Morgunblaðið - 02.02.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Reggísveitin Amabadama og
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, oft
kölluð Sinfó Nord, stilla saman
raddbönd sín og strengi á tónleikum
sem haldnir verða á laugardaginn, 4.
febrúar, kl. 20 í Hamraborg í Hofi
og endurteknir 25. febrúar í Eld-
borg í Hörpu.
Sinfóníuhljómsveitin hefur komið
að fjölbreyttum verkum á undan-
förnum misserum, leikið tónlist fyrir
kvikmyndir og hljómplötur og með
tónlistarmönnum úr ólíkum geirum
tónlistar, m.a. poppi og rokki, auk
þess að halda klassíska sínfóníu-
tónleika. Hún ætti því að eiga auð-
velt með að leika útsetningar Þor-
valds Bjarna Þorvaldssonar og
Grétu Salóme á „Hossa hossa“ og
fleiri smellum Amabadama af fyrstu
og einu plötu hennar, Heyrðu mig
nú, sem kom út 2014.
Þrír liðsmenn reggísveitarinnar
koma fram á tónleikunum, þau
Gnúsi Yones, réttu nafni Magnús
Jónsson, Salka Sól Eyfeld og Stein-
unn Jónsdóttir.
Magnaðar útsetningar
„Við erum búin að taka tvær æf-
ingar í bænum, eina sem var bara
með Þorvaldi, Grétu, okkur og kór-
stjóranum og svo var lestraræfing í
gær, þá komu nokkrir meðlimir
Sinfó Nord. Við vorum að lesa yfir
og kórinn kom, kammerkórinn Au-
rora sem syngur með okkur,“ segir
Salka Sól, nýkomin á hótel fyrir
norðan þegar blaðamaður nær tali
af henni á þriðjudegi. „Svo er fyrsta
stóra æfingin í kvöld,“ bætir hún
við.
–Reggíhljómsveit og sinfóníu-
hljómsveit – það fyrsta sem kemur
upp í hugann er einhvers konar tón-
listarlegur árekstur!
Salka hlær. „Nei, alls ekki. Eins
og ég hef talað um þá eru þarna
tvær ástríður sem tengjast. Reggí
er svo mikil ástríðutónlist, lífsstíll og
hugsjónir og það á líka við sinfón-
íuna. Þar er fólk sem hefur spilað á
hljóðfæri í fleiri tugi ára og ég held
að þetta séu því tvær ástríður að
mætast en svo passar þetta líka
ótrúlega vel. Þorvaldur og Gréta eru
búin að gera ótrúlega hluti með út-
setningarnar og það er magnað að
heyra lögin sem maður er búinn að
semja og spila margoft í svona út-
setningum, að heyra möguleikana
sem þau bjóða upp á. Svo er þetta
bara algjört „feelgood“,“ segir Salka
kímin. Þorvaldur og Gréta heyri oft
eitthvað í lögunum sem Amabadama
sé orðin ónæm fyrir. „Þau eru að
pikka upp línur, ýkja þær og þess
háttar,“ útskýrir hún, segir taktinn í
lögunum halda sér en sumir kaflar í
lögunum séu opnaðir, gerðir stærri
þannig að sinfóníuhljómsveitin fái
notið sín.
Rosaleg orka
–Það þarf auðvitað að gæta þess
að báðar sveitir fái sína athygli?
„Já, ætli það ekki. Við erum bara
þrjú á sviðinu úr Amabadama og
Maggi á döbbinu, hann er döbb-
masterinn okkar og svo heil sinfón-
íuhljómsveit. Það kemur auðvitað
rosaleg orka frá svona sinfóníu-
hljómsveit sem skilar sér til okkar,“
svarar Salka.
Þorvaldur Bjarni, tónlistarstjóri
Menningarfélags Akureyrar, átti
hugmyndina að því að leiða saman
hljómsveitirnar og segist Salkla
ekki vita til þess að reggísveit hafi
áður leikið með sinfóníuhljómsveit
hér á landi. Hins vegar hafa báðar
sinfóníuhljómsveitir tekist á við
popp og rokk, Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands m.a. leikið með Dimmu,
Skálmöld, Quarashi og Páli Óskari,
svo nokkur dæmi séu nefnd.
