Morgunblaðið - 02.02.2017, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
TE & KAFFI NOTAR EINGÖNGU ÚRVALS KAFFIBAUNIR
FRÁ BESTU RÆKTUNARSVÆÐUNUM, SÉRVALDAR OG
BRENNDAR AF BRENNSLUMEISTARA.
ILMANDI
HLUTI AF DEGINUM
Íslenskt fjölskyldufyrirtæki
og framleiðsla síðan 1984
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að sjá til þess að þú fáir sem
mestan vinnufrið. Reyndu að leiða þetta allt
hjá þér og öllu máli skiptir að þú haldir ró
þinni.
20. apríl - 20. maí
Naut Magn er ekki sama og gæði, en samt
þarftu að gæta þess að fara ekki niður fyrir
lágmörk í iðni og afköstum. Gríptu það áður
en einhver annar gerir það.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Næstu daga áttu eftir að vekja mun
meiri eftirtekt en áður. Um leið og þú nýtur
þessa þá mundu að slík vinátta verður að
vera gagnkvæm.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu að mæta þörf þinni fyrir
aukna hvíld og einveru. Sinntu bankanum.
Vertu óhrædd/ur við að taka það að þér sem
aðrir hafa hunsað. Það gefur lífinu gildi að
ljúka einhverju sem hefur lengi vofað yfir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur eytt löngum tíma í verkefni þitt
og sérð nú loksins fyrir endann á því. Reyndu
að finna þeirri tilfinningu heppilegan farveg
svo að þú getir notið þín.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er komið að þér að undirbúa
næstu samveru félaganna og hafðu ekki
óþarfa áhyggjur. Fólk virðist hreinlega bara
fyrir þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er engin skömm að því að skipta um
skoðun ef öll rök hníga til þess. Þú færð á þig
mjög óraunhæfar kröfur en missir ekki móð-
inn. Þú uppfyllir þær í staðinn og í því liggur
styrkur þinn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér ætti að ganga vel að vinna
einhvers konar rannsóknarvinnu í dag. En
það er bara tímabundið ástand.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú getur lært heilmargt um
sjálfa/n þig af samræðum þínum við aðra í
dag. Gerðu það upp við þig hvort þú viljir eiga
viðskipti við slíka aðila.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er eitt og annað að gerast í
kringum þig sem þér finnst þú ekki hafa putt-
ana á. Með slíkri framkomu tryggir þú það
eitt, að enginn vill hlusta á þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Lokaðu þig ekki af frá umheim-
inum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Taktu
því vel eftir og reyndu að skilja kjarnann frá
hisminu. Tölvu- og símavandræði eru frá.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver heppni gæti verið dulbúin
sem óheppni. Farðu varlega í eyðsluseminni,
þú ert ekki beinlínis óhlutdrægur.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkirá Leir um handlaginn mann:
Já, hankinn var hálflaus til baga
en herða má skrúfur og laga
og allt sem var laust
nú orðið er traust
- og Halldór sig hengdi á snaga.
En áður hafði hann ort:
Ég skil það og hef það á hreinu
að þótt heimurinn líkist nú kleinu
finnst kvinnum enn gaman
að koma tvær saman
og kjafta þá fjórar í einu.
Fía á Sandi var með á nótunum:
Gleymin varð Grímhildur Freyja
en geysi skrafhreifin meyja.
Seinast þó lá
eins og sólþurrkað strá
og lærði þá loksins að þegja.
Hróðný með hárið sitt smarta
hrokkna síða og bjarta
var helvíti hress
þegar hrjáði ‘ana stress
hún kunni svo dável að kvarta.
Hjálmar Freysteinsson yrkir um
„Tyrfing kastara“ á fésbókarsíðu
sinni: LL.
Líkamann Tyrfingur temur,
þrjá tíma á dag – aldrei skemur,
en á óskýrðan hátt
dregur úr honum mátt
þegar til kastanna kemur.
Páll Imsland heilsaði leirliði „á
björtum degi“:
Geirmundur gamli á Horni,
sem gekk undir nafninu forni,
var uppi á sögu’öld
og aftur á bögu’öld,
auðvitað endur- hinn -borni.
