Morgunblaðið - 02.02.2017, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
Vertu upplýstur!
blattafram.is
Á HVERJUM DEGI
STUÐLUM VIÐ MÖRG
AÐ KYNFERÐISOFBELDI
MEÐ ÞVÍ AÐ LÍTA
Í HINA ÁTTINA.
Í HVAÐA ÁTT HORFIRU?
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
VOR 2017
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Stórútsalan
síðustu dagar
GÖTUSALAN
hefst í dag
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Komið og gerið góð kaup
Útsölunni lýku
r sunnudaginn
5. febrúar
Skoðið úrvalið á
dimmalimmreykjavik.is
Laugavegi 53 | Sími 552 3737
Opið virka daga 10-18 og laugard. 10-17
DIMMALIMM
Enn meiri
afsláttur
50-70% afsl
Síðustu dagar
útsölunnar
Allir Kuldagallar 40% afsl
Dómarar við Héraðsdóm Reykjavík-
ur hafa dæmt ungan mann í þriggja
ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað
stúlku sem var sextán ára gömul
þegar brotið var framið gegn henni.
Honum er jafnframt gert að greiða
henni 900 þúsund krónur í skaða-
bætur og tæplega 2,4 milljónir króna
í sakarkostnað.
Brotið framdi maðurinn, sem
hafði sótt um hæli á Íslandi en fengið
synjun, í mars í fyrra. Maðurinn var
ákærður fyrir kynferðisofbeldi
gagnvart stúlkunni, sem var á
sautjánda aldursári þegar hann
braut gegn henni, í byrjun desember
og féll dómurinn í málinu í Héraðs-
dómi Reykjavíkur sl. þriðjudag.
Samkvæmt ákæru beitti pilturinn
stúlkuna ólögmætri nauðung til þess
að hafa við hana samræði og önnur
kynferðismök en hann nuddaði kyn-
færi hennar og lagðist síðan ofan á
hana og hafði við hana samræði,
þrátt fyrir að hún hefði sagt honum
að hún vildi það ekki og beðið hann
um að hætta. Ungi maðurinn neitaði
sök fyrir rétti. Fram kemur í dómi
héraðsdóms að maðurinn sé ungur
að árum en ekki getið um hversu
gamall hann er en hann fékk fóstur-
foreldra við komuna til landsins á
vegum Barnaverndar.
Stúlkan lagði fram formlega kæru
á hendur manninum í byrjun apríl en
þar kemur fram að hún hafi kynnst
honum þegar hann spurði hana til
vegar í strætisvagni. Þau hafi skipst
á símanúmerum og í framhaldi farið
að tala saman á Facebook. Þau hafi
nokkru síðar mælt sér mót og farið
saman á gistiheimili. Í herbergi á
gistiheimilinu hafi þau í tvígang haft
samræði. Stúlkan hafi farið á snyrt-
inguna og er hún hafi komið til baka
hafi hann viljað hafa samræði við
hana í þriðja skiptið. Það hafi hún
ekki viljað. Nánar á mbl.is.
Þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun
Hælisleitandi nauðgaði 16 ára stúlku Skiptust á símanúmerum í strætó
„Fólk virðir og tekur betur eftir
merkingum sem settar hafa verið
upp í Reynisfjöru,“ segir Guðni Ein-
arsson í Þóris-
holti í Mýrdal,
sem með fleirum
rekur veitinga-
húsið Svörtu fjör-
una við Reynis-
fjöru. Sá staður
er einn vinsælasti
ferðamanna-
staður landsins.
Guðni áætlar að á
svæðið komi á
bilinu 3.000 til
4.000 manns á dag, eða um ein millj-
ón á ári, en óvíða kemst fólk í betra
návígi við ólgandi brim suðurstrand-
arinnar.
Banaslys varð í fjöunni í fyrra og í
Kirkjufjöru í seinasta mánuði. Eftir
banaslysið í Reynisfjöru voru settar
upp keðjur sem marka gönguslóðir,
svo og fræðslu- og upplýsingaskilti.
„Hvernig alda berst að landi er óút-
reiknanlegt og ekki er hægt að halda
í höndina á öllum. Fólk verður að
bera ábyrgð á sjálfu sér og sýna að-
gát,“ segir Guðni. Hann bætir og við
að nú í febrúar verði fleiri aðvör-
unarskilti sett upp í Reynisfjöru.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Reynisfjara Ferðamaður á gangi.
Merkingar
sanna sig
Guðni
Einarsson
Fólk fer varlegar
Tveggja bíla árekstur varð á
tólfta tímanum í gær þegar
fólksbifreið ók inn í hliðina á
vörubíl. Áreksturinn átti sér
stað á gatnamótum Miklubraut-
ar og Grensásvegar. Engin slys
urðu á fólki að sögn varðstjóra
Slökkviliðs höfuðborgarsvæð-
isins og þá varð enginn olíuleki.
Tilkynning um áreksturinn
barst klukkan 11:20 og fóru
sjúkralið og lögregla á vett-
vang. Tafir urðu á umferð
vegna slyssins á meðan við-
bragðsaðilar voru að athafna
sig.
Tveggja bíla árekst-
ur á Miklubraut