„Sinfóníuhljómsveit getur spilað
allt, eða a.m.k. mjög margt og svo
bætum við okkar kryddi ofan á. Eft-
ir æfinguna í gær var ég eiginlega
svolítið meyr, það var svo magnað
að heyra þetta,“ segir Salka um þá
blöndu sem gestir fá að njóta í Hofi
á laugardaginn og síðar í Eldborg.
Gestarappari verður í einu lagi á
tónleikunum, Arnar Freyr Frosta-
son úr rapptvíeykinu Úlfur úlfur.
Salka segir Amabadama hafa daðr-
að þónokkuð við rapp, þær Steinunn
hafi rappað á fyrstu plötu hljóm-
sveitarinnar og Magnús líka, enda
rappari í grunninn.
Meira döbb
Önnur plata Amabadama er í
vinnslu og segir Salka að nokkur lög
af henni muni heyrast á tónleik-
unum í bland við eldri.
„Við erum að gera svolítið meira
döbb og lögin eru meira unnin í
tölvu en á fyrstu plötunni - svona
eins og rappararnir vinna - með
góða takta og þannig. En ég held að
það sé svipaður fílingur í textagerð-
inni. Reggítextagerð er svolítið
„naive“ og falleg, finnst mér, hún
segir svolítið beint út hvað maður er
að hugsa,“ segir Salka, beðin um að
bera saman plöturnar tvær. Amaba-
dama syngi um náungakærleik, ást
og frið. „Það er sama hvað maður
semur um í reggíi, það er ekki mikið
undir rós.“
Frekari upplýsingar um tónleik-
ana má finna á vef Menningarfélags
Akureyrar, mak.is.
Sameiginleg ástríða í tónlistinni
Þrír liðsmenn reggísveitarinnar Amabadama halda tónleika með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
og kammerkórnum Aurora í Hofi á laugardaginn „Magnað að heyra þetta,“ segir Salka Sól
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Í stuði Steinunn, Salka og Gnúsi Yones á æfingu í Hofi með nokkra meðlimi Sinfó Nord í bakgrunni.
Beygja Amabadama-liðar hossa bossa undir stjórn Þorvalds Bjarna.
Vetrarhátíð hefst í dag og er nú
haldin í 16. sinn. Hátíðin fer fram í
öllum öllum sex sveitarfélögum
höfuðborgarsvæðisins og stendur
til og með 5. febrúar. Fjórar meg-
instoðir hátíðarinnar eru Safna-
nótt, Sundlauganótt, Snjófögnuður
og ljósalist auk um 150 viðburða
þar sem fjöldi listamanna tekur
þátt í að skapa einstaka stemningu í
borginni, eins og segir í tilkynningu
frá Höfuðborgarstofu sem hefur
yfirumsjón með hátíðinni.
Hátíðin verður sett kl. 19.40 við
Hallgrímskirkju af Degi B. Egg-
ertssyni borgarstjóra og verður um
leið afhjúpað ljósalistaverkið
„Sköpun lands“ eftir listamanninn
Ingvar Björn. Í því er myndbrotum
frá ýmsum eldgosum varpað á
kirkjuna og á sama tíma verða um
30 byggingar á höfuðborgarsvæð-
inu upplýstar í litum hátíðarinnar,
grænum og fjólubláum. Samhliða
afhjúpun verksins verður frumflutt
hljóðverk eftir Magnús Leif Sveins-
son þar sem m.a. eru lesin upp öll
stærstu eldgos Íslandssögunnar,
eins og segir í tilkynningu en verk-
ið er unnið í samstarfi við Profilm.
Eftir setninguna fer af stað ljós-
hestareið hesta og ungmenna í
Hestamannafélaginu Fáki frá Hall-
grímskirkju niður að Arnarhóli.
Ingvar Björn hefur tekið þátt í
sýningum víða um lönd, m.a. í Po-
pup-listahátíð í Berlín á síðasta ári
þar sem hann gerði náttúrulista-
verkið „Geysi“ í miðborginni og
hann gerði einnig verk sem kallast
„Largest Artwork in the World“ og
var sýnt í Listasafni Reykjavíkur.
Dagskrá Vetrarhátíðar má finna á
vetrarhatid.is.
Ljósmynd/Ragnar Th.
Hátíð Ljóslistaverk Marcos Zotes á Hallgrímskirkju á Vetrarhátíð 2015.
Vetrarhátíð sett