Morgunblaðið - 02.02.2017, Page 13
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Boltastrákar Yngstu krakkarnir koma í dægradvöl í íþróttahúsinu við Austurberg og reyna sig í ýmsum greinum.
hinum íþróttafélögunum í Breið-
holti, Leikni og Ægi. Einnig hefur
verið samstarf milli ÍR og Breiða-
bliks í Kópavogi um aðstöðu fyrir
fótboltann og bætt aðstaða í
Mjóddinni skapar nýja möguleika í
því samstarfi.
Starfið á mörgum stöðum
„Starf ÍR er í dag á mörgum
stöðum í borginni og fyrir það höf-
um við goldið,“ segir Ingigerður.
„Nú sjáum við hins vegar fram á
betri tíma og þetta samkomulag
einfaldlega styrkir Breiðholtið sem
samfélag.“
Ingigerður nefnir að í dag æfi
frjálsíþróttafólk félagsins á Laugar-
dalsvelli, þar sem knattspyrna
þrengi sífellt meira að. Mikill mun-
ur verði þegar æfingar í frjálsum
íþróttum færist í Mjóddina, þar
sem fótboltinn er í dag og aðstaða
fyrir bardagaíþróttir eins og júdó,
karate, og taekwondo. Handbolta-
og körfuboltastarf í dag er í Selja-
skóla og í Austurbergi er meðal
annars tómstundastarf fyrir börn,
sem þangað geta komið í íþrótta-
tíma dag hvern eftir að skóla lýkur
og æft ýmsar greinar. Fjölbreytnin
ræður enda er hópurinn stór og
áhugi krakkanna liggur víða.
Ná til nýrra Íslendinga
Í dag æfa alls um 2.300 iðk-
endur með ÍR, sjálfboðaliðarnir í
starfinu nálgast að vera 2.000 og
þjálfarar sem starfa á vegum fé-
lagsins eru um 150. Æfingaflokkar
á degi hverjum eru milli 50 og 60
og það á öllum tímum dags. Við
þetta bætast svo íþróttaæfingar
eldri borgara í Mjóddinni, þar sem
einnig eru dansæfingar og fleira
skemmtilegt. Þá er samvinna milli
ÍR og leikskólanna í Breiðholti um
íþróttir fyrir börn af því skólastigi
einu sinni í viku þar sem ÍR sér
um íþróttaþjálfun fyrir elstu börnin
í leikskólunum.
„Öllum er í mun að ná betur
til krakkanna í Breiðholtinu, en
ýmsar úttektir sýna að félagsleg
staða þeirra mætti vera betri. Efl-
ing íþróttastarfsins með öðru miðar
að breytingum á því. Kapp verður
lagt á að ná betur til nýrra Íslend-
inga í hverfinu, það er barna af er-
lendum uppruna sem er stór hópur
í Breiðholtinu. Okkur hefur sýnst
að þeir krakkar hafi mikinn áhuga
á bardagaíþróttum og því verður að
svara,“ segir Ingigerður.
Fjölmenningarsamfélag
Samningurinn við ÍR verður,
segir Ingigerður, vonandi aðeins
fyrsta skrefið af hálfu borgarinnar
til styrkingar á Breiðholtinu. Það
sé eitt fjölmennasta hverfi borg-
arinnar, með um 22.000 íbúum sem
að talsverðum hluta eru af erlend-
um uppruna. Því sé hverfið í raun
fjölmenningarsamfélag og því verði
að svara í íþróttastarfi og raunar
allri þjónustu við fólkið.
Félagshús Aðstaða ÍR í Mjódd verður bætt með völlum og íþróttahúsum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
SJÓNMÆLINGAR
Tímapantanir:
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Miðaldastofa
Háskóla Ís-
lands stendur
fyrir fyrirlestri
kl. 16.30 í dag,
fimmtudaginn
2. febrúar, í
stofu 101 í
Odda. Fyr-
irlesturinn,
Lollardar og
brauðslíking
herrans -
Kruðerí úr
kirkjusögu á
15. öld, flytur
Hjalti Snær
Ægisson, doktorsnemi í almennri
bókmenntafræði við HÍ.
Fyrirlesturinn fjallar um trúarhóp á
Englandi á 15. öld, sem átti upphaf
sitt í fylgismönnum John Wyclif.
Meginmarkmið lollarda var að stuðla
að umbótum innan kirkjunnar og hef-
ur Wyclif lengi verið túlkaður sem
einn af táknrænum forverum Lúthers
í hefðbundinni söguskoðun.
Fræðimenn í hinum enskumælandi
heimi hafa tekið þátt í frjórri og lif-
andi umræðu um upphaf og eðli
lollardanna, tengslin við Wyclif og
áhrif og útbreiðslu þeirra skoðana
sem þeir aðhylltust.
Í fyrirlestrinum verður m.a. stiklað
á stóru um þessa fræðilegu umræðu
og gerð grein fyrir helstu álitaefnum
sem verið hafa í forgrunni.
Hjalti Snær vinnur að rannsókn á
norrænum ævintýrum og tengslum
þeirra við prédikunarhefð 13. aldar.
Fyrirlesturinn er á íslensku og er
öllum opinn.
Kruðerí úr kirkjusögu
Trúarleiðtogi John
Wyclif (1320–1384).
Málverk eftir Thomas
Kirby frá 1828.
Lollardar og
brauðslíking
herrans