Síðan yrkir hann um „hina nafn-
lausu í kyrrðarmyrkrinu“:
Hún var afspyrnu fúl bæði’ og úrill.
Hún var aldeilis ferlega geðill.
Hún öskraði’ og hrein.
Hún var allsherjar mein,
en svo dæmalaust duglegur gerill.
Þórdís Sigurbjörnsdóttir bregð-
ur sér vestur um haf á Boðnarmiði:
Líklega er Trump af því tagi
að tæplega sé það í lagi
velsæmis vegna
og virðingar þegna
að bregða sér með hann á bæi.
Hér er gömul limra eftir karlinn
á Laugaveginum:
Mér sýndist ég sjá þetta á ‘enni
sð svæfi þar piltungi hjá ‘enni
svartur á hár, –
en svo leið hálft ár
og síðan kom annars eins frá ‘enni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ýmsar limrur
héðan og handan
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... … þegar hann
reynir sitt besta til
þess að elda fyrir þig.
VIÐ ÞURFUM
NÝTT BORÐ
NEI!MAMMA, HELDURÐU AÐÁSTIN SÉ BLIND?
„HÉRNA ER VANDINN. ÞÚ SÉRÐ GLASIÐ
SEM HÁLFTÓMT, Á MEÐAN ÉG SÉ EKKI
EINU SINNI GLASIÐ, ÞVÍ ÞÚ ERT SVO
NÍSKUR Á ÞJÓRFÉÐ.“
„HVERS KONAR HUNDUR
ÉTUR GULRÆTUR?“
EN ÉG
LOKA OFT
AUGUNUM!
Víkverji komst í hann krappan ádögunum þegar skóreim hans
ákvað að losa sig og lenda með mikl-
um tilþrifum á gólfinu á karlakló-
settinu í Hádegismóum. Víkverji tel-
ur sig nú ekki vera sýklafælinn
einstakling en eitthvað við þessa lífs-
reynslu snerti ranga taug hjá hon-
um. Víkverji gat sem betur fer
sprittað sig og reimina í bak og fyrir
áður en hann hnýtti skóþveng sinn á
ný. Hins vegar er ljóst að ef reimin
ákveður að gera eitthvað svona aftur
dugar ekki minna en að kaupa sér
nýja reim eða jafnvel bara nýja skó
með frönskum rennilás.
x x x
Ekki að Víkverji sé áþreifanlegasýklafælinn en honum finnst
sum húsverkin verri en önnur. Það
að fara út með ruslið er honum til
dæmis mikil áþján þessa dagana þar
sem borgaryfirvöld virðast telja að
ruslatunnurnar tæmi sig sjálfar. Það
tekur Víkverja því einatt þrjár at-
rennur áður en hann finnur „tóma
tunnu“, eða öllu heldur tunnu þar
sem pláss er fyrir ruslapokann hans.
Það þýðir að Víkverji er búinn að
þreifa á ekki einu, ekki tveimur,
heldur þremur öskutunnulokum,
oftast nær blautum, áður en hann
getur losað sig við sorppokann. Með
heppni Víkverja lekur pokinn líka í
millitíðinni á hann.
x x x
Meistaramánuður“ hófst víst ígær. Víkverji er ekki viss um
uppruna þessa framtaks en finnst
þetta svo sem sniðug hugmynd. Sér-
staklega fyrir fólk eins og hann sem
er alltaf búið að klúðra áramóta-
heitunum sínum áður en 1. janúar er
liðinn. Nú fær Víkverji annað tæki-
færi til þess að strengja heit um
bætt líferni sem hann mun síðan
ekki fylgja. Mætti segja að þetta sé
leið til þess að teygja áramótin enn
lengra inn á dagatalið en áður.
x x x
Víkverji mun því líklega sinnaheilsu sinni í þessum „meistara-
mánuði“ líkt og hann gerir alla hina
mánuði ársins, af takmörkuðum
áhuga. Enda hefur líkami Víkverja
lítið gert fyrir hann á lífsleiðinni. Af
hverju ætti Víkverji að gera honum
einhvern greiða? vikverji@mbl.is
Víkverji
Þetta er mitt boðorð, að þér elskið
hvert annað eins og ég hef elskað yður.
(Jóh 15:12)