrir að hjólastígur
fylgi reiðstígnum í meginatriðum
en þar sem bratti er of mikill
verður vikið frá legu reiðstígsins.
Samkvæmt lauslegu mati mun
hjólastígurinn víkja lítillega frá
legu reiðstígs á tveimur 150
metra köflum.
Umsagnar- og samráðsaðilar
verða: Hverfisráð Árbæjar og
Breiðholts; Hestamannafélagið
Fákur; aðliggjandi sveitarfélög;
svæðisskipulagsnefnd höfuð-
borgarsvæðisins og Skipulags-
stofnun.
Þá getur almenningur einnig
gert athugasemdir fyrir 17. febr-
úar 2017. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hestar víkja fyrir hjólhestum
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Landsnet og Landsvirkjun hafa
gert samning um kaup og sölu á
reiðuafli. Um er að ræða 40 MW af
alls 100 MW reiðuafli sem Lands-
virkjun hefur selt Landsneti á
undanförnum árum. Nýi samning-
urinn tekur við af eldri samningi
sem gerður var árið 2005.
„Reiðuafl er afl sem notað er til
þess að stýra tíðni flutningskerf-
isins með því að bregðast á fljót-
virkan og sjálfvirkan hátt við
sveiflum í notkun og framleiðslu
raforku, en ómögulegt er að sjá
nákvæmlega fyrir slíkar sveiflur,“
segir í tilkynningu frá fyrirtækj-
unum.
Reiðuaflssamningar milli fyrir-
tækjanna eru þrír. Sá sem nú er
endurnýjaður felur í sér 30 MW
afl frá stöðvum á Þjórsársvæði og
10 MW afl frá Blöndustöð. Hinir
samningarnir eru 30 MW hvor, frá
Fljótsdalsstöð og Þjórsársvæði.
Eftirspurn meiri en framboð
Tilgangur samningsins er að
tryggja þennan lögboðna hluta
kerfisþjónustu Landsnets sem er
nauðsynlegur til þess að halda
uppi gæðum rafmagns um land
allt, segir í tilkynningunni.
Nýting íslenska raforkuvinnslu-
kerfisins eykst stöðugt og eftir-
spurn eftir orku er meiri en fram-
boð. Verð í hinum nýja samningi
tekur mið af nýgerðum samning-
um Landsvirkjunar við sölufyrir-
tæki raforku og byggir m.a. á
áætluðum kostnaði við fjárfestingu
í auknu afli í raforkukerfinu við
núverandi aðstæður.
Landsnet birtir reiðuaflssamn-
inginn á heimasíðu sinni í takt við
stefnu fyrirtækisins um aukna
upplýsingagjöf, aukið gagnsæi og
samkeppni á raforkumarkaðnum.
Þar kemur m.a. fram að fyrir-
tækið greiðir 13,9 milljónir króna
á mánuði vegna 15MW hefðbund-
ins reiðuafls og 4,4 milljónir á
mánuði vegna 25MW umframafls.
Forstjórar fyrirtækjanna, Guð-
mundur Ingi Ásmundsson og
Hörður Arnarson, undirrituðu
samninginn.
Landsnet bregst
við sveiflum
Semur við Landsvirkjun um reiðuafl
Undirritun Guðmundur Ingi Ás-
mundsson og Hörður Arnarson.